Úff.. ömurlegt að lenda í svona rugli.
Þetta er mjög líklega sjálfvirkt innbrot, þ.e. ormur sem dreifir sér á spjallborð sem ekki hafa verið uppfærð og eru þarafleiðandi með öryggisholur sem hægt er að misnota.
Ef svona spjallborð eru ekki uppfærð mjög reglulega þá er verið að bjóða svona hættu heim. Maður sér þetta í loggum að það er endalaust verið að banka og reyna að misnota öryggisholur.
Vona að þeim gangi vel að losna við óværuna!
PS: Smá ábending til þeirra sem heimsækja vefinn, vissara að vera með vel uppfærða tölvu, vírusvörn o.þ.h. og líka sérstaklega browserinn því svona innbrot hafa stundum verið að setja inn á vefinn orm eða vírus sem dreifir sér inn á tölvur í gegnum öryggisholur í browsernum hjá þeim sem heimsækja vefinn.