Page 1 of 3

"drifter-keppni 29. júlí næstkomandi"

PostPosted: Fri 07. Jul 2006 12:52
by ValliFudd
l2c wrote:Til stendur að halda drifter-keppni 29. júlí næstkomandi á vegum BÍKR og í samstarfi við MAX-1. Verið er að vinna í að finna svæði fyrir keppnina og munum við ekki tilkynna hvar keppnin verði haldin fyrr en skömmu fyrir keppni.

Gert er ráð fyrir að keppnin verði með svipuðu sniði og í fyrra en brautin verður væntanlega öðruvísi. Við gerum ráð fyrir að þátttökugjald verði kr. 7.000 - 8.000,- og verða veitt vegleg verðlaun fyrir fyrstu 3 sætin.

Ég vil því endilega skora á sem flesta að skella sér í skúrinn og fara að gera klárt fyrir keppnina. Keppnin í fyrra tókst mjög vel og vakti mikla athygli. Við ætlum okkur að fá fullt af áhorfendum á keppnina.

Það væri gaman að fá að heyra frá þeim sem ætla sér að mæta og þá meina ég þeim sem ÆTLA AÐ MÆTA hér á spjallinu en að sjálfsögðu er öllum velkomið að tjá sig um þetta mál.

Ég vil biðja alla um að stilla æfingum í hóf því að það er alveg á hreinu að við fáum ekki leyfi á þessa keppni frá Lögreglu né bílastæðaeigendum ef það er verið að stunda æfingar um allan bæ.

Skráning mun hefjast í næstu viku á www.max1.is

Fyrir hönd BÍKR,

Björn Ragnarsson
bjorn@bluelagoon.is


Hvað segja menn... ég var ekki búinn að sjá nýlega umræðu hérna um þetta :)

PostPosted: Fri 07. Jul 2006 13:41
by bjahja
Ég horfi líklega bara á í þetta skiptið vegna þess að ég þarf að fresta lsd kaupum :?

En að sjálfsögðu horfir maður á og vona að sem flestir kraftsmeðlimir taki þátt. Það var bara gaman að vera með í fyrra :D

PostPosted: Fri 07. Jul 2006 13:49
by Kristjan
ég ætla að mæta, en ég á ekki lsd ennþá

:cry:

PostPosted: Fri 07. Jul 2006 13:57
by fart
Ég get allavega sagt þeim sem hafa ekki tekið þátt að þetta er KLIKKAÐ STUÐ.

PostPosted: Fri 07. Jul 2006 14:20
by HPH
ég ætla að reina mæta.

til að horfa á.

PostPosted: Fri 07. Jul 2006 14:28
by gunnar
piff, HPH, til hvers að eiga svona bíl og svona breyttan og þora svo ekki að mæta á honum...

PostPosted: Fri 07. Jul 2006 14:29
by fart
gunnar wrote:piff, HPH, til hvers að eiga svona bíl og svona breyttan og þora svo ekki að mæta á honum...


Nákvæmlega... ert að deita Carmen Electra og vilt ekki fara á hana..

PostPosted: Fri 07. Jul 2006 14:31
by ///M
bíllinn gerir nú ekki allt í svona keppnum

PostPosted: Fri 07. Jul 2006 14:37
by fart
///M wrote:bíllinn gerir nú ekki allt í svona keppnum


Maður þarf ekki að vinna til að hafa gaman. Ég var í 9 sæti og fékk 100þús króna dekkjagang.. Það verður enginn óbarinn biskup í þessum fræðum. Æfingin skapar meistarann.

PostPosted: Fri 07. Jul 2006 15:13
by gunnar
fart wrote:
///M wrote:bíllinn gerir nú ekki allt í svona keppnum


Maður þarf ekki að vinna til að hafa gaman. Ég var í 9 sæti og fékk 100þús króna dekkjagang.. Það verður enginn óbarinn biskup í þessum fræðum. Æfingin skapar meistarann.


Amen og halelúja.

Mér finnst íslendingar oft heldur keppnisgjarnir, þeir líta á það þannig ef þeir eru ekki bestir eða á besta bílnum að þá why bother að taka þátt.

Eins með bíladaga,,, búnki af bílum sem hefði verið gaman að sjá taka rönn en neiiii,,

Sama með driftið, bara hafa gaman af þessu 8)

PostPosted: Fri 07. Jul 2006 16:54
by Svezel
stífar æfingar í gangi eins og myndbandið sýnir :lol:

PostPosted: Fri 07. Jul 2006 18:01
by 98.OKT
hvur ansk..... ég verð í danmörku til 30.júlí :burn:

PostPosted: Sat 08. Jul 2006 02:23
by HPH
já ég skal seigja akkur ég tek ekki þá í þessu.
það er ekki vegna þess að ég sé eitthvað hræddur um að tapa heldur er það að ég er búin að eiða $$$ í bílinn minn að ég tími bara ekki að eiða $$$ í að gera aftur við það sama.
bíllinn minn er Gamall og þolir ekki öll þessi átök, hann er meira svona antik

PostPosted: Sat 08. Jul 2006 03:00
by gunnar
Til hvers þá að setja opna síu, opið púst, short shift og læst drif í hann ef þú ætlar ekki að taka á honum.

Guðs bænum seldu þá þessa hluti og leyfðu mér að nota þetta almennilega 8)

PostPosted: Sat 08. Jul 2006 12:34
by BMWRLZ
HPH wrote:já ég skal seigja akkur ég tek ekki þá í þessu.
það er ekki vegna þess að ég sé eitthvað hræddur um að tapa heldur er það að ég er búin að eiða $$$ í bílinn minn að ég tími bara ekki að eiða $$$ í að gera aftur við það sama.
bíllinn minn er Gamall og þolir ekki öll þessi átök, hann er meira svona antik


Djöfulsins væl er þetta, það er ekki eins og þetta sé eitthvað að hrynja við smá spól og slæd :idea:

Það ætti að vera skyldu mæting fyrir e30 eigendur, þetta er það eina sem þessir bílar eru nothæfir í :!:

Allavega ætla ég að taka þátt, hversu vel sem það á nú eftir að ganga. :lol: