Kæra vinir látið þetta ganga á alla í netfangaskráni ykkar.
Mér datt í hug að setja í gang svona tölvupóstkeðju vegna þess að hundinum hans bróður míns var stolið fyrir utan verslunarmiðstöðina í Gerðubergi í gærkvöldi þar sem hann brá sér inn á stað þar, hann batt hann kirfilega við grindverk þar fyrir utan. Sjónarvottar sáu einhverja menn losa hundinn og labba með hann í burtu þannig að það er ekki ágiskun að honum hafi verið stolið. Maður bara skilur ekki hvernig þetta þjóðfélag er að verða þegar farið er að stela heimilisvinum fólks nánast beint fyrir framan nefið á manni.
Nú treysti ég á mátt netsins að þetta berist hratt út og einhverjir nágrannar þessa ógæfufólks sem ekki getur séð eigur fólks í friði og er farið að ganga það langt að taka ófrjálsri hendi heimilisdýr í von um að fá pening eða hvað, maður spyr sig hvort að það fari að styttast í að þetta lið fari að taka börnin okkar.
Hann Lúlli er Cavalier King Charles Spaniel hundur, hvítur og rauðbrúnn, sjá meðfylgjandi mynd sem reyndar er nú ekki kannski alveg fullkomin en sýnir svipinn á honum sem er svo vinalegur og það er nú einmitt vandamálið að hann er svo góður við alla að hann hefur ekki einu sinni gelt að þessu liði.
Þeir sem einhverjar upplýsingar geta snúið sér til undirritaðs eða Halldórs Pétur í síma 894-4248. Eða þá bara til Lögreglunnar.
Kveðja
Þorsteinn Þorsteinsson
Gsm-863-1129
