bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Hurðaður... https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=15006 |
Page 1 of 2 |
Author: | Chrome [ Fri 14. Apr 2006 19:47 ] |
Post subject: | Hurðaður... |
Urr...ég skrapp í 11/11 áðan að kaupa það sem vantaði fyrir fjölskylduboðið sem ég var að fara í... ég bakkaði við hliðina á einhverjum bíl nóg pláss og alles, sem betur fer ákvað kærasta mín að vera eftir í bílnum því að kallin sem var lagður við hliðina þrykkir! hurðinni í bílinn hjá mér þannig að listinn á farþega hurðinni dældast all svakalega og rispaði lakkið inn að málm líka ![]() ![]() ![]() ...en það getur varla verið að maðurinn hafi ekki tekið eftir þessu, höggið var það mikið, alveg ótrúlegt hvað fólk getur verið ómerkilegt ![]() |
Author: | Helgi M [ Sat 15. Apr 2006 00:21 ] |
Post subject: | Re: Hurðaður... |
Já þetta getur verið alveg svívirðilegt hjá fólki að gera þetta og sérstaklega að vera ekki varkár við þetta,, það telst kannski sem afsökun þegar að fólkið missi gripið á hurðunum í mikklum vindi og hún fýkur á annan bíl,,, en víst að kærastan þín var vitni að þessu og að þetta var það fast högg að það hlýtur að sjá eikkað á hurðinni hjá hinum þá getur þetta ekki endað öðruvísi en að hann gerist sekur og ábyrgur fyrir tjóninu ![]() |
Author: | arnibjorn [ Sat 15. Apr 2006 00:24 ] |
Post subject: | |
Ég þoli ekki að heyra svona sögur.. ömurlegt að fólk getur ekki passað sig. ![]() Held að rosalega mikið af fólki geri sér ekki grein fyrir því hvað það kostar að láta sprauta bíla ![]() Síðan eitt enn sem fer mjöööög mikið í taugarnar á mér er þegar krakkar opna hurðarnar og sparka í þær til að opna.... bókstaflega sparka í hurðarnar! Það kveikir alveg í mér ![]() Ég passa mig alltaf mjög mikið þegar ég opna mínar hurðar ![]() |
Author: | _Halli_ [ Sat 15. Apr 2006 01:42 ] |
Post subject: | |
Djöfullinn sjálfur... fólk er fífl ![]() Það er hrikalegt að koma út og finna nýja rispu á bílnum, hvað þá svona! Ég lenti í því um daginn að ég leit á húddið hjá mér alveg upp við rúðuna bílstjóramegin... sá ég ekki bara risa dæld, sem virtist vera eftir HAMAR! Og þetta var fyrir utan hjá mér þegar ég kom út um morguninn. Helvítis fulla gengi. Ég veit allavega eitt, og það er að ég fæ mér hús með bílskúr. |
Author: | Angelic0- [ Sat 15. Apr 2006 05:14 ] |
Post subject: | |
_Halli_ wrote: Djöfullinn sjálfur... fólk er fífl
![]() Það er hrikalegt að koma út og finna nýja rispu á bílnum, hvað þá svona! Ég lenti í því um daginn að ég leit á húddið hjá mér alveg upp við rúðuna bílstjóramegin... sá ég ekki bara risa dæld, sem virtist vera eftir HAMAR! Og þetta var fyrir utan hjá mér þegar ég kom út um morguninn. Helvítis fulla gengi. Ég veit allavega eitt, og það er að ég fæ mér hús með bílskúr. Ég er ekki frá því að það hafi verið að birtast ein svona dæld hjá mér.... Svo voru einhverjir 12-14ára strákpattar í "víkingaleik" á bílnum mínum og það eru "lyklarispur" á skottlokinu og öðru nýsprautaða brettinu... og skottlokið er líka dældað... einsog einhver hafi hreinlega lamið það með hnefa... Óþolandi svona vanvirðing gagnvart eigum annara ! |
Author: | Chrome [ Sat 15. Apr 2006 14:22 ] |
Post subject: | |
ójá...það versta er að þetta er plastlistinn sem hann fór á og því sér ekkert að ráði á hans bíl...og auðvitað neytaði hann öllu saman en fyrir einhverja tilviljun þá mundi hann eftir bílnum mínum og rausaði mikið um hvað ég hefði verið nálægt sér ![]() ![]() |
Author: | íbbi_ [ Sat 15. Apr 2006 16:16 ] |
Post subject: | |
ég þekki þetta SVO vel, það er búið að hurða mözduna 5 sinnum |
Author: | zneb [ Sat 15. Apr 2006 16:40 ] |
Post subject: | |
Þetta er náttúrulega bara leiðindi, bíllinn hennar múttu allur útí svona beiglum, enda vandar hún og systa sig ekkert sérlega við að leggja né við stæðaval. En þú lætur hann samt ekkert komast upp með þetta? |
Author: | zneb [ Sat 15. Apr 2006 16:42 ] |
Post subject: | |
og miðað við það hvað hann virðist hafa verið pirraður á því hvað þú lagðir "nálægt" þá spyr maður sig hvort hann hafi ekki gert þetta viljandi ![]() |
Author: | Thrullerinn [ Sat 15. Apr 2006 17:00 ] |
Post subject: | |
Já það er sko talsvert virðingaleysi í gangi í þjóðfélaginu. Það mælist örugglega í vikum sá tími sem ég hef eytt í að finna "óhurðanlegt" stæði. Hvað er hægt að gera til að fyrirbyggja svona lagað?? Fyrir mitt leyti finnst mér yfirgangur að tvístæða á mikið notuðum stæðum nálægt inngöngum, en ef maður leggur á einbreiðu stæðunum eða lengst úti í buska þá sleppur maður "nánast" við hurðanir.. Það færist líka í aukana að bílar séu ekki með listum á hurðunum og eru því mun berskjaldaðri en ella. En bara fá gaurinn til að gera skýrslu.. og láta sprauta, ef hann er með einhvern mótþróa þá spyrja FÍB eða lögregluna.. ![]() |
Author: | Chrome [ Sat 15. Apr 2006 18:11 ] |
Post subject: | |
Lögreglan sendi þetta til tryggingana við erum báðir tryggðir hjá sama félagi þannig að þetta ætti að verða "gaman"...en maður gefst ekki fyrr en í fulla... ![]() |
Author: | IngóJP [ Sat 15. Apr 2006 18:14 ] |
Post subject: | |
Afhverju vissi ég ekki að það væri hægt að fá svona bætt.. hélt alltaf að þetta væri bara svekkjandi fyrir mig ![]() Var nefnilega hurðaður á Volvo sem ég átti kom ljót rispa í bílstjóra hurðina og kellingin sagði mér að vera ekki fyrir svo ég sá framá sprautun þá ákvað ég að hurða hana og fór svo í burtu... jább ég fékk hringingu frá lögreglunni í hafnarfirði fljótlega |
Author: | Geirinn [ Sat 15. Apr 2006 18:31 ] |
Post subject: | |
Mitt eina ráð er að leggja við hliðina á flottum bílum eða nýlegum. Svo er klassískt að leggja á ská ![]() Og líka að reyna að leggja við hliðina á þeim sem maður heldur að muni vera lengur en maður sjálfur... oft ekkert hægt samt en ég er dáldið góður við að 'mappa' staði sem ég fer oft á. |
Author: | Hannsi [ Sat 15. Apr 2006 18:48 ] |
Post subject: | |
ég legg alltaf úti í rassgati þar sem enginn bíll er eða þar sem eitthver bíll er sem ég kannast við (þá er ég oftast 100% viss að enginn hurði mig) ![]() |
Author: | HAMAR [ Sat 15. Apr 2006 20:37 ] |
Post subject: | |
_Halli_ wrote: Djöfullinn sjálfur... fólk er fífl
![]() Það er hrikalegt að koma út og finna nýja rispu á bílnum, hvað þá svona! Ég lenti í því um daginn að ég leit á húddið hjá mér alveg upp við rúðuna bílstjóramegin... sá ég ekki bara risa dæld, sem virtist vera eftir HAMAR! Og þetta var fyrir utan hjá mér þegar ég kom út um morguninn. Helvítis fulla gengi. Ég veit allavega eitt, og það er að ég fæ mér hús með bílskúr. Nei, ég er saklaus ![]() ![]() ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |