Page 1 of 2

Ert þú eða vinnufélagar þínir hálfvitar?

PostPosted: Mon 15. Jan 2007 16:38
by IceDev
Ég vil þakka fíflunum sem voru á gígantískum hvítum Mercedez Benz Sprinter TD sendiferðabílum fyrir að leggja tugi manna í lífshættu með sínum yndislegu tilþrifum í svigi á háumferðartíma

Ég hélt að venjulegt "hnakkasvig" færi í taugarnar á mér en þetta var bara hálfvitalegt.


Að vera á risavöxnum bílum með stór blindsvæði, í hálku, á háannatíma, að race-a við hvorn annan

Ég viðurkenni alveg að ég sé ekkert picture perfect driver en aldrei í mínu litla lífi myndi ég gera svona snarbilaðan hlut...nema að það væri spurning um að heimurinn væri að farast

Þess má til gamans geta að númerin á þessum bílum voru eftirfarandi

Aðalfíflið sem stundaði þetta hvað mest:

ME 576


Minna fífl....en samt sem áður fífl

UA 608

PostPosted: Mon 15. Jan 2007 16:45
by Thrullerinn
..bara tilkynna þetta til yfirvaldsins ;)

PostPosted: Mon 15. Jan 2007 16:52
by IceDev
Það er nú lítið sem þeir geta gert : :(

PostPosted: Mon 15. Jan 2007 16:57
by Einarsss
alveg ómerktir bílar ? ef þeir eru merktir fyrirtæki um að gera hringja og biðja um verkstjóra yfir bílstjórunum

PostPosted: Mon 15. Jan 2007 16:57
by Daníel
Bara hringja í eiganda bílanna (sami eigandi að þeim báðum, fyrirtæki hér í bæ) og tilkynna þennan akstur. Held það komi til með að skila mestum árangri ef þú vilt eitthvað gera í þessu.

PostPosted: Mon 15. Jan 2007 17:12
by Eggert
Hvaða fyrirtæki er með svona hressa ökuþóra?

PostPosted: Mon 15. Jan 2007 18:02
by zazou
Einhverjir gætu nú gert sér Mat úr þessu ef þeir skoðuðu Ekjuna :wink:

PostPosted: Mon 15. Jan 2007 18:03
by Thrullerinn
zazou wrote:Einhverjir gætu nú gert sér Mat úr þessu ef þeir skoðuðu Ekjuna :wink:


Fréttablaðið :) eða DV :twisted:

PostPosted: Mon 15. Jan 2007 18:04
by zazou
Thrullerinn wrote:
zazou wrote:Einhverjir gætu nú gert sér Mat úr þessu ef þeir skoðuðu Ekjuna :wink:


Fréttablaðið :) eða DV :twisted:

Ég ætla ekki að fara að Mata þig.

PostPosted: Mon 15. Jan 2007 18:06
by Aron Andrew
zazou wrote:
Thrullerinn wrote:
zazou wrote:Einhverjir gætu nú gert sér Mat úr þessu ef þeir skoðuðu Ekjuna :wink:


Fréttablaðið :) eða DV :twisted:

Ég ætla ekki að fara að Mata þig.


Haha
http://www.mat.is/

PostPosted: Mon 15. Jan 2007 19:02
by .
voru þetta bara ekki sjúkrabílar :)

Mata hf.

PostPosted: Mon 15. Jan 2007 20:12
by Þórir
Eigandi:

Mata hf.
Sundagörðum 10

s: 412 1300.

Ég hvet þig til að hringja og láta yfirmann vita. Hann getur gert meira en löggi í svona tilviki.

Kveðja
Þórir

PostPosted: Mon 15. Jan 2007 21:41
by Einarsss
nákvæmlega ... EF ég væri atvinnurekandi mundi ég ekki vilja hafa svona bjánaskap á bílum sem tengjast fyrirtækinu á nokkurn hátt.

Slæm auglýsing og hvað eru núna margir komnir með slæma ímynd af Mata t.d ? Sjaldnast sem að fólk tekur eftir góðri þjónustu og talar um það heldur en þegar einhver er t.d að keyra eins og bjáni á bíl fyrirtækisins .. þá er sko búið að finna umræðu efni í kaffinu í vinnunni :shock:

PostPosted: Mon 15. Jan 2007 21:54
by JonHrafn
Löggan gerir akkúrat ekkert þegar tilkynnt er um hitt og þetta. "Við verðum að standa hann að verki" var svarið sem karl faðir minn fékk er hann hringdi útaf bíl á reykjanesbraut.

PostPosted: Mon 15. Jan 2007 23:19
by Schulii
JonHrafn wrote:Löggan gerir akkúrat ekkert þegar tilkynnt er um hitt og þetta. "Við verðum að standa hann að verki" var svarið sem karl faðir minn fékk er hann hringdi útaf bíl á reykjanesbraut.


Eðlilega!! Ef þeir ættu nú að fara að eltast við allt bullið sem þeir fá þá held ég að þeir gerðu fátt annað. Ég yrði nú ekkert sáttur ef ég fengi einhverja lögregluheimsókn af því "einhver" hringdi og sagði að ég hefði verið að gera eitthvað af mér í umferðinni sem þessi maður sá. Kannski er honum bara illa við mig eða var ekki sáttur af því honum fannst ég ekki gefa honum séns í umferðinni eða eitthvað,,,

En on-topic:
Það getur verið alveg óþolandi að sjá hvernig sumir geta hagað sér í umferðinni.. aðallega þegar ökumenn eru að setja aðra en sjálfa sig í hættu!