bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Bílavísur https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=18300 |
Page 1 of 1 |
Author: | Alpina [ Sun 05. Nov 2006 20:54 ] |
Post subject: | Bílavísur |
Var að tæma símann minn og set þetta að gamni hér inn til fróðleiks og uppörvunar,, smá skilgreining fylgir hverri,, og eru þær ekki í tímasettri röð,, heldur héðan og þaðan.. Bæði er um ferskeytlur (4 línu) og limrur (5 línu)að ræða 1) þarna voru sæmi og onno á leið niður á hringinn, ný búnir að sækja S/C ONNO Þruman bláa þræðir braut þrýstir menn í sæti sem þota framhjá öllu þaut þeir ýlfruðu af kæti. ----------------------------------- 2) sama tilefni. sæmi sendi eitthvað sem stemdi ekki alveg,, en ég sendi þetta til baka, Fjandi vel vinnur virkilega finnur stífur er og stinnur sterkur hann spinnur ----------------------------------- 3) sendi þessa þegar sæmi var búinn að ná í IMOLA og var í farþegasætinu hjá Þórði Sæmi í bílnum þar situr segist þó ei vera bitur í huga hans þýtur sú hugsun er lýtur um rennwagen sem rauður er litur --------------------------------------- 4) til Refsibræðra ((í gríni)) Á hringinn hrottar fara brátt hræðslu þar þeir vekja segast koma í friði og sátt sögusagnir hrekja ---------------------------------- 5) til Refsibræðra er þeir fóru í skoðunar túr hjá ALPINA Í Buchloe þorpi í Bayernland Bovensiepen stjórnar gríðarlega gerir grand grænu og bláu fórnar. -------------------------- 6) þegar refsibræður lentu í jailinu (( ![]() ![]() ![]() Í dyflissu þeir dúsa nú daprir á mömmu gráta stutt er síðan stundin sú stelpur í líki stráka --------------------------- 7) Refsibræður á A7 Á hraðbrautum þeir hroka sýna hrækja löggu fésið í svæsnir fyrir alla svína sveittir buffa herja á ný. -------------------------------- ![]() Á roadster ryðja fólk úr vegi rupla gamalmenni svo dissa jafn á nóttu sem degi dólgar sem sig eigi þvo ---------------------------------------- 9) Enn og aftur Refsibræður Ruddalegir refsibræður ráðast inn á meginland fantar líkt og fuglahræður fúlir berja fólk í bland --------------------------------------- 10) Þórður hafði á orði að þegar hann náði í S/C ONNO og mátti bara fara í 4000 rpm og var að raða inn km, til að hann gæti FLOORAÐ búrið,, væri líkt og þegar porno fan væri með Jennu James fyrir framan sig nakta og ready og mætti ,,,,BARA ,,,,, horfa Jenna James í sínu veldi játast vill nú onno brátt stappar stál að loknu kveldi stjarfur jafnast á við drátt. -------------------------------- 11) þessa sendi Svezel á mig er þeir voru á hótelinu um kvöldið og vísurnar gengu á milli Nürburgring og Íslands ((helvíti góð hjá honum)) Staðnir saman stöðugir stinga saman nefjum fákar bara fjörugir fengin enginn sefjun ----------------------------- 12) sæmi sendi þessa að ári hérna verðum við allir hressir saman erfið er samt þessi bið en guð hvað verður gaman --------------------------------- 13) sæmi sendi líka þessa ((MJÖG góð)) Sitja saman fjórir hér samt þá vantar suma gaman hérna þætti þér þú þig mundir pluma -------------------------------- 14) Þessi sendi Smári Ludvigsson er hann var að ná í M5 ((silverstone)) Fantagóð er fimman sú fyrst þú þarft að spyrja allt með stæl er staðið nú strokkar átta kyrja ---------------------------------- 15)Þessa sendi ég á marga er ég keypti E500 Hálfan Porsche hef ég nú hurðar fjórar lokast hestöfl yfir hundruð þrjú helling áfram mokast. ------------------------------- 16) fékk þessa um hæl frá Smára Hálfan Porsche hef ég keypt hurðar lokast fjórar hesti hef ég áður hleypt helling klárinn þjórar. ---------------------------- 17) Smári sendi þessa þegar ég fór frá honum og hringdi svo í hann og sagðist hafa tekið 996 cabrio á ferðinni ((mega sáttur)) Feykigóð vísa sem sannarlega átti vel við Með breiði brosi burtu fer, brunar benzinn hlaðinn Sveinka draumur svartur er sver skal hann nú staðinn -------------------------------- 18) Að lokum ný útgáfa af Snatavísum eftir Smára Ludvigsson sem setti þær hreint meistaralega í þessa útgáfu eftir að ég var búinn að ganga með votan draum um að fá OZ undir E500, sem varð að veruleika eftir að mikil vísuskot báru tilætlaðann árangur heyrðu mig nú miðlari mæti vinur kæri blóðlangar í blingari blakkur vel þær bæri jæja þá í þetta sinn þér er heimilt álið mikils met ég vinskapinn mestu skiptir málið LOKAORÐ,, Refsibræður fengu það óþvegið en sumt ..ekki... allt er skáldskapur og er vonast að lesendur sjái í gegn um þá þætti ![]() ps.. hellingur og meira er til en látum þetta duga |
Author: | Qwer [ Tue 07. Nov 2006 10:24 ] |
Post subject: | |
Djöfull eru menn duglegir við að semja... Glæsilegt |
Author: | JonHrafn [ Tue 07. Nov 2006 20:03 ] |
Post subject: | |
skemmtileg lesning |
Author: | gulli [ Wed 08. Nov 2006 03:57 ] |
Post subject: | |
![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |