bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

KJ
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=14270
Page 1 of 2

Author:  _Halli_ [ Thu 02. Mar 2006 00:41 ]
Post subject:  KJ

Er eigandi/ökumaður þessa bíls meðlimur hérna á spjallinu?

Ætlaði bara að sýna honum þetta:

Image
og svo kemur
Image

Held að hann viti ekki hvað þetta þýði :roll:

Author:  pallorri [ Thu 02. Mar 2006 00:52 ]
Post subject: 

Held að hann sé ekki skráður á spjallið.

Author:  Angelic0- [ Thu 02. Mar 2006 01:15 ]
Post subject: 

lol..

er þetta ekki E39 bíll ?

finnst hann alltaf aka frekar greitt !

Author:  _Halli_ [ Thu 02. Mar 2006 01:49 ]
Post subject: 

Jú þetta er blár E39, 540

Ég var að keyra í nýja hringtorginu í Skeifunni (fyrir framan Tæknival) og var semsagt að koma frá Everest og var að fara í áttina að Hagkaup.

Keyri inn á hringtorgið og sé þennan fína BMW koma æðandi niður af Grensásveginum á svona 100 og ég hugsa bara "Ok, hann er ekki heiladauður, hann sér alveg að hann keyrir á mig ef hann bíður ekki á biðskyldunni".
Ok, hann sá mig, en hann var ekkert að hægja á sér... ég nelgdi niður og það munaði litlu að ég hefði stimplað hurðina hjá honum með bílnúmerinu mínu... Ok gott mál, maður slapp við að lenda í áreksti við hálfvita og það hefði bara nægt að setja góða tónlist á og þá hefði maður nú örugglega gleymt þessu.

En nei, herra KJ FLAUTAR Á MIG eins og ég sé einhver hálfviti :!:
Svona hlutir gera mann svona "nett pirraðann" :wink:

Svo keyri ég við hliðina á þessum gæja aftur áðan á Vesturlandsveginum og þá er hann æstur í að sýna hestana sína og skýst fram og til baka á veginum, annaðhvort fyrir framan eða aftan mig...

Idiots: DON'T BUY BMW! :D

Author:  Angelic0- [ Thu 02. Mar 2006 03:31 ]
Post subject: 

_Halli_ wrote:

Ég fékk einmitt svipaða hegðun síðast þegar að ég sá þennan BMW, þá var ég á VW Polo.. og hann rétti bara puttann þegar að ég kom út af akgrein sem að var að enda og fyrir hann.. þar sem að hann var að koma á ábyggilega hátt í 200kmh... akgreinin mín var að enda, ég var að gera það sem að var rétt... hann átti ekkert að vera á þessum hraða !

og hvað gerðist.. ég fékk flaut og síðan hnefa sem að breyttist í putta !

Þessi gæji þarf að læra lexíu !

Author:  Einarsss [ Thu 02. Mar 2006 08:22 ]
Post subject: 

talandi um hálfvita skap í umferðinni ... var að keyra niður reykjanesbrautina hjá mjóddinni ... á fjölskyldu rædinu mínu (glæ nýrri mözdu5 sem ég fékk í síðustu viku) og skipti um akrein til að taka fram úr kalli á einhverjum pajero jeppa ... þegar ég er alveg að komast fram úr honum byrjar hann að mjaka sér inná mína akrein og er svona 5 cm frá því að klessa á mig þegar hann fattar hvað hann er að gera..... og þá flautar hann á mig! eins og ég sé að gera e-ð vitlaust :?:

Author:  Jökull [ Thu 02. Mar 2006 09:08 ]
Post subject: 

Er ekki líka mörgum sem bregður það mikið að það bregst við með flauti fattar svo seinna.. "úpps my bad" :)

Author:  Einarsss [ Thu 02. Mar 2006 09:10 ]
Post subject: 

hehe ekki þegar þeir liggja á flautunni í 5-6 sek ;)

Author:  íbbi_ [ Thu 02. Mar 2006 10:15 ]
Post subject: 

ég var um daginn að keyra vesturlandsvegin, var á hægri akrein. á vinstri akrein var f350 á tvöfölldu með vélsleðakerru.. akkurat þegar ég er komin með sona rúmlega hálfnn bílinn við hliðina á honum byrjar hann að færa sig yfir á hægri akrein og þannig að ég þurfti að negla eins harkalega niður og ég gat til að verða ekki fyrir honum.. eftir þetta held ég mig aðeins hægann og ætla sjá hvort hann ætli yfir á hægri, nei hann heldur áfram á vinstri þannig að ég gef aftur í og þá endurtekst það sama..

annars eru yfirleitt tvær hliðar á öllum málum.. fyrir honum var ég eflaust alltaf að stinga mér við hliðina á honum þegar hann var að reyna beygja.. síðan gaf hann mér tíma til að komast framúr og þá gerði ég ekki neitt en stakk mér svo akkurat þegar hann ætlaði að beygja....

Author:  Knud [ Thu 02. Mar 2006 11:00 ]
Post subject: 

Ég þekki gaura sem þekkja þennan KJ og eftir því sem ég hef best heyrt að þetta sé algjör veraldarsauður, sem að þessi dæmi hérna sanna alveg.
En ég meina fólk er fífl, það er þannig og verður þannig. Því er ver og miður :(

Author:  pallorri [ Thu 02. Mar 2006 11:25 ]
Post subject: 

Reyndar stoppaði og spjallaði aðeins við KJ eftir eitthvað run fyrir nokkrum vikum og þetta virtist vera samt ágætlega kammó náungi.

Author:  Angelic0- [ Thu 02. Mar 2006 11:50 ]
Post subject: 

jájá, eflaust fínn gaur..

en hann keyrir samt einsog api !

Author:  Geirinn [ Thu 02. Mar 2006 13:47 ]
Post subject: 

OG ævintýrið hjá svona mönnum endar oft með "ÍÍÍSKUR + CRASH" eða sad sad bláum ljósum eða bara bæði.

Oooog ef þeir eru heppnir þá eignast þeir Toyotu þangað til þeir eru að safna sér fyrir "ALVÖRU" því rædið þeirra fer í rúst.

Author:  Stanky [ Thu 02. Mar 2006 13:50 ]
Post subject: 

aldrei séð þennan iðjóta! En langar hinsvegar að hitta hann í umferðinni! :D

Er þetta fullorðinn maður eða?

Author:  Kull [ Thu 02. Mar 2006 14:36 ]
Post subject: 

Sá hann akkúrat rétt áðan á Sæbrautinni, keyrði frekar greitt og var ekkert að spreða í stefnuljós við akreinskiptin. Var fyrir aftan hann á smá kafla svo þurfti ég að beygja annað.

Laglegur bíll samt :)

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/