Sumir láta sér ekki segjast

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Sumir láta sér ekki segjast

Postby Bjarkih » Wed 03. May 2006 21:24

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1199416

Stöðvaður átta sinnum á einu ári fyrir hraðakstur

Lögreglan á Blönduósi stöðvaði í gær ökumann á sextugsaldri vegna of hraðs aksturs. Lögreglan segir að það sé í sjálfu sér ekki fréttnæmt á þessum slóðum, en það sé athyglisvert að ökumaðurinn, sem ók á 139 km hraða um Norðurlandsveg við Hnausa í Vatnsdal, var þar með stöðvaður af lögreglunni á Blönduósi í áttunda sinn á einu ári. Þá séu ekki með talin þau umferðarlagabrot, sem að maðurinn hafi gerst sekur um hjá öðrum embættum.

Lögreglan segir, að ef brot þessi séu tekin saman, þá komi í ljós, að sektarboð vegna þessara hraðamála á Blönduósi hljóði upp á 170.000 krónur og maðurinn hafi fengið 9 ökuferilspunkta vegna sömu mála þaðan.

„Það er með ólíkindum að maðurinn skuli ekki læra af brotum sínum, og þá sérstaklega af því að fara hér um vegi lögreglunnar á Blönduósi," segir í tilkynningu frá lögreglunni.
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Re: Sumir láta sér ekki segjast

Postby Hemmi » Wed 03. May 2006 21:32

þrjóskan alveg að drepa suma [-X
User avatar
Hemmi
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1045
Joined: Fri 25. Feb 2005 21:41
Location: Spánn

Postby ta » Sun 07. May 2006 01:51

það er verið að stoppa hann á 120 á fínum vegum,
við ættum að safna í radarvara fyrir manninn, djöfuls einelti. :D
'BMW, designed by Germans, driven by tossers' J.C.
User avatar
ta
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1376
Joined: Tue 12. Aug 2003 21:45

Postby Bjarkih » Sun 07. May 2006 23:49

Það var víst verið að stoppa hann í 11 skipti á árinu núna nýlega :shock:
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 54 guests