bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Sjá hvernig löggan leggur!!! https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=16925 |
Page 1 of 2 |
Author: | asgeirholm [ Sat 19. Aug 2006 14:27 ] |
Post subject: | Sjá hvernig löggan leggur!!! |
Sjá Hvernig Keflavíkur löggan leggur í bílastæði!!! ![]() |
Author: | HPH [ Sat 19. Aug 2006 14:31 ] |
Post subject: | |
Þetta er í lægi svo lengi sem hún er með trommu kjuða ofaná mælaborðinu. ![]() öruglega ekki margir sem fatta þennan. |
Author: | burgerking [ Sat 19. Aug 2006 14:41 ] |
Post subject: | |
Ég á nokkrar myndir af löggum að leggja í fatlaðastæði hérna fyrir utan í vinnunni þegar þeir eru að ratarmæla ![]() ![]() |
Author: | Aron Andrew [ Sat 19. Aug 2006 15:46 ] |
Post subject: | |
HPH wrote: Þetta er í lægi svo lengi sem hún er með trommu kjuða ofaná mælaborðinu.
![]() öruglega ekki margir sem fatta þennan. ![]() |
Author: | Fjarki [ Sat 19. Aug 2006 15:59 ] |
Post subject: | |
Þetta er fyrir utan Brimborg og efast um að þeir hafi lagt þarna sjálfir. |
Author: | IvanAnders [ Sat 19. Aug 2006 16:00 ] |
Post subject: | |
ég er ekki trommari og þekki engan trommara, þannig að ég hef engra hagsmuna að gæta, en trommarabrandarar eru það slakasta sem að ég hef heyrt! ![]() |
Author: | Thrullerinn [ Sat 19. Aug 2006 17:41 ] |
Post subject: | |
Fjarki wrote: Þetta er fyrir utan Brimborg og efast um að þeir hafi lagt þarna sjálfir.
Mér sýndist það ![]() |
Author: | ice5339 [ Sat 19. Aug 2006 20:01 ] |
Post subject: | |
Þetta er nú svolítið leim að mynda bílinn þarna fyrir utan og kvabbast í keflavíkurlöggunni. Bíllinn er vafalaust í viðgerð og verkstæðismenn eru eflaust að færa bílinn inn og út osf. |
Author: | Hannsi [ Sat 19. Aug 2006 20:03 ] |
Post subject: | |
kannski verið að fixa vegna þess að það var stelpa sem klesti á hann ![]() |
Author: | ömmudriver [ Sun 20. Aug 2006 02:31 ] |
Post subject: | |
Nauts Maður!!!!!!!!!!! Ég er örugglega búinn að verma aftursætin í þessum eitthvern tímann ![]() ![]() |
Author: | Bjarkih [ Sun 20. Aug 2006 09:00 ] |
Post subject: | |
HPH wrote: Þetta er í lægi svo lengi sem hún er með trommu kjuða ofaná mælaborðinu.
![]() öruglega ekki margir sem fatta þennan. Verð eiginlega að bæta þessum við: Hver er besta leiðin til að rugla trommuleikara þegar hann er að spila? Þú setur nótnablað fyrir framan hann. En hvernig er best að stöðva trommuleikara þegar hann er að spila? Þú skrifar einhverjar nótur inná nótnablaðið. Vil taka það fram að ég hef ekkert á móti trommurum, ég hef bara alltaf verið hrifinn af svona bröndurum. |
Author: | Kristjan PGT [ Wed 23. Aug 2006 21:07 ] |
Post subject: | |
Hefurðu heyrt af trommaranum sem útskrifaðist úr menntaskóla? Ekki? Ekki ég heldur ![]() |
Author: | ValliFudd [ Wed 23. Aug 2006 21:24 ] |
Post subject: | |
Hvernig veistu hvenær trommuleikari er að banka á dyrnar hjá þér? Hann heldur ekki takti ![]() |
Author: | Jón Ragnar [ Wed 23. Aug 2006 23:22 ] |
Post subject: | |
HAHAHA! ![]() Ég fann síðu einu sinni með þúsundum trommuleikarabröndurum! Djöf var það gaman ![]() |
Author: | Bjarkih [ Thu 24. Aug 2006 09:22 ] |
Post subject: | |
Ætli maður setji ekki bara allann skamtinn hérna ![]() Hvað kallarðu trommuleikara með greindarvísitöluna 56? Vel gefinn. ________________________________________ Afhverju þurfa hljómsveitir rótara? Til að hafa einhvern til að þýða það sem að trommuleikarinn segir. ________________________________________ Hvað þarf marga trommuleikara til að skrúfa í ljósaperu? Bara einn, svo lengi sem rótarinn nær í stigann .. setur hann upp ... og kemur perunni fyrir í perustæðinu. ________________________________________ Óli Hólm trommari, var orðinn þreyttur á því hversu lítið er alltaf gert úr trommuleikurum, þannig að hann ákvað að fara inn í Rín og skipta um hljóðfæri. "Ég ætla að fá rauða trompetinn þarna .... og láttu mig líka fá harmonikkuna.", segir Óli við Magga Eiríks. "Óli minn ... þú mátt fá slökkvitækið, en þú lætur ofninn í friði"!! ________________________________________ Hver er besta leiðin til að rugla trommuleikara þegar hann er að spila? Þú setur nótnablað fyrir framan hann. En hvernig er best að stöðva trommuleikara þegar hann er að spila? Þú skrifar einhverjar nótur inná nótnablaðið. ________________________________________ Ingó "grís" labbar inn í búð. "Ég ætla að fá einn svona Marshall Hiwatt AC30 amplificatior og einn Gobson StratoBlaster gítar með Fried Rose tremóló?" "Bíddu við ... þú ert trommuleikari ... er það ekki" "Duh, jááá .. hvernig vissirðu það?" "Þetta er ferðaskrifstofa" ________________________________________ Hvað þarf marga trommuleikara til að skipta um ljósaperu? Bara einn, en aðeins eftir að hann spyr .. "Afhverju?" ________________________________________ Ef að það lægi þúsundkall á gólfinu, og í kringum hann stæðu Jólasveinninn, álfur, góður trommari og lélegur trommari, hver mundi þá ná þúsundkallinum? Lélegi trommarinnn, þar sem hinir þrír eru ekki til. ________________________________________ Hvað gerist ef þú blandar saman trommuleikara og górillu? Mjög heimska górillu (ta-ta-búm-splassshh!) ________________________________________ Hversu marga trommuleikara þarf til að skrúfa í ljósaperu? Engann .... það er líka búið að búa til vél sem gerir það. ________________________________________ Afhverju er trommuheili betri en trommuleikari? Hann heldur takti og sefur ekki hjá kærustunni þinni. ________________________________________ Hversu marga trommuleikara þarf til að skúfa í ljósaperu? Fimm. Einn til að skrúfa í peruna og fjóra til að tala um hve miklu betur Vinnie Caliutta hefði gert þetta!!!!!!! ________________________________________ Afhverju eru trommuleikarar með einni fleiri heilafrumu en hestar? Svo þeir kú** ekki á götuna í skrúðgöngunni. ________________________________________ Hefurðu heyrt um trommuleikarann sem kláraði menntaskólann? Ekki ég heldur (ta-ta-ta-búmm-búmm-splashhh!) ________________________________________ Afhverju er pásurnar hjá hljómsveitum aldrei lengri en 20 mínútur? Svo það þurfi ekki að þjálfa trommarann upp á nýtt. ________________________________________ Afhverju setja gítarleikarar trommukjuða í mælaborðið á bílnum sínum? Svo þeir geti lagt í stæði fyrir fatlaða. ________________________________________ Jói Hjörleifs sagði við mömmu sína: "Ég ætla að verða trommuleikari þegar ég verð fullorðinn." Mamma: "En Jói minn, þú getur ekki orðið bæði." ________________________________________ Hvað kallarðu týpuna sem hangir alltaf í kringum hljómsveitir? Trommuleikara. ________________________________________ Hvernig veistu þegar trommuleikari ber að dyrum hjá þér? Hann missir taktinn á fjórða högginu. ________________________________________ Hvernig veistu þegar að trommuleikari er fyrir utan heima hjá þér? Hann veit ekki hvenær hann á að koma inn. ________________________________________ Hefurðu heyrt um gítarleikarann sem var á leiðinni á gig og læsti lyklana inn í bílnum. Það tók hann tvo tíma að ná trommuleikaranum út. ________________________________________ Afhverju er trommusóló eins og hnerri? Þú veist að það er á leiðinni en það er ekkert sem þú getur gert við því. ________________________________________ Hvað er það síðasta sem að trommuleikari segir í hljómsveit? "Hei strákar ... ég er með hugmynd?" ________________________________________ Hvað sagði trommuleikarinn þegar hann fékk fyrsta fasta starfið sitt? "Má bjóða þér franskar með þessu?" |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |