bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Sumir láta sér ekki segjast https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=15355 |
Page 1 of 1 |
Author: | Bjarkih [ Wed 03. May 2006 21:24 ] |
Post subject: | Sumir láta sér ekki segjast |
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1199416 Quote: Stöðvaður átta sinnum á einu ári fyrir hraðakstur
Lögreglan á Blönduósi stöðvaði í gær ökumann á sextugsaldri vegna of hraðs aksturs. Lögreglan segir að það sé í sjálfu sér ekki fréttnæmt á þessum slóðum, en það sé athyglisvert að ökumaðurinn, sem ók á 139 km hraða um Norðurlandsveg við Hnausa í Vatnsdal, var þar með stöðvaður af lögreglunni á Blönduósi í áttunda sinn á einu ári. Þá séu ekki með talin þau umferðarlagabrot, sem að maðurinn hafi gerst sekur um hjá öðrum embættum. Lögreglan segir, að ef brot þessi séu tekin saman, þá komi í ljós, að sektarboð vegna þessara hraðamála á Blönduósi hljóði upp á 170.000 krónur og maðurinn hafi fengið 9 ökuferilspunkta vegna sömu mála þaðan. „Það er með ólíkindum að maðurinn skuli ekki læra af brotum sínum, og þá sérstaklega af því að fara hér um vegi lögreglunnar á Blönduósi," segir í tilkynningu frá lögreglunni. |
Author: | Hemmi [ Wed 03. May 2006 21:32 ] |
Post subject: | Re: Sumir láta sér ekki segjast |
þrjóskan alveg að drepa suma ![]() |
Author: | ta [ Sun 07. May 2006 01:51 ] |
Post subject: | |
það er verið að stoppa hann á 120 á fínum vegum, við ættum að safna í radarvara fyrir manninn, djöfuls einelti. ![]() |
Author: | Bjarkih [ Sun 07. May 2006 23:49 ] |
Post subject: | |
Það var víst verið að stoppa hann í 11 skipti á árinu núna nýlega ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |