bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Var rétt að refsa Alonso? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=17396 |
Page 1 of 1 |
Author: | ta [ Thu 14. Sep 2006 23:39 ] |
Post subject: | Var rétt að refsa Alonso? |
Íþróttir | mbl.is | 10.9.2006 | 11:41 Quote: Alonso: Ég lít ekki lengur á formúlu-1 sem íþrótt
Fernando Alonso, heimsmeistari ökuþóra í formúlu-1, segist ekki lengur líta á formúluna sem íþrótt eftir að honum var refsað í gær fyrir að hafa hindrað för Felipe Massa hjá Ferrari í tímatökunum í Monza í gær. Renaultþórinn átti erfitt með að verjast því að tárast á fjölmennum blaðamannafundi í mótorheimili Renault í morgun. Hann segir ákvörðun Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) að svipta hann þremur hröðustu hringjum sínum í tímatökunum í gær hafa breytt skoðun sinni á því hvað formúla-1 væri. „Ég ók minn hring án þess að hindra einhvern af ásettu ráði. Ég elska íþróttina, ég dái stuðningsmennina sem flykkjast hingað, fjöldi þeirra er frá Spáni, en ég lít ekki lengur á formúlu-1 sem íþrótt,“ sagði Alonso. Hann var harður á því að hann hefði ekki hindrað Massa vísvitandi og sagði að fyrst honum hafi verið refsað fyrir það sem átti sér stað í Monza myndu að líkindum koma upp vandamál í framtíðinni. „Ef þið skoðið myndbandið og þetta er vísvitandi hindrun þá eigum við eftir að upplifa helling af vandamálum héðan í frá í tímatökum. Ef þetta er hindrun þá skil ég ekki hvernig við eigum að keppa í dag ef þetta er of lítið bil milli bíla,“ sagði Alonso og sýndi myndbandsupptöku úr bíl Massa. Renaultstjórinn Flavio Briatore var einnig harður á því að Alonso hefði ekki tafið för Massa af ásetningi - og sagði hann hafa veriði að ljúka úthring á mikilli ferð til að komast yfir endamarkið áður en köflótta flaggið félli til marks um að tímatökunni væri lokið. „Þið vitið að Fernando varð fyrir því að dekk bilaði, hann kom inn að bílskúr, við kíktum á bílinn og það var nánast hættulegt að senda Fernando út aftur. En við erum að keppa um heimsmeistaratitla og áhorfendur þurfa að fá skemmtan. Þess vegna unnum við íþróttinni, það er ástæðan fyrir því að Fernando ók af stað aftur og náði í tæka tíð áður en flaggið féll og bætti sinn besta tíma um sekúndu. Við sögðum honum að aka úthringinn eins og það væri tímahringur því eftir að hafa kíkt á skrokkinn og fjöðrunina vorum við virkilega á nippinu með að ná yfir marklínuna. Hann skilaði fullkomnu verki og hafði engan hug á því að tefja Massa. Við deilum ekki við ákvörðunina en við segjum ykkur hver afstaða okkar til málsins er - það hryggir okkur að þetta skyldi hafa gerst og Fernando tók áhættu að gera aðra tímatilraun,“ sagði Briatore. |
Author: | Gunni [ Fri 15. Sep 2006 08:51 ] |
Post subject: | |
Á hann að hafa verið að hindra hann á þessu myndskeiði ![]() Ef svo er þá er þetta ótrúlegt! |
Author: | Geirinn [ Fri 15. Sep 2006 08:58 ] |
Post subject: | |
Hum það er svo mikið bil á milli þeirra að ég myndi ósjálfrátt halda að þetta sé ekki rétt myndband ??? Nú ef þetta er það atvik sem er dæmt á ... þá er þetta bara bull að mínu mati. Massa átti ekki breik. |
Author: | Kristján Einar [ Fri 15. Sep 2006 09:24 ] |
Post subject: | |
ef einhver horfði á f1 þáttin þá kom góð útskýring eins og ég sagði þar sjálfur tel ég massa frekar hafa grætt á þessu útaf mesta hraða sínum á langa beina kaflanum! hinnsvegar er það rétt sem ferrari halda fram held ég í seinustu beygjunni, sem er mjög löng og hröð, þá þurfa þeir allt það downforce sem þeir geta fengið, þessir bílar nota svo mikið af loftsameindum til að þrýsta sér niður að þegar þeir hafa keyrt í gegnum loftið fer það soldið í "rugl" og þá er ekki jafn mikið af sameindum í aksturslínunni í örfáar sekúndur, massa keyrir s.s í gegnum þynnra loft sem veldur því að hann fær ekki jafn mikið af því í gegnum vængina sem skilar honum þá minna downforce |
Author: | gdawg [ Fri 15. Sep 2006 11:06 ] |
Post subject: | |
Ef maður notar bara videoið til að dæma um þetta, finnst mér persónulega erfitt að segja að Alonso hafa verið fyrir Massa í þessum hring. Dómurinn byggir hins vega á upplýsingum úr bílunum og skv. Max Mosley (FIA) fór Massa hægar en venjulega í gegnum síðustu beygjuna, en hins vegar segir Pat Symmonds (Renault) að Massa hafi farið hraðar. Báðir tala um að hafa séð upplýsingar úr tölvunni í bílnum hans Massa... hver veit!!? Allavega, ef Alonso skemmdi hringinn hans Massa, þá gerði hann það svo snyrtilega að það hefði í raun átt að leyfa honum að komast upp með það!! |
Author: | iar [ Fri 15. Sep 2006 18:22 ] |
Post subject: | |
Massa er bara kjúklingur og guggnar aðeins þarna í síðustu beygjunni! ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |