bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
10 bestu goðsagnir í íslenskum bílaheimi https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=16027 |
Page 1 of 2 |
Author: | Spiderman [ Thu 15. Jun 2006 22:48 ] |
Post subject: | 10 bestu goðsagnir í íslenskum bílaheimi |
Það er óhætt að segja að það séu nokkrir bílar hér á landi sem verði að teljast goðsagnir. Þegar þessa bíla ber á góma þá lifnar yfirleitt yfir mönnum. Áhugi manna á þessum bílar er að stórum hluta til komin vegna þess að þeir sjást nánast aldrei, í ljósi þess hversu sjaldséðir þeir eru, á ég ekki myndir af þeim öllum. 1) Bentley Turbo R árgerð 1994, grænn. Björgólfur Thor gaf þeim gamla þennan í 60 ára afmælisgjöf. Það vita margir að þessi er til en fæstir hafa séð hann. Ég sá hann einu sinni á ferðinni á Suðurlandsbrautinni, ég gæti ímyndað mér að þessi hafi verið keyrður innað við 500 km síðan hann kom hingað til lands. 2) Rolls Royce Silver Spur árgerð 1983 hvítur/brúnn Eigandinn var Sonja heitin Zorilla, bílinn keypti hún á Flórída árið 1995 og flutti hingað til lands. Þessi bíll var fyrsti Rollsinn sem var skráður hér á landi. Til þess að bíllinn fékkst skráður gerðu framleiðendur hans þá kröfu að maður kæmi hingað frá Skotlandi árlega til þess að yfirfara bílinn og hafa eftirlit með honum. Bíllinn er nú geymdur á Núpum þar sem Guðmundur eini lögerfingji Sonju býr en hann erfði bíllinn þegar hún lést árið 2002. 3) Morgan árgerð 1977. Pantaður frá Bretlandi af Jóhanni Péturssyni árið 1974, hann beið í 3 ár eftir bílnum þrátt fyrir að hafa fengið forgang vegna þess að þetta var eini bíllinn sem hafði verið pantaður hingað til lands. Algengur biðtími eftir Morgan á þessum tíma voru 5-6 ár. Þessi bíll er í dag ekinn rúmlega 3 þúsund kílómetra, aðeins einn annar Morgan er til hér á landi en það er plus 4 bíll sem er 1958 módel. ![]() 4) Jaguar XK120 roadster árgerð 1952, fluttur inn á tíunda áratugnum af Jóni Sigursteinssyni á Akureyri. Bíllinn var mjög döpru ástandi þegar hann kom en Jón lauk uppgerðinni nýlega. Þetta er án efa einn verðmætasti bíll hér á landi. ![]() 5) Ferrari 328 GTS árgerð 1989. Þessi bíll var fluttur inn af Ísleifi í Mótor árið 1996 ef ég man rétt. Bíllinn var fluttur inn lítið tjónaður og hefur lítið verið á götunni eftir að gert var við hann. Bíllinn er í dag ekinn innað við 20 þús mílur. Til gamans má geta þá sá ég hann í annað skiptið á götunni í dag. ![]() ![]() ![]() ![]() 6) Porsche 911 Targa 1977. Þetta er hinn svokallaði J150. Bíllinn var fluttur inn af Kjartani Kristjánssyni sjóntækjafræðingi árið 1985. Hann breytti sjálfur bílnum í Turbo útlit. Bíllinn hefur lítið verið á götunni þar sem núverandi eigandi hefur búið erlendis í um áratug. Bíllinn er hvítur með gylltum BBS felgum. 7) Packard 180 Limousine árgerð 1942. Þetta er fyrsti forsetabíll íslenska lýðveldisins. Bíllinn kom til landsins 1945. Upphaflega hafði forsetaembættið keypt annan Packard nýjan en hann fór í hafið þegar þýskur kafbátur sökkti Goðafossi þegar það var komið inn fyrir Garðskaga í nóvember 1944. 24 menn fórust með skipinu. Í kjölfarið var þessi bíll fundinn og notaður árin 1945 og 1946 af Sveini Björnssyni. Sævar Pétursson gerði bílinn upp og var hann frumsýndur á fornbílasýningunni í Laugardagshöll árið 2004. 8 ) Delorean árgerð 1981 ekinn 8 þúsund mílur. Þessi bíll var fluttur inn af Sindra Stáli og notaður í kynningaskyni. Bíllinn var nýlega seldur Stefáni Erni Stefánssyni. ![]() ![]() 9) Mercedes Benz 190 SL árgerð 1958. Þessi bíll var fluttur inn af Guðfinni veitingamanni, það eru til 3 svona hér á landi og þessi er langbestur. Bíll í þessum klassa kostar $$$$$ erlendis. 10) Jaguar E type árgerð 1971. Þessi bíll er sá eini sinnar tegundar hér á landi, hann var fluttur inn af Sigfúsi Sverrissyni. PS. Var unnið í flýti nú í kvöld, það gætu verið einhverjar villur í þessu. Heimildir: Morgunblaðið, Leoemm.com og Sonja |
Author: | IngiSig [ Thu 15. Jun 2006 23:01 ] |
Post subject: | |
Góð grein, vissi ekki að allir þessir bílar væru til á Íslandi |
Author: | Geirinn [ Thu 15. Jun 2006 23:03 ] |
Post subject: | |
Quote: 1) Bentley Turbo R árgerð 1994, grænn. Björgólfur Thor gaf þeim gamla þennan í 60 ára afmælisgjöf. Það vita margir að þessi er til en fæstir hafa séð hann. Ég sá hann einu sinni á ferðinni á Suðurlandsbrautinni, ég gæti ímyndað mér að þessi hafi verið keyrður innað við 500 km síðan hann kom hingað til lands.
Er þessi drossía grá ? |
Author: | Kristján Einar [ Thu 15. Jun 2006 23:07 ] |
Post subject: | |
er ég illa svikin eða er engin bmw nógu tilkomumikill :/ ? |
Author: | Spiderman [ Thu 15. Jun 2006 23:16 ] |
Post subject: | |
Kristján Einar wrote: er ég illa svikin eða er engin bmw nógu tilkomumikill :/ ?
Þeir sem eiga BMW keyra þá ![]() |
Author: | Steinieini [ Thu 15. Jun 2006 23:17 ] |
Post subject: | |
B10 BiTurbo ? Kanski ekki í sama klassa og þessir...samt raaare Veit einhver hvað eru margar alpinur hér og hverrar tegundar ? |
Author: | zazou [ Thu 15. Jun 2006 23:20 ] |
Post subject: | |
Geirinn wrote: Quote: 1) Bentley Turbo R árgerð 1994, grænn. Björgólfur Thor gaf þeim gamla þennan í 60 ára afmælisgjöf. Það vita margir að þessi er til en fæstir hafa séð hann. Ég sá hann einu sinni á ferðinni á Suðurlandsbrautinni, ég gæti ímyndað mér að þessi hafi verið keyrður innað við 500 km síðan hann kom hingað til lands. Er þessi drossía grá ? ![]() |
Author: | zazou [ Thu 15. Jun 2006 23:21 ] |
Post subject: | |
Steinieini wrote: B10 BiTurbo ?
Kanski ekki í sama klassa og þessir...samt raaare Veit einhver hvað eru margar alpinur hér og hverrar tegundar ? 2 held ég. Sá hinn uppí Kópavogi í gær. |
Author: | ///M [ Thu 15. Jun 2006 23:28 ] |
Post subject: | |
allavegana e34 b10 biturbo e39 b10 v8 og svo e36 b3 touring |
Author: | iar [ Fri 16. Jun 2006 02:25 ] |
Post subject: | |
///M wrote: og svo e36 b3 touring
Þú ert væntanlega að tala um E46. Nema það sé líka til E36. ![]() Þessi E46 B3 Touring er bara ![]() ![]() ![]() |
Author: | fart [ Fri 16. Jun 2006 07:08 ] |
Post subject: | |
Smart samantekt ![]() |
Author: | ///M [ Fri 16. Jun 2006 09:07 ] |
Post subject: | |
iar wrote: ///M wrote: og svo e36 b3 touring Þú ert væntanlega að tala um E46. Nema það sé líka til E36. ![]() Þessi E46 B3 Touring er bara ![]() ![]() ![]() ég er að tala um e36 vissi ekki af e46 |
Author: | Bjöggi [ Fri 16. Jun 2006 09:44 ] |
Post subject: | |
mjög góð samantekt og fróðleg. ég bara spyr hvar eru allir þessir bílar þegar það eru bílasýningar?? maður er bara búinn að sjá allt það sem er venjulega á þeim. |
Author: | nitro [ Fri 16. Jun 2006 09:53 ] |
Post subject: | |
Talandi um þessa b10, þá sá ég þessa fyrir einhverjum 2 árum siðan. ![]() ![]() ![]() |
Author: | iar [ Fri 16. Jun 2006 11:54 ] |
Post subject: | |
///M wrote: iar wrote: ///M wrote: og svo e36 b3 touring Þú ert væntanlega að tala um E46. Nema það sé líka til E36. ![]() Þessi E46 B3 Touring er bara ![]() ![]() ![]() ég er að tala um e36 vissi ekki af e46 Awsome! The more the merrier! ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |