bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

don´t drink and drive
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=16522
Page 1 of 1

Author:  X-ray [ Fri 21. Jul 2006 02:40 ]
Post subject:  don´t drink and drive

Svona smá reminder v/komandi verzlunarmannahelgi

Soldið "þungt" video.


http://www.live2cruize.com/myndasafn/al ... river.mpeg

Author:  IngóJP [ Fri 21. Jul 2006 16:23 ]
Post subject: 

Þetta er fkn viðbjóður

Author:  jens [ Fri 21. Jul 2006 16:41 ]
Post subject: 

Uffff Þetta er mjög þarft innlegg hjá X-ray og vekur mann til umhugsunar, svona bílaklúbbar eins og við ættum að vera til fyrirmyndar í umferðinni.
Skemmtilegt að sjá hvernig Sniglarnir eru búnir að skapa góða ímynd um sinn félagsskap.

Author:  arnibjorn [ Fri 21. Jul 2006 16:58 ]
Post subject: 

29 búnir að svara og 10 segja já..

ég segi ekki annað en HVAÐ ER AÐ!

Eitthvað sem ég á aldrei eftir að gera.. keyra og drekka! Bara heimskulegt!

Author:  bjahja [ Fri 21. Jul 2006 17:09 ]
Post subject: 

Sammála þér arnibjorn, það er bara sláandi viðhorfið hjá sumum gagnvart þessu.
Skil bara ekki hvernig fólki dettur í hug að keyra undir áhrifum, bara heimska og fávitaskapur.

Author:  ValliFudd [ Fri 21. Jul 2006 17:12 ]
Post subject: 

ég hef keyrt eftir 2 bjóra... og sjitt. það er EKKI sniðugt... og það geri ég aldrei aftur.. þó það séu bara 2 bjórar.. þá er maður strax orðinn furðulegur bílstjóri.. Mistök sem ég þurfti sem betur fer ekki að læra af á verri hátt... Sá bara strax hvað maður hafði mikið minna vald á bílnum.. Það var smá bjór í vinnunni á föstudegi.. Ég gerði bara eins og hinir en það geri ég ekki aftur.. by the way.. þá var þetta ekki í núverandi vinnu.. Það er ekki drukkið áfengi í vinnunni hjá Símanum hehe :)

Author:  IngóJP [ Fri 21. Jul 2006 17:28 ]
Post subject: 

Það er ekki hægt að neita því að þetta sé heimska....

Fyrst þegar ég fékk prófið þá skyldi ég ekkert í því hvað væri að því að keyra eftir nokkra bjóra og endanum var ég hirtur.... Hét því að gera þetta aldrei aftur... Tók eitt feilspor Bíllinn endaði á toppnum allt í klessu.... Ennþá daginn í dag er ég svo feginn að þetta var bara veggur sem ég fór á en ekki annað fólk....

Author:  Geirinn [ Sat 22. Jul 2006 01:51 ]
Post subject: 

Mitt mottó er að um leið og ég hef opnað bjór/drukkið áfengi þá er ég búinn að ákveða að keyra ekki neitt það sem eftir er af deginum.

Verð að viðurkenna að ég hef keyrt eftir einn lítinn bjór, þ.e. þar sem ég hefði ekki keyrt venjulega ... en það var í Danmörku og þar er prómillalimitið víst öðruvísi.

Ég held að það hafi ekki verið eitt skipti sem ég hef opnað bjór og ekki hugsað "jæja núna keyri ég ekki meir í dag," og staðið við það í öll þau skipti, nema í þetta eina skipti.

Ég er meira fyrir að hugsa "shit núna ætti ég alls ekki að keyra." :lol:

Þegar ég er undir áhrifum þá hugsa ég allt öðru vísi en venjulega.. þá langar mig helst að vera edrú að stíga bílinn minn í botn... en þetta er bara hugarástand.

Það er samt sorglegt hvað margir eru sekir um að hafa keyrt eftir að hafa drukkið áfengi, og/eða tæpir eftir gærdaginn.

Author:  ömmudriver [ Sat 22. Jul 2006 02:20 ]
Post subject: 

Í þau fáu skipti sem ég drekk áfengi þá byrja ég á því að fjarlægja bíllykilinn úr vasanum því hann er ekki að fara með mér á fyllerí, maður veit nefnilega ekkert hvað manni dettur í hug að gera undir áhrifum :wink:
En annars þá er ekkert sem gerir mig eins fljótt og mikið reiðan eins og að lesa greinar um bílslys sem eru orsökuð af ökumanni undir áhrifum :burn: Þetta fólk sem slasaðist hefði getað verið ég eða eitthver úr fjölskyldunni minni :evil:

Author:  Bjarki [ Sat 22. Jul 2006 06:03 ]
Post subject: 

Þegar ég fékk bílpróf þá bara byrjaði ég að æfa ölvunarakstur reglulega. Fyrst á opnum svæðum en síðan bara í venjulegum götum, jók áfengismagnið í blóðinu jafnt og þétt. Eftir nógu margar æfingar þá sýndi ég miklar framfarir og núna get ég ekið leikandi um allan bæ sama hversu marga bjóra ég hef drukkið. Myndi t.d. aldrei bomba á staur eins og Eyþór Arnalds hvað þá að aka á svona sæta stelpu eins og þessa í myndbandinu.
Það á við um ölvunarakstur eins og allt annað, æfingin skapar meistarann. Ég er meistarinn kippa, kassi, bretti ég höndla það því ég er svo vel æfður.

Nei þetta er ekki rétt, ég hugsa alltaf ef ég hef efni á bjór þá hef ég efni á leigubíl. Maður drekkur maður ekur ekki, maður drekkur ekki maður ekur.
Ég drekk alltaf og ek aldrei 8)

Author:  iar [ Sat 22. Jul 2006 12:13 ]
Post subject: 

Bjarki wrote:
Þegar ég fékk bílpróf þá bara byrjaði ég að æfa ölvunarakstur reglulega. Fyrst á opnum svæðum en síðan bara í venjulegum götum, jók áfengismagnið í blóðinu jafnt og þétt. Eftir nógu margar æfingar þá sýndi ég miklar framfarir og núna get ég ekið leikandi um allan bæ sama hversu marga bjóra ég hef drukkið. Myndi t.d. aldrei bomba á staur eins og Eyþór Arnalds hvað þá að aka á svona sæta stelpu eins og þessa í myndbandinu.
Það á við um ölvunarakstur eins og allt annað, æfingin skapar meistarann. Ég er meistarinn kippa, kassi, bretti ég höndla það því ég er svo vel æfður.

Nei held þetta er ekki rétt, ég hugsa alltaf ef ég hef efni á bjór þá hef ég efni á leigubíl. Maður drekkur maður ekur ekki, maður drekkur ekki maður ekur.
Ég drekk alltaf og ek aldrei 8)


Good posting! :-D

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/