70 þús í sekt fyrir reykspól
70 þúsund króna sekt fyrir að reykspóla
Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í 70 þúsund króna sekt fyrir að aka bíl óvarlega og of hratt miðað við aðstæður frá bílastæði inn á Austurveg á Selfossi reykspólandi þannig að mikill hávaði og ónæði varð af akstrinum. Í kjölfarið missti maðurinn stjórn á bílnum sem snérist í heilan hring og olli þannig hættu fyrir aðra umferð.
Atvikið náðist á myndband sem lagt var fram í dómnum. Fram kemur í niðurstöðu dómsins, að ökumanninum hafi gefist kostur á að ljúka málinu án dómsmeðferðar með því að greiða 35 þúsund króna sekt og fá 25% afslátt á sektinni ef hún yrði greidd innan mánaðar. Við því varð ökumaðurinn ekki og því var gefin út ákæra.
mbl.is
Ok, hann missti stjórn á bílnum og olli hættu - og persónulega finnst mér reykspól ansi hvimleitt ef það er bara til þess að spóla. En með skemmtilegan bíl þá er maður auðvitað spólandi út um allar trissur og ansi hætt við því að maður verði hálfgerður útlagi
Margt gott í þessari nýju löggjöf en það er spurning hvort umburðarlyndið sé alveg fokið út í veður og vind og skuldinni skellt á bílaáhugafólk eftir slysaöldu ársins.