Styrktartónleikar

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Styrktartónleikar

Postby basten » Sun 05. Nov 2006 19:19

Fékk þetta sent og vildi koma þessu á framfæri, en þarna er um að ræða 4 ára gamla stelpu sem er með illkynja heilaæxli.


Þuríður Arna greindist með illvíga flogaveiki í október 2004 og í kjölfarið fundust æxli í höfði hennar sem á þeim tíma voru greind góðkynja.Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur ekki tekist að vinna bug á meini hennar og nú er svo komið að æxlið er skilgreint sem illkynja og útlit fyrir að frekari meðferðarúræði séu ekki fyrir hendi. Nú ætlum við að leggjast á eitt og safna fjármunum til að hún og foreldrar hennar geti átt góðar stundir saman.

Tónleikar
Til styrktar og heiðurs Þuríði Örnu Óskarsdóttur í Bústaðarkirkju Miðvikudaginn 8. nóvember kl 20.

Fram koma
Stebbi og Eyfi, Regína Ósk, Garðar Örn Hinriksson, Signý Sæmundsdóttir, Jóhann Friðgeir, Hanna Þóra og Ólöf Inga Guðbrandsdætur.

Ásamt
Guðmundi Sigurðssyni, Vilhelmínu Ólafsdóttur, Matthíasi Baldurssyni og Guðmundi S Sveinssyni

Kynnir verður
Anna Björk Birgisdóttir

Aðgangseyrir 2000 kr
Allt fé sem safnast á tónleikunum rennur óskert til Þuríðar Örnu og fjölskyldu hennar.




Þeir sem sjá sér ekki fært að komast en vilja leggja þessu einstaka málefni lið, geta lagt inná þennan reikning:


525-14-102022 og kt: 200502-2130
Siggi
basten
Getawaybílstjóri
 
Posts: 860
Joined: Sat 16. Nov 2002 04:45
Location: Reykjavík

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 49 guests