Page 1 of 2

Löggimann

PostPosted: Sun 16. Apr 2006 00:44
by ValliFudd
Bara langaði að pósta hér nýlegum stöðum sem löggan hefur valið sér :) það er ekkert ólöglegt er það? Ég meina þeir eru þarna og það er ekki eins og það sé bannað að tala um það hehe...:)

Image
Þarna eru þeir stundum sitt hvoru megin við brúnna langt uppi í göngustíg..

Image
Hér hafa þeir sést lagðir uppi á grasi hinumegin við hólinn og mæla mann á leiðinni niður brekkuna.. you won't ever know what hit you :)

Image
Og hér, uppi í brekkunni á leiðinni upp á bústaðaveg að taka Kringlumýrarbrautina en þeir eru farnir að vera þarna efst uppi í brekkunni á bakvið lítinn runna, mjög erfitt að sjá þá snemma.. Sá þá þar í morgun og aftur núna eftir miðnætti..

Vildi bara koma mínu á framfæri.. ekki að menn séu að aka neitt hratt hérna en það er alltaf gott að vita af þeim á þessum stöðum ef maður þarf á þeim að halda ;) hehe

Adios
Valli Djöfull

p.s. þessar myndir eru af frábærri síðu
http://www.borgarvefsja.is vona að ég sé ekki að brjóta höfundaréttarlög en ég er allavega að vitna í þá og auglýsa þá ;) kannski það dugi til :)

PostPosted: Sun 16. Apr 2006 00:46
by pallorri
:lol:

Gott framtak

Re: Löggimann

PostPosted: Sun 16. Apr 2006 01:31
by Hemmi
Þeir eru líka stundum þar sem örin er
Image

PostPosted: Sun 16. Apr 2006 01:32
by ValliFudd
og náttúrulega oft oft hjá essósjoppunni þarna ofan í dalnum..:) og enn eru þeir stundum að vesenast á milli akreinanna þarna rétt við essó :)

PostPosted: Sun 16. Apr 2006 01:35
by Alpina
Úr háloftunum höfum við
hettumáva í myndum
við sakramentið segið þið
presti frá yðar syndum

Re: Löggimann

PostPosted: Sun 16. Apr 2006 01:55
by Lindemann
ValliFudd wrote:Image
Hér hafa þeir sést lagðir uppi á grasi hinumegin við hólinn og mæla mann á leiðinni niður brekkuna.. you won't ever know what hit you :)


Ég held þeir hafi verið þarna þegar þeir mældu mig....ég sá enga löggu neinsstaðar, ekki fyrr en í baksýnisspeglinum þegar ég var kominn yfir miklubraut-kringlumýrarbraut gatnamótin. Og þá stoppuðu þeir mig allt í einu :?

PostPosted: Sun 16. Apr 2006 02:02
by ValliFudd
quote frá mbl.is

"572 ökumenn hafa verið kærðir það sem af er aprílmánaðar fyrir of hraðan akstur í umdæmi Reykjavíkurlögreglunnar, að meðaltali um 40 á dag."

:)

eru þeir ekki bara að verða búnir með aprílkvótann? og fara að slaka á? hehe

PostPosted: Sun 16. Apr 2006 06:19
by Angelic0-
ValliFudd wrote:quote frá mbl.is

"572 ökumenn hafa verið kærðir það sem af er aprílmánaðar fyrir of hraðan akstur í umdæmi Reykjavíkurlögreglunnar, að meðaltali um 40 á dag."

:)

eru þeir ekki bara að verða búnir með aprílkvótann? og fara að slaka á? hehe


Það vantar víst eitthvað uppá í páskadjammsjóðinn !

PostPosted: Sun 16. Apr 2006 10:21
by Jökull
Það væri þá bara fólkið í umferðinni sem ætti að fara að slaka á...

PostPosted: Sun 16. Apr 2006 14:19
by IngiSig
Ef við gefum okkur að flestir séu teknir á 20-30km yfir leyfðum hámarkshraða, er sektarupphæðin ekki yfirleitt í 14.000 kr og 7.000 kr ef greitt er innan 14 daga??
Meðaltal 10kall- 572*10.000 kr = 5.720.000.- kr aðeins fyrir hraðasektir, síðan koma rauðu ljósin og ölvunaraksturs sektir, þetta ætti að geta greitt launin hjá nokkrum.

PostPosted: Mon 17. Apr 2006 00:36
by IngóJP
Image

Nánari útskýring Þá er þetta Súðarvogur stóra húsið með svartaþakinu

Er Nýja Sendibílastöðin.... Þar er einnig ÓB Stöð og Avis bílaleiga

hef séð þá taka þá sem koma brunandi sæbrautina og ((wrúúúmm)) á eftir þeim

aðalega á næturlagi :wink: njótið góðs

PostPosted: Mon 17. Apr 2006 04:52
by HPH
Jæja gerði smá klaufa mistök í kvöld.
Hitti félaga minn á Esso Árstúnsbrekku og síndi honum þetta í Tölfunni.
Þetta er nú ekki frá sögu færandi en það að Félægi minn er í Lögguni og var meira seigja á vagt. :oops:

Hver seigir að það sé ekki hækt að skrifa undir áhrifum ÖLs :lol: :drunk:

PostPosted: Mon 17. Apr 2006 13:38
by burgerking
semsagt núna fer bróðir minn í fangelsi? :P

I'll come visit u sometime valli... 8)

PostPosted: Tue 18. Apr 2006 00:52
by Geirinn
HPH wrote:Jæja gerði smá klaufa mistök í kvöld.
Hitti félaga minn á Esso Árstúnsbrekku og síndi honum þetta í Tölfunni.
Þetta er nú ekki frá sögu færandi en það að Félægi minn er í Lögguni og var meira seigja á vagt. :oops:

Hver seigir að það sé ekki hækt að skrifa undir áhrifum ÖLs :lol: :drunk:


Já shit núna breyta þeir öllum plönum bara vegna þess að þeir vita að við vitum !#!$!$#

:-$ :lol:

PostPosted: Tue 18. Apr 2006 01:04
by Þórir
Strákar.

Svo er einn alveg sérstaklega hættulegur staður sem ekki allir vita af. Þetta er semsagt þar sem Skúlagata og Rauðarárstígur koma saman. Allt krökkt af löggamann.

Ólyginn hefur sagt mér að það sé verið að ráðgera lögguferð til London og þess vegna séu þeir að sekta fyrir allt mögulegt, til að safna í bjórsjóðinn, sjáiði til. :born:

Hérna er kort af þessum stað.

Image