Ég og frúin vorum að aka upp gilið á Akureyri áðan þegar við heldur betur sluppum með skrekkinn, ég var kominn í efstu beygjuna þegar svona fimmtugur maður á rauðum Patrol Pikköpp sveigir inn á minn vegarhelming.
Ég rétt náði að beygja til vinstri og 2 bílar sem eru á eftir mér gera slíkt hið sama og það munar svona 5 cm að hann náði að clippa okkur alla.
Nema hvað, ég beygi inn á bílastæðið gegnt sundlauginni og hleypi þessum 2 bílum sem voru á eftir mér frammúr, svo tek ég u beygju og elti fávitann niður gilið, norður drottningabraut, þaðan austur strandgötuna, inn í hverfið niður á eyri og þar keyrir kallfíflið inn í Lundagötu og bakkar inn að fróðasundi 11. Alla leiðina keyrir hann sikksakkandi um allan veg og og er næstum því búinn að keyra aftan á einn bíl og keyrir upp í tvo skafla sem eru á umferðareyjunum á strandgötunni.
Á meðan eltingaleiknum stóð hringdi ég í polizei og lýsti leið hans.
3 mínútum eftir að hann stoppar fyrir utan heimili sitt mætir löggan og böstar kallinn þar sem hann er að reyna opnað húsið sitt með litlum árangri, pikköppinn hans ennþá í gangi og konan mín með sjónaukann að vakta hann.
Löggan hringdi svo í mig og sagði að kallinn hafi slegið met í blóðprufunni því að það hafi legið við því að það væri meira alkóhól en blóð í prufunni.



Djöfull var ég lengi að fatta þennan