Page 1 of 2

Action

PostPosted: Mon 22. Jan 2007 20:23
by Kristjan
Ég og frúin vorum að aka upp gilið á Akureyri áðan þegar við heldur betur sluppum með skrekkinn, ég var kominn í efstu beygjuna þegar svona fimmtugur maður á rauðum Patrol Pikköpp sveigir inn á minn vegarhelming.
Ég rétt náði að beygja til vinstri og 2 bílar sem eru á eftir mér gera slíkt hið sama og það munar svona 5 cm að hann náði að clippa okkur alla.

Nema hvað, ég beygi inn á bílastæðið gegnt sundlauginni og hleypi þessum 2 bílum sem voru á eftir mér frammúr, svo tek ég u beygju og elti fávitann niður gilið, norður drottningabraut, þaðan austur strandgötuna, inn í hverfið niður á eyri og þar keyrir kallfíflið inn í Lundagötu og bakkar inn að fróðasundi 11. Alla leiðina keyrir hann sikksakkandi um allan veg og og er næstum því búinn að keyra aftan á einn bíl og keyrir upp í tvo skafla sem eru á umferðareyjunum á strandgötunni.

Á meðan eltingaleiknum stóð hringdi ég í polizei og lýsti leið hans.

3 mínútum eftir að hann stoppar fyrir utan heimili sitt mætir löggan og böstar kallinn þar sem hann er að reyna opnað húsið sitt með litlum árangri, pikköppinn hans ennþá í gangi og konan mín með sjónaukann að vakta hann.

Löggan hringdi svo í mig og sagði að kallinn hafi slegið met í blóðprufunni því að það hafi legið við því að það væri meira alkóhól en blóð í prufunni.

PostPosted: Mon 22. Jan 2007 20:25
by ömmudriver
Vááá :shock: Heppinn, en djöfull er ég stoltur af þér :clap:

PostPosted: Mon 22. Jan 2007 20:58
by Einarsss
Gott hjá þér :)


Ölvunarakstur er með því alvarlegra sem er í gangi í umferðinni. Algengara en margir halda því miður :(

PostPosted: Mon 22. Jan 2007 21:01
by IceDev
Sagði löggan ekkert við því að þú værir að keyra og tala í símann?

PostPosted: Mon 22. Jan 2007 21:03
by doddi1
ömmudriver wrote:Vááá :shock: Heppinn, en djöfull er ég stoltur af þér :clap:



sammála... GÓÐUR :!: :!: :!:

það á að hækka sektirnar við þessu meira en gert hefur verið...

PostPosted: Mon 22. Jan 2007 21:05
by basten
Vel gert hjá þér!!! Ánægður með svona framtak :clap:


IceDev wrote:Sagði löggan ekkert við því að þú værir að keyra og tala í símann?

Hugsa nú að það sé horft framhjá svona minniháttar brotum þegar meira er í húfi.

PostPosted: Mon 22. Jan 2007 21:06
by basten
*EDIT* Kom 2x hjá mér

PostPosted: Mon 22. Jan 2007 21:32
by siggir
Ánægður að heyra þetta ;)

PostPosted: Mon 22. Jan 2007 22:28
by Djofullinn
Snilld :)

PostPosted: Mon 22. Jan 2007 22:36
by Steini B
einarsss wrote:Gott hjá þér :)


Ölvunarakstur er með því alvarlegra sem er í gangi í umferðinni. Algengara en margir halda því miður :(

Já, þetta er orðið alltof algengt...

Og gott hjá þér Stjáni :D

Kúl

PostPosted: Mon 22. Jan 2007 22:43
by Þórir
Snilld.

Gott hjá þér og gott á gaurinn. Heppinn að drepa engann!

PostPosted: Mon 22. Jan 2007 23:00
by Kristjan
IceDev wrote:Sagði löggan ekkert við því að þú værir að keyra og tala í símann?


Ég var með mörgæsirnar á spíker, svo hefði hann hæglega getað drepið mig, hann á 2 tonna pikköpp full hlöðnum og ég á 1100 kg hondu með tvo bíla á eftir mér sem ég hefði runnið á.

Whiplash anyone?

PostPosted: Mon 22. Jan 2007 23:13
by Helgi M
Um að gera að benda svona til lögreglunnar þó ekki sé mikið meira en grunsemdir í gangi :idea:

PostPosted: Tue 23. Jan 2007 03:37
by ömmudriver
Kristjan wrote:
IceDev wrote:Sagði löggan ekkert við því að þú værir að keyra og tala í símann?


Ég var með mörgæsirnar á spíker, svo hefði hann hæglega getað drepið mig, hann á 2 tonna pikköpp full hlöðnum og ég á 1100 kg hondu með tvo bíla á eftir mér sem ég hefði runnið á.

Whiplash anyone?


:rofl: Djöfull var ég lengi að fatta þennan :lol:

PostPosted: Tue 23. Jan 2007 07:11
by Jón Ragnar
Patrol Pikköp? :lol: