Page 1 of 1

Fólboltafíklar?

PostPosted: Tue 02. May 2006 23:45
by ValliFudd
Datt svona í hug því það kom til tals að það er samkoma á sama tíma og fótbolti... eru margir hér í þeim pakkanum? :)

Ég persónulega veit ekkert um fótbolta, var einu sinni í fótboltaliði, í MK-deildinni og liðið hét Sjálfsmark! :D og við töpuðum alltaf hehe..
so my vote is Nibb :)

PostPosted: Tue 02. May 2006 23:48
by Bjössi
eins og kom fram í samkomuþræðinum þá er ég heltekinn af þessu sporti :)

PostPosted: Tue 02. May 2006 23:48
by arnibjorn
Ég horfi eiginlega aldrei á bolta, væri til í að horfa oftar en nenni ekki að borga fyrir sýn eða enskaboltann eða eitthvað álíka :P
En ef það eru stórleikir þá reyni ég að horfa á þá! Miklu skemmtilegra að spila fótbolta heldur en að horfa finnst mér :wink:

PostPosted: Wed 03. May 2006 00:13
by Jökull
Mér finnst gaman að spila fótbolta, þó svo að ég sé ekki sá besti. En að fylgast með þessu nenni ég ekki.... þannig að,,,,,, Nibb

PostPosted: Wed 03. May 2006 00:15
by Bjarkih
Ef það er leikur með Manchester United þá reyni ég að horfa á þá á einhverjum sport pub, en það er ekkert forgangsatriði í lífinu.

PostPosted: Wed 03. May 2006 00:32
by gunnar
Ég horfi mikið á fótbolta og ástæðan fyrir því er að ég get ekki spilað hann. Ökklabrotnaði fyrir nokkrum árum og allt í drasli þar :oops:

Þannig ég hef bara leitað til sjónvarpsins með fótboltann og horfi á allt sem horfa á sem vekur athygli..

Er meira að segja að fara á HM í sumar, fer á Saudí Arabíu - Spánn, 16 liða úrslitin og 8 liða úrslitin..

Svo er verið að athuga hvort hægt sé að græja miða á úrslitaleikinn. Kemur í ljós.

Þannig planið hjá mér í sumar er að taka HM, vonandi Nurburgring og kíkja til Belgíu og versla í jeppafatið aðeins, snorkel, flækjur, ás, og eitthvað.

PostPosted: Wed 03. May 2006 09:00
by Geirinn
Fótbolti er svakalega skemmtileg afþreying. Gallinn er hins vegar að ég hef ekki rásirnar til að horfa á þetta.

Var lengi vel með sýn... en jafn vel ég tími ekki að horfa á sjónvarpsreikninginn á heimilinu slá í 15 þús þó ég borgi það ekki sjálfur :lol:

Fylgist með á netinu þetta seasonið allavega.. sjá svo til.

VAR HINS VEGAR AÐ PÆLA Í AÐ KAUPA MER HLUT I 365 TIL AÐ FA SYN I NÆSTA MANUÐI. SVIPAÐ DYRT OG AFNOTAGJÖLDIN :shock:

PostPosted: Wed 03. May 2006 09:18
by gstuning
Ég nenni sko ekki að horfa á fótbolta, það er svo mikið af bíla videoum og þess háttar sem ég eyði tímanum mínum í