Page 1 of 1

Fullt af gefins BMW mótorhjólum :)

PostPosted: Mon 22. Jan 2007 16:54
by ValliFudd
http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/frett.html?nid=1248649
Fólk hefur flykkst á strendur í Branscombe í Englandi í dag og hefur farið þar um ruplandi því sem rekið hefur í land frá flutningaskipinu MSC Napoli, sem strandaði við Englandsstrendur í síðustu viku. Meðal þess sem fólk hefur haft á brott með sér eru BMW-vélhjól, skór, snyrtivörur, myndbandsupptökuvélar og gírkassar, svo eitthvað sé nefnt.

:lol:

PostPosted: Mon 22. Jan 2007 17:10
by Kwóti
spurning um að fara og rústa öllum vitunum við ísland svo við getum notið svipaðra fríðinda :)

PostPosted: Mon 22. Jan 2007 17:12
by zazou
Alltaf er BMW í fréttunum :lol:

PostPosted: Mon 22. Jan 2007 17:21
by siggir
:lol:

Alveg eins og þegar Víkartindur strandaði. Hellingur af fólki sem gerði sér ferð til að ná í góss. Ég fór með pabba og við náðum í helling af vatnsbyssum :P

PostPosted: Mon 22. Jan 2007 17:31
by bragi1
„Hafnarstofnunin í Branscombe hefur þó varað við því að það sem reki á fjörur tilheyri eiganda flaksins og að þeir sem ekki fari að lögum og tilkynni um það sem þeir hafi tekið, verði sektaðir um 2.500 pund, eða sem svarar tæðum 350.000 krónum.“

Er liðið hjá Mogganum alveg hætt að fara yfir það sem það skrifar?

PostPosted: Mon 22. Jan 2007 17:32
by siggir
bragi1 wrote:„Hafnarstofnunin í Branscombe hefur þó varað við því að það sem reki á fjörur tilheyri eiganda flaksins og að þeir sem ekki fari að lögum og tilkynni um það sem þeir hafi tekið, verði sektaðir um 2.500 pund, eða sem svarar tæðum 350.000 krónum.“

Er liðið hjá Mogganum alveg hætt að fara yfir það sem það skrifar?