Page 1 of 1

Bifhjólatryggingar

PostPosted: Mon 05. Mar 2007 17:49
by Henbjon
Sælir, þessi þráður höfðar kannski meira til mótorhjóla áhugamanna.

Ég er núna að fara að festa mér á hjól fyrir sumarið. Brand new væntanlega. Um er að ræða 125cc racer. (ok 125cc oj!! nei, ég er að verða 18 ára, þetta hjól kemst upp í ca. 170 óbreytt og það er nógu kraftmikið fyrir mig þannig ég væli ekki um mótorstærðina)

Ég er semsagt í áhættuhópi 1.

Hvað ætli það kosti mig á ári að tryggja það og hvar fengi ég besta dílinn?

Einhver sem veit eitthvað? :roll: :)

Með fyrirfram þökk!

PostPosted: Sun 11. Mar 2007 18:35
by UnniTs
Ég er að tryggja skellinöðruna mína hjá tryggingafélaginu "Vörður" held ég að það heiti og það er frekar góður díll..þetta er ekki beint það sama en pabbi er líka á góðum díl með bílinn og hef heyrt að þeir séu með þeim ódýrustu ef ekki þeir ódýrustu..tékkaðu á þeim! :roll:

PostPosted: Sun 11. Mar 2007 20:06
by Henbjon
Ég er kominn með þetta. 50 k á ári :)

PostPosted: Sun 11. Mar 2007 20:37
by Thrullerinn
BmwNerd wrote:Ég er kominn með þetta. 50 k á ári :)


Það er nú bara sæmilegt, er þetta eitthvað tvígengisdót?
væri gaman að sjá mynd...

PostPosted: Sun 11. Mar 2007 21:54
by Henbjon
Thrullerinn wrote:
BmwNerd wrote:Ég er kominn með þetta. 50 k á ári :)


Það er nú bara sæmilegt, er þetta eitthvað tvígengisdót?
væri gaman að sjá mynd...


Já það er gott sko. Ég hringdi í tryggingarfélagið og þau sögðu 500 þúsund við mig. Svo hringdi pabbi og þau buðu honum að fá hjólið tryggt fyrir 50 þúsund! nokkuð gott finnst mér. Þetta er hjá sjóvá.

En já þetta hjól er tvígengis. Heitir Aprilia RS125, það er 125cc, 33 hö og með hámarkshraðann um 170 við bestar aðstæður með öll innsigli rofin.

Image

PostPosted: Sun 11. Mar 2007 21:58
by gunnar
Hahahaha smá verðmunur.

PostPosted: Sun 11. Mar 2007 21:59
by Henbjon
gunnar wrote:Hahahaha smá verðmunur.


Tómatar túmatar maður :lol: :lol:

PostPosted: Sun 11. Mar 2007 22:22
by BMWaff
Sjitt er einmitt að fara að taka bifhjóla prófið í næstu viku... Var einmitt að fara að kíkja á þetta... En þessi 50þ kr,- eru væntanlega líka útaf stærð vélarinnar? Mér langar í allavega 600 hjól er það ekki mikið meira?

PostPosted: Sun 11. Mar 2007 23:19
by Henbjon
BMWaff wrote:Sjitt er einmitt að fara að taka bifhjóla prófið í næstu viku... Var einmitt að fara að kíkja á þetta... En þessi 50þ kr,- eru væntanlega líka útaf stærð vélarinnar? Mér langar í allavega 600 hjól er það ekki mikið meira?


Lang dýrast að tryggja áhættuhóp 1. sem er 17-19 ára

PostPosted: Sun 11. Mar 2007 23:27
by BMWaff
BmwNerd wrote:
BMWaff wrote:Sjitt er einmitt að fara að taka bifhjóla prófið í næstu viku... Var einmitt að fara að kíkja á þetta... En þessi 50þ kr,- eru væntanlega líka útaf stærð vélarinnar? Mér langar í allavega 600 hjól er það ekki mikið meira?


Lang dýrast að tryggja áhættuhóp 1. sem er 17-19 ára


OK, þetta fer þá líka eftir aldri? meira kanzki heldur en kraft bifhjóls? Er nú að spá í að kíkja á síðurnar hjá þessu liði... Gá hvort það sé eitthvað að lesa...

PostPosted: Mon 12. Mar 2007 00:13
by Henbjon
BMWaff wrote:
BmwNerd wrote:
BMWaff wrote:Sjitt er einmitt að fara að taka bifhjóla prófið í næstu viku... Var einmitt að fara að kíkja á þetta... En þessi 50þ kr,- eru væntanlega líka útaf stærð vélarinnar? Mér langar í allavega 600 hjól er það ekki mikið meira?


Lang dýrast að tryggja áhættuhóp 1. sem er 17-19 ára


OK, þetta fer þá líka eftir aldri? meira kanzki heldur en kraft bifhjóls? Er nú að spá í að kíkja á síðurnar hjá þessu liði... Gá hvort það sé eitthvað að lesa...


Já, held það sé dýrast eftir aldrinum sko. En þú getur reddað góðum dílum ef þú ert með einhverjar eignir hjá félaginu. færð besta dílinn hjá þínu tryggingarfélagi held ég.