Kærður fyrir að henda rusli!!! LOKSINS!
Reykjavík, sem lengi hefur verið ein sóðalegasta borg sem ég þekki í það minnsta nýtur nú góðs af nýrri lögreglusamþykkt og nú má loksins sekta slúbberta og sóða fyrir að henda rusli út um gluggan á bílnum.
Mér finnst alveg magnað að hvuttinn hafi verið sektaður um líklega 5 þúsund kall fyrir að henda gos dós á götuna - hann gerir það örugglega ekki aftur
Það er eins gott að læra annað hvort að kyngja (tyggjóinu) eða vonast til að ruslatunnum fjölgi svo maður þurfi ekki að japla á bragðlausu jórturgúmmíi!
Kærður fyrir sóðaskap
Lögreglan í Reykjavík kærði í gær sautján ára pilt fyrir sóðaskap en pilturinn henti gosdós út um bílglugga á gatnamótum í miðbænum. Með því braut hann 8. grein lögreglusamþykktar Reykjavíkurborgar en í henni segir m.a: Enginn má fleygja rusli á almannafæri nema í þar til gerð ílát. Pilturinn á nú sekt yfir höfði sér.