bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
FERRARI station 456 GTA ESTATE https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=15033 |
Page 1 of 2 |
Author: | Alpina [ Sun 16. Apr 2006 01:51 ] |
Post subject: | FERRARI station 456 GTA ESTATE |
Sælir fann hérna gamla grein sem ég hafði látið frá mér en ekki verið birt þannig að hér er hún í smá samantekt FERRARI- Station 456 GTA ESTATE Ferrari station.....hmmm nei þannig bíll er ekki til.. en jú svoleiðis bill fyrirfinnst og það fleiri en einn. Þeir sem eru efnaðir eða ultra auðugir eins og i þessu tilviki vilja gjarnan eiga eitthvað sem aðrir eiga ekki möguleika á að eignast,, og þannig er það i þessu tilfelli, heil sjö stykki voru framleidd að þessum ,,afar ,, sérstæða bíl og var grunnurinn 456 GT,, Til að þetta væri framkvæmanlegt þurfti snillingurinn Sergio Pininfarina að búa til ,,næstum ,, nýjan bíl. Bætt var við 2 hurðum og svo auðvitað afturhlera sem er það eina sem er ekki úr málmi,, heldur koltrefjum, Allir fletir bílsins eru Stansaðir úr málmi og var bíllinn lengdur á milli hjóla um heila 20 cm. Stytta þurfti framhurðirnar svo að glæsileg hönnun bílsins fengi að halda sér í hlutfalli við nýja útlitið Byrjað var frá grunni eins og um nýjan bíl væri að ræða og kostaði herlegheitin heil ósköp, ekkert vandamál var með greiðslur þar sem greiðandin var Sóldán-embættið BRUNEI. Þar á bæ eru menn ekki uppiskropa með skotsilfur enda á embættið án nokkurns vafa eitt mesta bílasafn veraldar með þvílíkt magn af sjaldgæfum bílum að menn sem eru vel kunnugir í bílaheiminum reka í rogastans er þeir sjá slíka dýrðarsýn. 7 bílar voru framleiddir af þessum stórkostlega bíl en af einhverjum orsökum vildi hans hátign ekki nema 6 þegar framleiðslu lauk. Allir bílarnir voru í sama lit,Dökkgrænn með ljósgrænu leðri og sjálfskiptir, stýrið er hægra megin. Sjöundi og síðasti bíllinn var seldur til Englands og var ekki deilt um verðið á þeim bíl, enda eini bíllinn sinnar tegundar í veröldinni sem var ,,fræðilega til sölu. Enda ekki leiðinlegt að spóka sig um á þeim ,EINA, Talað er um að bíllinn sé tæplega 1.000.000 EURO virði enda sjaldgæfari en hvítur hrafn. Að öðrum Ferrari bílum ólöstuðum er þetta einn af merkilegstu bílum fyrirtækisins í sögunni og gæti fræðilega verið ,síðasti, special-build Ferrari bíllinn sem þeir í Maranello láta frá sér fara Sóldán embættið á einnig 4dyra úgáfu ásamt Cabrio í 456 útliti,, undirritaður hefur aldrei séð myndir af þeim bílum Að mati undirritaðs er þetta einn flottasti Ferrari bíll allra tíma og er það einnig notagildi bílsins sem heillar. Aðeins 288 GTO er ofar á listanum ásamt 250 GT0 Vélin í þessum sniðuga ,, verslunarvagni,, er sú sama og í 456 GT V 12 5474 ccm 442hö//550nm 1700 kg 0-100 5.5 sek hámarkshraði 290 km/klst, Alveg í góðu lagi að fara í Kringluna á þessu Sveinbjörn Hrafnsson Vitnað er í bókina Legenden om FERRARI sem er eftir Danska bílablaðamanninn Christin Frost og er það gert með góðfúslegu leyfi af hans hálfu |
Author: | srr [ Sun 16. Apr 2006 02:08 ] |
Post subject: | |
Fáum við ekki mynd af svona tryllitæki? |
Author: | bjahja [ Sun 16. Apr 2006 02:18 ] |
Post subject: | |
Flott grein, það kemur alltaf upp mikill slef pollur þegar maður les eða sér myndir af bílaflota Sóldansins af Brunei. Ég fann um daginn síðu þar sem eru myndir af ferrari sem eiga að vera í eigu hans, skal láta þær fljóta að tilefni ![]() ![]() Ferrari 550 Barchetta ![]() Ferrari 456 GTA Estate ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() Ferrari 456 GTA Venice Sedan by Pinifarina ![]() ![]() Ferrari 456 GTA Venice Cabriolet by Pinifarina ![]() Ferrari F50-Bolide ![]() ![]() ![]() Þessi er FREKAR rosalegur að mínu mati ![]() Maður veit náttúrlega ekki hvað er rétt eða ekki, kanski að Sveinbjörn geti verpað einhverju ljósi á það ![]() |
Author: | Hemmi [ Sun 16. Apr 2006 02:40 ] |
Post subject: | |
![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
Author: | fart [ Sun 16. Apr 2006 05:29 ] |
Post subject: | |
F456 er einn fallegasti Ferrari ever IMO. Veit ekki með blæjuna, en Estate og 4doorinn virka alveg. |
Author: | Hannsi [ Sun 16. Apr 2006 05:41 ] |
Post subject: | |
vá veistu þegar ég las greinina átti ég von á eitthverju ógeði en sá svo myndirnar og..... já hann lookar bara nokkuð vel |
Author: | IvanAnders [ Sun 16. Apr 2006 11:56 ] |
Post subject: | |
Magnaður! Hef oft heyrt af honum en aldrei séð hann ![]() Einhverra hluta vegna finnst mér samt F40 tróna alltaf yfir öllum öðrum Ferrari ![]() |
Author: | Steinieini [ Sun 16. Apr 2006 14:14 ] |
Post subject: | |
Þótt þetta sé ferrari og allt það þá finnst mér liturinn á leðrinu bara ![]() Eins og að keira um í sundlaug eða heitum potti.. ![]() |
Author: | zazou [ Sun 16. Apr 2006 14:28 ] |
Post subject: | |
Looks like að Peugeot ![]() |
Author: | bebecar [ Sun 16. Apr 2006 14:45 ] |
Post subject: | |
Mér finnst þetta algjörlega mögnuð innrétting ![]() ![]() |
Author: | fart [ Sun 16. Apr 2006 14:53 ] |
Post subject: | |
zazou wrote: Looks like að Peugeot
![]() Its the other way aroung. Græna leðrið er ekki að gera sig. |
Author: | basten [ Sun 16. Apr 2006 15:44 ] |
Post subject: | |
Mér finnst þessi innrétting alveg geggjuð!!! Og ég er EKKI þekktur fyrir að fíla græna bíla eða grænar innréttingar. Það er bara e-ð svo fallegt og stílhreint við hana. |
Author: | bjahja [ Sun 16. Apr 2006 16:14 ] |
Post subject: | |
Næstum því alveg sami litur og er á innréttingunna minii ![]() |
Author: | Eggert [ Sun 16. Apr 2006 17:05 ] |
Post subject: | |
Er ég sá eini hérna sem finnst þetta 0 flott? ![]() |
Author: | Danni [ Sun 16. Apr 2006 18:27 ] |
Post subject: | |
zazou wrote: Looks like að Peugeot
![]() Akkurat það sem mér datt fyrst í hug þegar ég sá myndirnar! |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |