Page 1 of 1

Flutningur milli landa..

PostPosted: Mon 04. Dec 2006 18:30
by ValliFudd
Veit einhver hvað myndi kosta að láta senda eitt stk. stuðara eða svo frá de og hingað heim?

PostPosted: Mon 04. Dec 2006 18:41
by Bjarkih
Ég er ekki það brattur í þýskunni að ég geti fundið útúr þessu á stuttum tíma en þú getur allavega kíkt á þessar síður: http://www.dhl.de/dhl?tab=1&skin=hi&check=yes&lang=de_DE&xmlFile=3001027 http://www.deutschepost.de/dpag?tab=1&skin=hi&check=yes&lang=de_DE&xmlFile=1004205

PostPosted: Mon 04. Dec 2006 18:42
by Kristjan
Stórir hlutir geta verið ansi dýrir í flutningi, þó þeir séu léttir þá er þetta mælt í rúmmáli.

PostPosted: Mon 04. Dec 2006 19:24
by srr
Kristjan wrote:Stórir hlutir geta verið ansi dýrir í flutningi, þó þeir séu léttir þá er þetta mælt í rúmmáli.

Tveir hliðarsílsar sem vega 5 kg, reynast vera 67kg í rúmmálsvigt :(
Og 67kg pakki frá DE er DÝR flutningur :!:

PostPosted: Mon 04. Dec 2006 19:31
by Geirinn
srr wrote:
Kristjan wrote:Stórir hlutir geta verið ansi dýrir í flutningi, þó þeir séu léttir þá er þetta mælt í rúmmáli.

Tveir hliðarsílsar sem vega 5 kg, reynast vera 67kg í rúmmálsvigt :(
Og 67kg pakki frá DE er DÝR flutningur :!:


Þá er málið að grípa tækifærið þegar einhver er að flytja inn bíl.... fá að setja það með.

Gallinn er bara sá að fólk auglýsir sjaldnast bílkaup með það góðum fyrirvara.

Btw. Þessu er ekkert sérstaklega bent til þín... bara almennt :)

PostPosted: Mon 04. Dec 2006 19:36
by ValliFudd
ég er reyndar ekki að fara að flytja neitt inn, spyrja fyrir annan :wink:
En já, það væri reyndar ekki vitlaust.. Senda bara allt sem maður kaupir á Smára eða Georg og láta þá troða þessu í einhvern af bílunum sem þeir senda hingað :lol:

En já, það væri reyndar ekki vitlaus hugmynd og líklegast ódýrast, troða þessu í bíl sem er á leiðinni hingað..

PostPosted: Mon 04. Dec 2006 20:10
by srr
Geirinn wrote:Þá er málið að grípa tækifærið þegar einhver er að flytja inn bíl.... fá að setja það með.

Gallinn er bara sá að fólk auglýsir sjaldnast bílkaup með það góðum fyrirvara.

Btw. Þessu er ekkert sérstaklega bent til þín... bara almennt :)

Tek þetta ekkert til mín, enda týmdi ég ekki að borga þetta háan flutning.

Og já, ég auglýsi hérmeð eftir aðila til að taka þetta með sér heim.
Einhver á leiðinni að ná sér í bíl til DE/NL ? :lol:

PostPosted: Tue 05. Dec 2006 23:13
by Alpina
ValliFudd wrote: Senda bara allt sem maður kaupir á Smára eða Georg og láta þá troða þessu í einhvern af bílunum sem þeir senda hingað :lol:

..


HAHAHA,, þessi er góður

ég get ekki beðið eftir að LUDVIGSSON lesi þetta

og hvað ætti fólk að borga :woo: :woo: :woo: