Page 1 of 3

Auðkennislykill = Helvíti á jörð

PostPosted: Thu 01. Feb 2007 16:45
by IceDev
Núna er ég hneykslaður

Að þurfa að drattast með einhvern helvítis hlunk í vasanum

Ég er nú með nógu andskoti mikið fyrir

Brátt þarf maður að ganga í svon buxum til að rúma þetta allt fyrir...og ég vil helst ekki líkjast nasista

Image



Svo er erfitt að kveikja á þessu, auðvelt að týna eða skemma þetta, erfitt að nota þetta.....og ég fucking vinn við tölvur..mér ætti að þykja auðvelt að nota þetta enda gadget freak mikið. Mér þykir þetta íþyngjandi á allan hátt

Hvað með ef maður vill ekki nota þetta óhemju mikla drasl?

Ætli það sé möguleiki?

Eitt er víst að á morgun mun ég fara í KB banka og reyna að losa mig úr þessu helvíti á jörðu


Ykkar skoðanir varðandi þetta mál?

PostPosted: Thu 01. Feb 2007 16:54
by Bjarkih
Dálítið heimskulegt að vera að auka umfangið á þessu drasli þegar einfaldari leið er til. Hér í Svíþjóð eru þeir komnir með svona rafræn skilríki sem virka þannig að það er örflaga á bankakortinu manns. Svo bara stingur maður kortinu í kortalesara sem tengdur er við tölvuna. Og getur það verið sami lesari og maður notar til að hlaða inn myndum af mynniskortum og þess háttar.

PostPosted: Thu 01. Feb 2007 16:56
by Eggert
Hvað er þetta og hvaða tilgangi þjónar þessi auðkennislykill? :oops:

PostPosted: Thu 01. Feb 2007 16:56
by siggir
Mér finnst að fólk ætti nú að fá að velja hvort það vill fá þetta dót eða ekki. Ég á allavega ekki nægan pening til þess að finnast þetta réttlætanlegt, það nennir enginn að stela af mér :P

Eins og vinkona mín sagði: fólki er alveg velkomið að brjótast inn í heimabankann minn og borga visareikningana fyrir mig, það er það eina sem er hægt þar :lol:

PostPosted: Thu 01. Feb 2007 17:00
by bjahja
Þú getur náttúrlega notað sms dæmið þegar þú ert ekki með lykilinn er það ekki

PostPosted: Thu 01. Feb 2007 17:07
by IceDev
Eða ég ætti að geta valið hvort að ég noti þetta eða ekki :evil:

PostPosted: Thu 01. Feb 2007 17:22
by Svezel
þessir auðkennislyklar verða bara í notkun í takmarkaðan tíma, rétt og meðan verið er að koma rafrænu skilríkjunum á fót. þetta er bara til að auka öryggi notenda og þannig draga úr netbanka "þjófnaði"

Bjarkih wrote:Dálítið heimskulegt að vera að auka umfangið á þessu drasli þegar einfaldari leið er til. Hér í Svíþjóð eru þeir komnir með svona rafræn skilríki sem virka þannig að það er örflaga á bankakortinu manns. Svo bara stingur maður kortinu í kortalesara sem tengdur er við tölvuna. Og getur það verið sami lesari og maður notar til að hlaða inn myndum af mynniskortum og þess háttar.


umfangið við að koma þessu á fót er margfalt á við þennan auðkennislykil svo ekki sé talað um kostnaðinn. tekur marga marga mánuði

Re: Auðkennislykill = Helvíti á jörð

PostPosted: Thu 01. Feb 2007 17:37
by Hemmi
átt að geta notað gsm sem varaleið, veit samt ekki hvernig það virkar.

Re: Auðkennislykill = Helvíti á jörð

PostPosted: Thu 01. Feb 2007 17:41
by Djofullinn
Hemmi wrote:átt að geta notað gsm sem varaleið, veit samt ekki hvernig það virkar.
Og það kostar 6 kr skiptið :?

Re: Auðkennislykill = Helvíti á jörð

PostPosted: Thu 01. Feb 2007 17:41
by Hemmi
Djofullinn wrote:
Hemmi wrote:átt að geta notað gsm sem varaleið, veit samt ekki hvernig það virkar.
Og það kostar 6 kr skiptið :?


nú er það svoleiðis, isss.

PostPosted: Thu 01. Feb 2007 17:42
by Ingsie
mér finnst þetta bara heimskulegt.. Svo var sagt að maður þyrfti að vera búin að tengja fyrir 29.01, það eru ekki einu sinni allir búnir að fá þetta drasl :roll:

PostPosted: Thu 01. Feb 2007 17:43
by Aron Andrew
Vá munar öllu að vera með lítið stykki í vasanum, helvítis væl í þér Óskar!

Þetta er eins einfalt í notkun og þetta gæti verið!

PostPosted: Thu 01. Feb 2007 17:50
by bjahja
En af hverju í andskotanum hafa þeir þetta ekki svart. Mér finnst þetta bara alltof ljót til að vera með á lyklakippunni minni :?

Re: Auðkennislykill = Helvíti á jörð

PostPosted: Thu 01. Feb 2007 18:07
by ValliFudd
Djofullinn wrote:
Hemmi wrote:átt að geta notað gsm sem varaleið, veit samt ekki hvernig það virkar.
Og það kostar 6 kr skiptið :?

OG... getur bara gert það 3x.. þá þarftu lykilinn... og eftir eitt skipti með lykli geturðu notað sms 3x aftur o.s.frv..:)

PostPosted: Thu 01. Feb 2007 18:22
by bimmer
bjahja wrote:En af hverju í andskotanum hafa þeir þetta ekki svart. Mér finnst þetta bara alltof ljót til að vera með á lyklakippunni minni :?


Þú verður bara fyrstur með moddaðan auðkennislykil :wink:

Shadowline....