Page 1 of 2

Grænir bílar

PostPosted: Thu 11. Jan 2007 21:46
by basten
Jæja, nú verð ég ábyggilega "flame-aður" í tætlur.

Er einhver litur sem menn þola ekki á bíla eða finnst almennt mjög ljótur?

Persónulega þoli ég ekki grænan lit á bíla, sérstaklega þýskt eðalstál. Dökkgrænn og flöskugrænn finnst mér sérstaklega slæmur og ekki bætir úr skák að það er drulluerfitt að halda þeim hreinum. Þá myndi ég frekar fara alla leið og fá mér bara svartan sem líka er erfitt að halda hreinum en er allavega flottur.
En eins og ég segi oft þá er þetta bara mitt álit og auðvitað eru margir sem vilja hafa bílana sína græna, það er bara liturinn sem ég þoli ekki á bíla :wink:

PostPosted: Thu 11. Jan 2007 21:53
by arnibjorn
Sammála!

Mér finnst grænir bílar oftast koma illa út.

Eiginlega eini græini liturinn á BMW sem mér finnst flottur er moreagrun metallic. Eins og gamli bíllinn hans Arons Andrew.

PostPosted: Thu 11. Jan 2007 21:54
by Kristján Einar
breskir bílar = british racing green!

PostPosted: Thu 11. Jan 2007 21:54
by jens
Get ekki svarað þessu, finst mismunandi litir hæfa mismunandi bílum.

PostPosted: Thu 11. Jan 2007 22:14
by Hannsi
Sorry Inga en ég verð að segja Gulur :P

PostPosted: Thu 11. Jan 2007 22:15
by bjornvil
Ég er ekki mikill aðdáandi grænna bíla heldur. Það fer algerlega eftir tegund bílsins. Einu bílarnir sem bera grænan lit vel eru breskir bílar. Ég veit ekki afhverju, hvort það sé út af því að einkennislitur breskra kappakstursbíla var áður fyrr grænn, sbr British Racing Green. Eða að þeir séu oftar kynntir eða myndaðir í grænum lit.

Jaguar, Aston Martin, Lotus o.s.frv. þessir mega alveg vera grænir og stoltir af því, þá náttlega þessi klassíski flotti British Racing Green :)

Gott
Image

Klassík
Image

Ekki svo gott :oops:
Image

PostPosted: Thu 11. Jan 2007 23:53
by íbbi_
mér finnst grænt flott, en ég alveg hata gula bíla, þessi litur hreinlega eyðileggur bíla

PostPosted: Fri 12. Jan 2007 00:00
by ValliFudd
Googlaði

BMW green

Fékk þetta :lol:
Image


En án kjánaskaps... þá myndi ég ekki beint velja mér t.d. olive-green Z4 :?
Image

En ég fílaði þennan t.d. mjööög svo!
Image

PostPosted: Fri 12. Jan 2007 00:03
by Aron Andrew
Mér finnst grænn oft koma mjög vel út, var td hrikalega hrifinn af litnum á mínum gamla :)
Image

PostPosted: Fri 12. Jan 2007 00:05
by saemi
Ég SLEFA yfir dökkgrænsanseruðum E24 með dökkdökkgrænni innréttingu. Það var einn svona M635csi á mobbanum einu sinni. .. . svona er ég skrýtinn.

EN ég þoli ekki bláar innréttingar!

PostPosted: Fri 12. Jan 2007 00:15
by gstuning
Image

Ég fíla svona, subtle litur enn samt öðruvísi

Image

PostPosted: Fri 12. Jan 2007 00:23
by Angelic0-
Get ekki sagt að mér finnist neinn af þessum litum ljótur...

finnst t.d. grænn E39 sem að frændi minn á einn fallegasti E39 bíll landsins... og athugið að hann er með GULAN ljósapakka og það fer honum einstaklega vel... algjört beauty queen ;)

hinsvegar finnst mér yfirleitt ljósgrænir litir ljótir... og samt verður GMC málaður Kawasaki Green ;)

PostPosted: Fri 12. Jan 2007 00:29
by Henbjon
Ég elska græna lambóa 8)

Image

PostPosted: Fri 12. Jan 2007 01:30
by Twincam
Eruði að segja að grænn litur sé ljótur á bíla?


drep ykkur alla! :burn:




:bawl:

PostPosted: Fri 12. Jan 2007 01:44
by Eggert
Lambó má vera í hvaða lit sem er...

En græna og gula bíla yfirleitt þoli ég ekki. Og fyrst að um 70% bíla á Íslandi eru silfraðir þá hef ég mjög takmarkað þol á silfruðum.