bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Vantar iðnaðarhúsnæði/aðstöðu
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=15404
Page 1 of 2

Author:  Djofullinn [ Sat 06. May 2006 11:13 ]
Post subject:  Vantar iðnaðarhúsnæði/aðstöðu

Er búinn að vera að leita undanfarið að aðstöðu eða iðnaðarhúsnæði en er ekkert að finna.
Vitið þið um eitthvað iðnaðarpláss sem er til leigu eða hluta af plássi með einhverjum öðrum? Eða eitthvað sem losnar á næstu vikum/mánuðum?
Er að aðallega að hugsa um 100+ fm en alveg frá 50 fm kemur til greina ef ekkert annað finnst. Það er þó betra en ekkert.
Verður að vera á höfuðborgarsvæðinu.

Ef þið vitið jafnvel um eitthvað pláss sem er til sölu þá má alveg skoða það líka.

Author:  Djofullinn [ Sat 06. May 2006 11:55 ]
Post subject: 

Ef einhverjir hafa áhuga á plássi með manni látið mig þá vita.

Author:  Hannsi [ Sat 06. May 2006 12:04 ]
Post subject: 

afhverju getur þú ekki verið í kef :(

Author:  gunnar [ Sat 06. May 2006 12:04 ]
Post subject: 

Mig vantar einmitt aðstöðu líka Djöfull, þannig ef þú finnur eitthvað þá let me know..

Ég ætla að prufa tala við pabba, hann vinnur hjá huge ass byggingarfyrirtæki, spurning hvort hann viti ekki um eitthvað húsnæði sem er á kúk og kanil.

Þarf ekki bara hita og rafmagn ?

Author:  Djofullinn [ Sat 06. May 2006 12:10 ]
Post subject: 

gunnar wrote:
Mig vantar einmitt aðstöðu líka Djöfull, þannig ef þú finnur eitthvað þá let me know..

Ég ætla að prufa tala við pabba, hann vinnur hjá huge ass byggingarfyrirtæki, spurning hvort hann viti ekki um eitthvað húsnæði sem er á kúk og kanil.

Þarf ekki bara hita og rafmagn ?

Um að gera að skoða alla möguleika. Jú bara hita og rafmagn. Og innkeyrsluhurð að sjálfsögðu :)

Það væri náttúrulega best að fá eitthvað á 7-800 kr fm með vsk en mér sýnist leigan vera komin upp í 1000-1100 á sumum stöðum :shock:

Author:  gunnar [ Sat 06. May 2006 12:12 ]
Post subject: 

PM

Author:  Thrullerinn [ Sat 06. May 2006 12:51 ]
Post subject: 

gunnar wrote:
PM


Pm á mig ?

Er í smá pælingum með svona húsnæði...

Author:  bjahja [ Sun 07. May 2006 01:24 ]
Post subject: 

Ég og einn vinur minn gætum líka haft áhuga á þessu.
Pm sent :D

Author:  arnibjorn [ Sun 07. May 2006 17:48 ]
Post subject: 

PM 8)

Author:  Djofullinn [ Mon 08. May 2006 15:48 ]
Post subject: 

Er enn að leita.

Það sem væri hentugast væri einhver gluggalaus kjallari með innkeyrsluhurð, eitthvað sem er "óhenntugt" fyrir fyrirtæki og þar af leiðandi ódýrara. Þannig að ef menn vita um eitthvað slíkt sem gæti verið til leigu þá endilega látið mig vita. Allar ábendingar vel þegnar. Er að keyra um allan bæ þessa dagana að leita að iðnaðarkjöllurum með "Til leigu" skillti í glugganum :P

Author:  Erica [ Mon 08. May 2006 21:23 ]
Post subject: 

Er einmitt í sömu vandræðum..
mun taka bimman af númerum í haust og vantar stað til að geyma hann. ef einhverjum vantar einhvern með sér þá er ég game :D

Author:  finnbogi [ Tue 09. May 2006 16:49 ]
Post subject: 

það er sama með mig ég þarf aðstöðu og ef einhver veit um þá vantar mig ég félaga mínum aðstöðu

ég er í alveg sömu pælingum og djöfullinn og er alveg til í að leigja með einhverjum

Author:  Alpina [ Tue 09. May 2006 17:17 ]
Post subject: 

húsnæði húsnæði,,,,,,

hvernig væri að láta heyra hvaða upphæðir þið eruð tilbúnir að borga..
skaðar án vafa ekki ,,og gæti auðveldað þá sem vissu um eitthvað

Author:  bjahja [ Tue 09. May 2006 17:24 ]
Post subject: 

Það sem hann er búinn að nefna er helst 100fm+ og helst 7-800kr fm. Gefum okkur bara 125 fm og 800kr á fm það gerir 100.000kr á mánuði. Þannig að ætli það sé ekki ágætt til að miða við ;)

En hvað værirðu að spá í að hafa þetta með mörgum?

Author:  ValliFudd [ Tue 09. May 2006 17:26 ]
Post subject: 

erum við farnir að tala um BMWKrafts húsnæði? hehe

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/