bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Þoli ekki
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=14714
Page 1 of 3

Author:  Stebbtronic [ Mon 27. Mar 2006 22:09 ]
Post subject:  Þoli ekki

Eiga ekki allir svona (þoli ekki) bíla í umferðinni, Ég persónulega hata Musso jeppa meira en flest annað í umferðinni, yfirleitt bara hægfara gamalmenni og alltaf á vinstri akrein. Er ég kannski bara svona skrítinn eða eiga aðrir svona (þoli ekki) bíla?

Author:  Einarsss [ Mon 27. Mar 2006 22:59 ]
Post subject: 

ég hata subaru forester! hyundai accent! imprezzur með bug eyeljósunum og fiat multipla

:twisted:

Author:  Jökull [ Mon 27. Mar 2006 23:25 ]
Post subject: 

Muzzo,Terrano,Patrol,Trooper,Fiat,Peugeot,Opel,Kia..
1.4l Hondur með "kraftkút".Bíla með miklu krómi,
flesta ameríska bíla og bensa.
Og Bíla sem spúa svörtum eða bláum reyk :)

Author:  IceDev [ Mon 27. Mar 2006 23:30 ]
Post subject: 

VITARA OG JIMNY


OOOOJJJJ

Bara gamalt fólk sem á þá bíla

Author:  bimmer [ Mon 27. Mar 2006 23:41 ]
Post subject: 

Það sem fer mest í taugarnar á mér er fólk sem er að keyra hægt á vinstri akgrein.

Væri stundum til í að vera á 3 tonna pickup með öfluga grind framaná og þrykkja aftan á þetta lið.

EDIT: Já en varðandi tegundir þá er Musso ein ógeðslegasta samsuða sem til er - Frankenstein jeppanna.

Author:  zazou [ Mon 27. Mar 2006 23:43 ]
Post subject: 

Suzuki Liana. Klénasta hönnun seinni ára.

Author:  Lindemann [ Tue 28. Mar 2006 00:23 ]
Post subject: 

strætó, og þá sérstaklega gamla strætóa sem brenna greinilega 2 lítrum af smurolíu í hvert skipti sem þeir taka af stað :x

Author:  Stefan325i [ Tue 28. Mar 2006 00:30 ]
Post subject: 

Anda djúpt inn um nefið og út um munnin og læt ekki smáatriði fara í taugarnar á mér..

Author:  HPH [ Tue 28. Mar 2006 00:36 ]
Post subject: 

Stefan325i wrote:
Anda djúpt inn um nefið og út um munnin og læt ekki smáatriði fara í taugarnar á mér..

Sama hér.
Nema fólk sem keirir hækt á vinstri og það er annar sem keirir svipað á hægri og ég kemst ekki nett og er yfir leitt á leiðinni í vinnuna.

Author:  Lindemann [ Tue 28. Mar 2006 01:40 ]
Post subject: 

Stefan325i wrote:
Anda djúpt inn um nefið og út um munnin og læt ekki smáatriði fara í taugarnar á mér..


Ég var alltaf kolbrjálaður undir stýri og lét það pirra mig í hvert skipti sem einhver í kringum mig gerði ekki akkúrat eins og ég vild :lol:
Bensíngjöfin fékk líka oft að finna harkalega fyrir því þegar svona stóð á.

Núna er ég hættur að æsa mig undir stýri og læt oftast ekki margt pirra mig, nema gamla strætóa :lol: .

Er líka búinn að læra núna, loksins, að keyra eðlilega í umferðinni. :oops:

Author:  sindrib [ Tue 28. Mar 2006 02:00 ]
Post subject: 

Imprezur,kangoo,twingo,astra (með spoilerkitti).

en hins vegar þoli ég ekki að vera fyrir aftan VW í bleytu.
polo, golf og soleiðis ausa yfir mann drulluni, ég er farinn að forðast að vera fyrir aftan þessa bíla

Author:  Angelic0- [ Tue 28. Mar 2006 02:04 ]
Post subject: 

Daihatsu Move :evil:

Toyota Corolla og já.. Musso !

Author:  finnbogi [ Tue 28. Mar 2006 02:34 ]
Post subject: 

já hata musso og líka toyota pimus eða prius drasl og já líka 1.3 corollur með prumpu púst og fjólublára gamlar sveittar filmur og gti sílsa

og já líka þessa sliddujeppa , jimmy og rav4(2d)

Author:  fart [ Tue 28. Mar 2006 06:42 ]
Post subject: 

bíla á 38" og stærri + alla þessa ömurlega risapickupa.

Blessunarlega laus við þá hérna úti.

Author:  Schulii [ Tue 28. Mar 2006 08:40 ]
Post subject: 

Það fer fátt í taugarnar á mér í umferðinni. En samt er eitt sérstaklega sem fer í mig. Það er t.d þegar ég kem niður Ártúnshöfðabrekkuna á morgnana og beygji svo til hægri til að komast niður á Sæbrautina. Þar er síðan biðskylda á þá sem eru að koma yfir brúna frá IH og því hverfi. Það er alveg að myndast þessi fína umferðarmennig þarna þar sem tannhjólsverkunin er að gera góða hluti. Nema hvað að alltaf þarf einn og einn að eyðileggja það með því að bruna eftir hægri kantinum fram úr eins mörgum og hann getur og treður sér svo inn í röðina. Svona frekjuskapur fer gífurlega í taugarnar á mér og bara sambærileg dæmi víða. Það var einmitt einn á bláum helv.. Subaru Impreza með gylltum og áluðum felgum á víxl sem lék þennan apaleik í morgun.,. :evil:

En annars er ég bara nokkuð góður sko :angel:

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/