Page 1 of 2
Bretta og skíða folk.

Posted:
Fri 09. Feb 2007 03:03
by HPH
Eru einhverjir hér á Kraftinum sem stunda þá iðju þegar hækt er að skíða eða Snjóbretta? og hver er svona ykkar uppáhalds-brekkan ykkar?

Posted:
Fri 09. Feb 2007 08:56
by hjortur
Snjóbretti og þá bara fyrir utan skíðasvæði. Þoli ekki að renna mér á þjöppuðum skíðabrekkusnjó. Hef verið duglegur síðustu ár að labba á fjöll hérna fyrir vestan og láta vaða niður.

Posted:
Fri 09. Feb 2007 09:02
by Aron Andrew
Ég æfði skíði heillengi, er svona að beila á því núna.
Uppáhalds brekkan mín hér á landi væri sennilega á Ísafirði, helvíti góðir bakkar þar.
Annars eru íslensk skíðasvæði voða mikið frat á miðað við skíðasvæði erlendis


Posted:
Fri 09. Feb 2007 09:05
by Einarsss
hef verið á bretti frá því ég var 13 ára.... hef voðalega lítið farið undanfarin ár útaf snjóleysi og þegar það er opið þá vantar snjó allsstaðar nema á brautinni sjálfri ... sem sökkar


Posted:
Fri 09. Feb 2007 09:13
by ValliFudd
Snjóbretti og af svæðum með lyftum er það Skálafell eða Hlíðarfjall.. Það er bara aldrei opið í Skálafelli og svo ég fer oftast í Hlíðarfjalið


Posted:
Fri 09. Feb 2007 09:30
by íbbi_
æfði alltaf skíði þegar ég var krakki.. svo einn daginn hugsaði ég djö.. ég fer aldrei aftur á skíði og það hefur alveg staðið

Posted:
Fri 09. Feb 2007 10:04
by gunnar
Æfði skíði í næstum tíu ár, mjaðmargrindarbraut mig og þríbraut á mér ökkla og þurfti að hætta. Var kominn með aðgöngu í mjög góðann skóla í Noregi ("skíðamenntaskóla" en varð að hætta við..
Sé reyndar ekki eftir því í dag.

Posted:
Fri 09. Feb 2007 10:59
by Helgi M
Ég er á snjóbretti og mér finnst skemmtilegast að renna mér utan svæðis,, skemmtilegustu staðirnir sem ég hef rennt mér á eru Esjan og Nesjavellir,, Esjan er meira svona long ride en Nesjavellirnir í flestum tilvikum með styttri og brattari brekkur sem að standa ýmis klettabörð uppúr sem skemmtilegt er að nýta


Posted:
Fri 09. Feb 2007 11:28
by Eggert
íbbi_ wrote:æfði alltaf skíði þegar ég var á krakki.. svo einn daginn hugsaði ég djö.. ég fer aldrei aftur á skíði og það hefur alveg staðið
haha... ég las þetta aðeins of hratt...

Posted:
Fri 09. Feb 2007 11:39
by siggik1
haha, það hlítur að vera fríkað
annars man ég þegar ég fór a´skíði oft á ísafirði sem var mjög gaman hef reyndar ekki farið þangað í mörg ár
man eftir að einu sinni fór ég svo hratt að ég gat ekki stoppað mig og ég var orðinn frosinn í andlitinu deyjandi úr hlátri og náði loks að stoppa mig en endaði í spíkat, sem var verulega sárt


Posted:
Fri 09. Feb 2007 11:40
by pallorri
Eggert wrote:íbbi_ wrote:æfði alltaf skíði þegar ég var á krakki.. svo einn daginn hugsaði ég djö.. ég fer aldrei aftur á skíði og það hefur alveg staðið
haha... ég las þetta aðeins of hratt...
Hahaha sama hér


Posted:
Fri 09. Feb 2007 13:26
by íbbi_
ég er náttúrulega frá ísafirði.. að fara á skíði var bara hluti af menninguni

Posted:
Fri 09. Feb 2007 14:03
by Eggert
íbbi_ wrote:ég er náttúrulega frá ísafirði.. að fara á skíði var bara hluti af menninguni
Lestu betur... "þegar ég var á krakki"


Posted:
Fri 09. Feb 2007 14:55
by íbbi_
ég sá það..
það var líka í menninguni


Posted:
Fri 09. Feb 2007 16:14
by Misdo
ég keypti mér einhvað svaka Rosignal bretti sem kostaði ekkert lítið
og ég hef kanski notað það 3-4 sinnum alltaf svo mikið snjóleysi o verið latur við að mæta uppá síðkastið
enn þegar ég fór var það oftast uppí skálafell