Page 1 of 1

sambandi við tjon

PostPosted: Sun 14. Jan 2007 18:25
by Kristján Einar
vinur minn er að spá í bíl, eða var framað þessu

þannig er mál með vexti að hann var orðinn heitur fyrir bíl og svo kemst hann að þvi að þetta er tjónabíll

ok flottur bíll lítið keyrður kostar lítið, meikaði alveg sense

allavega, síðan fer hann að checka á þessu hvað hann sé tjónaður og þá segir eigandinn ekki frá hvað hafi skeð..

(nota bene er þetta audi a4)

er einhver leið að komast að því nema bara að eigandinn segi það??

PostPosted: Sun 14. Jan 2007 18:37
by Einsii
Ef eigandinn vill ekki seigja frá hvað hefur komið fyrir bílinn, þíðir það mjög líklega að hann hefur eitthvað að fela..
Seigðu vini þínu að gleima þessum kaupum!!

PostPosted: Sun 14. Jan 2007 18:46
by Djofullinn
Tékka á eigandaferlinum og sjá hvort hann hefur verið í eigu tryggingafélags. Ef hann hefur það þá eiga þeir upplýsingar og líklega myndir af tjóninu.

Ef hann hefur ekki verið í eigu tryggingafélags þá er bara málið að hringja í tryggingafélögin og spyrja hvort að bíll eð þessu númeri hafi verið viðriðinn eitthvað tjón sem þeir hafa bætt. Þá ættir þú að geta fengið upplýsingar um hvenær tjónið varð, hvernig tjónið var, hugsanlega myndir og hvar gert var við bílinn eða hvort tjónið hafi verið borgað út.

En þetta hljómar nú eitthvað fishy ef gaurinn vill ekki segja frá tjóninu...
En síðan getur náttúrulega verið að þetta sé eldgamalt tjón og eigandinn viti ekki einusinni hvernig það var.

PostPosted: Sun 14. Jan 2007 22:15
by JOGA
Getur líka verið að bíllinn hafi komið til landsins sem tjónabíll. Alls ekki ólíklegt ef hann kemur frá USA. Var vinsælt fyrir nokkrum árum.

Er númerið á bílnum nokkuð ZZ-519? Ef svo er þá get ég sagt þér eitthvað en það eru gamlar upplýsingar.

PostPosted: Mon 15. Jan 2007 00:58
by Kristján Einar
JOGA wrote:Getur líka verið að bíllinn hafi komið til landsins sem tjónabíll. Alls ekki ólíklegt ef hann kemur frá USA. Var vinsælt fyrir nokkrum árum.

Er númerið á bílnum nokkuð ZZ-519? Ef svo er þá get ég sagt þér eitthvað en það eru gamlar upplýsingar.


nei það er xx-576 man ekki fyrstu 2

http://www.bilasolur.is/Main.asp?show=C ... _ID=104506

PostPosted: Mon 15. Jan 2007 01:29
by Tommi Camaro
hef bíllinn er með réttar rifur og og ekkert skrítinn í hurðum eða neitt svoleiðis
þá myndi ég bara kaupa hann , farðu bara með bíllinn á réttingarverkstæði og látu taka hann út.

PostPosted: Mon 15. Jan 2007 02:07
by xtract-
vinur minn er lika ad spa eitthvad i thessum bil, gaejinn sem a hann er eitthvad grunsamlegur sagdi hann :s