Page 1 of 4

Hálkan í gærkvöldi

PostPosted: Sun 04. Mar 2007 03:25
by Frikki
Ég gæti blótað þessari hálku svo mikið en læt það vera.

Ég hata hálku þegar ég er á vetrardekkjum. Þetta er náttúrulega ekkert grín hvað það er mikil hálka úti.

Lentu menn í einhverju veseni ?

Ég festist í brekku í íbúðargötu í Árbæ, frekar tricky að koma honum upp, þurfti að bakka, annars hefði hann bara runnið og runnið og klesst á bíla sem voru neðst í brekkunni. Reddaði mér með mottunum, tvisvar eða þrisvar. Þokkalega leiðinlegt.

PostPosted: Sun 04. Mar 2007 03:34
by bjahja
Djöfull var ég mikið á hlið á leiðinni heim maður :lol: :lol:

PostPosted: Sun 04. Mar 2007 03:38
by trolli
holy crap ég komst varla af stæðinu sá að afturdekkinn voru bjé ú i enn enn.
tók fram dekkinn og svissaði dekkjum annars var ég á hliðinni mest alla leiðina heim

PostPosted: Sun 04. Mar 2007 03:51
by gunnar
Var á Yaris í kvöld og guð minn góður hvað þetta eru slæmir bílar í hálku... bíllinn missir bara alla stjórn og afturendinn leitar bara til hliðar..

Svo eru svo lítil dekk á þessu að þetta spólar í fjórða gír við rétt að snerta gjöfina.

PostPosted: Sun 04. Mar 2007 07:15
by Danni
540 hjá mér átti í engum vandræðum með þessa hálku í Reykjavík, þurfti bara að hafa spólvörnina á þegar ég fór upp brekkur :mrgreen:

PostPosted: Sun 04. Mar 2007 10:37
by Ingsie
Low profile er ekki sniðugt í hálku, þannig ég keyrði eins og algjör kelling :lol:

PostPosted: Sun 04. Mar 2007 10:45
by Einsii
hehe.. komið með þessa bíla ykkar hingað norður.. Hér eru allar götur þaktar ís heilu vikurnar ;)

PostPosted: Sun 04. Mar 2007 11:39
by Turbo-
ég nýtti mér báðar akgreinarnar framhjá smáralindinni á leiðinni heim, notaði báðar akgreinarnar í hringtorginu og tók svo brekkuna á hlið upp :P

PostPosted: Sun 04. Mar 2007 12:19
by Frikki
Já ég er á low profile, vissi ekkert að þau væru eitthvað leiðinleg í hálku :D

Danni wrote:540 hjá mér átti í engum vandræðum með þessa hálku í Reykjavík, þurfti bara að hafa spólvörnina á þegar ég fór upp brekkur :mrgreen:


Hmm ég var með kveikt á ASC, DTC og ég veit ekki hvað og hvað, bíllinn var alveg góður á götunum en í brekkum var hann eins og nýfæddur kálfur

PostPosted: Sun 04. Mar 2007 12:35
by Turbo-
sspólvarnir og skriðvarnir er óþarfa drasl ef maður kemst ekki upp einhverja brekku þá fer maður e-ð annað :P eða tekur tilhlaup

PostPosted: Sun 04. Mar 2007 12:52
by Chrome
mér leið einsog krakka í nammibúð :D vonandi fáum við einn eða fleiri svona daga áður en sumarið kemur :)

PostPosted: Sun 04. Mar 2007 13:07
by Los Atlos
Einsii wrote:hehe.. komið með þessa bíla ykkar hingað norður.. Hér eru allar götur þaktar ís heilu vikurnar ;)


Þess vegna er ég á 4x4 :D

PostPosted: Sun 04. Mar 2007 14:21
by zazou
Hálka rokkar, DSC OFF 8)

Sparar manni dekkin.

PostPosted: Sun 04. Mar 2007 15:24
by Orri Þorkell
var á skoda octavia í gær hann svínvirkar í hálkunni líka með spól og skrikvörn en á ónegldum vetrardekkjum

PostPosted: Sun 04. Mar 2007 15:25
by Jökull
Audi A8 Quattro bíllinn sem ég var á stóð sig bara mjög vel :)