bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Wed 07. May 2025 00:27

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 9 posts ] 
Author Message
PostPosted: Wed 15. Feb 2006 19:35 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Mon 13. Sep 2004 18:02
Posts: 469
Sælir, er með flakkara hérna heima frá Sarotech, heitir Aivx...alger snilld..

Var að skoða hann betur að aftan og tók eftir því að það er eins og á flestum tækjum sem ætluð eru sjónvörpum eru þessir klassisku gulur (Video) og rauður og hvítur (audio left and right)

En svo hliðina því er dökkrauður (PR?) og síðan dökkgrænn (y) og síðan dökkblár (PB)

Veit einhver til hvers þeir eru ? :oops:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 15. Feb 2006 19:58 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Fri 02. May 2003 15:58
Posts: 16
Þetta tengi sem þú nefndir fyrst er svokallað composite tengi. Það er gult (video-merkið) og svo rautt og hvítt sem er stereo hljóð.

Composite stendur fyrir samsett, þ.e chrominance og luminance (mætti þýða sem litmerki og birtumerki) er saman á einum kapli. Þetta tengi gefur lökustu gæðin af þessum algengu video tengjum.

Hitt tengið sem þú ert að tala um, þ.e grænt/blátt/rautt er svokallað component tengi. Þ.e hver af grunnlitunum þrem á sinni snúrunni. Athugaðu að þessar snúrur flytja ekki hljóð. Þetta tengi er eingöngu fyrir mynd. Þetta tengi gefur kost á mun betri mynd heldur en composite og er t.d oft notað á milli HD (High definition) tækja og t.d DVD spilara.

Semsagt ... ef sjónvarpið þitt er með component tengi, endilega notaðu það þá til að tengja Sarotechinn við það.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 15. Feb 2006 19:58 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Posts: 3733
Location: 108
Ég á svona græju. MESTA SNILLD Í HEIMI!!! :D en ég hef ekki guðmund um það til hvers hin tengin eru.... :roll:

_________________
Alpina wrote:
er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 15. Feb 2006 20:21 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
hagur wrote:
Hitt tengið sem þú ert að tala um, þ.e grænt/blátt/rautt er svokallað component tengi. Þ.e hver af grunnlitunum þrem á sinni snúrunni. Athugaðu að þessar snúrur flytja ekki hljóð. Þetta tengi er eingöngu fyrir mynd. Þetta tengi gefur kost á mun betri mynd heldur en composite og er t.d oft notað á milli HD (High definition) tækja og t.d DVD spilara.


Þetta er næstum því rétt.

Y/PR/PB er skilgreint sem eftirfarandi:

Y = birtuhluti sjónvarpsmerkisins (luminance)
PR = mismunur Y og rauða litarins í myndinni
PB = mismunur Y og bláa litarins í myndinni

Þetta er gert svona þar sem merkið verður meira compact og þægilegra í vinnslu.

Ath, það "vantar" ekki græna litinn, hægt að reikna hann út frá Y, PR og PB.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 15. Feb 2006 21:31 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Fri 02. May 2003 15:58
Posts: 16
Rétt skal vera rétt, ég var aðeins of fljótur á mér þarna :wink: Hef eitthvað verið að rugla þessu saman við RGB eða e-ð.

Semi-OT: Þið sem eigið svona Sarotech græju ... hvernig er hún að virka annars?

Haldast hljóð og mynd alltaf í sync? Hverskonar skrár eruð þið að spila í þessu helst?

Hafið þið t.d verið að spila þessa týpísku DivX/Xvid þætti frá lol grúbbunni eins og LOST , 24, Desperate Housewives etc.? Ef svo er, er það að virka fínt?

Er nefnilega eð leita mér að einfaldri græju til að tengja við skjáinn inní hjónaherbergi ... nenni ómögulega að vera með heila tölvu til þess :shock:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 15. Feb 2006 21:44 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Posts: 2807
Location: Reykjavík
hagur wrote:
Semi-OT: Þið sem eigið svona Sarotech græju ... hvernig er hún að virka annars?

Haldast hljóð og mynd alltaf í sync? Hverskonar skrár eruð þið að spila í þessu helst?

Hafið þið t.d verið að spila þessa týpísku DivX/Xvid þætti frá lol grúbbunni eins og LOST , 24, Desperate Housewives etc.? Ef svo er, er það að virka fínt?


Ég hef verið að horfa svolítið á þetta og gæðir eru bara fín. Allavega hef ég ekkert verið að kvarta yfir þeim. :)

Stórsniðugt tæki!


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 15. Feb 2006 22:26 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Mon 05. May 2003 22:18
Posts: 77
Í Sambandi við þetta dc og tad allt, fyrir áramót tá var ég alltaf að downloda öllum nyjustu þáttunum en er farið að vanta núna.

hvar eruð þið að downloda núna eg var að nota Dc fyrir áramót, eru einhverjir höbbar uppi á Dc ennþá ? og hver er slóðin á þá ?

EÐa hvað ?

_________________
Bmw 320ia E-36 97 ( í Notkun)
Subaru Legacy 92 4wd (Seldur)
BMW 316 E-30 88 (Seldur)
Ktm 125sx 02 (Selt)
Plymouth sundance 2,2 Turbo 87 (parta seldur)
Dodge Shadow 2,5 Turbo 89 (seldur)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 15. Feb 2006 22:41 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
Hum, mín reynsla af svona græju er nú misgóð... samt ágæt :roll:

Hljóðið hefur stundum dottið út sem er skrítnasti parturinn (lagast eftir reboot) og svo er auðvitað ekki hægt að spila öll formöt, stundum kemur bara svartur skjár.

Ekki mín græja samt þannig ég veit ekki hvaða formöt það voru sem virkuðu ekki eða afhverju.

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 16. Feb 2006 01:45 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Posts: 15561
Location: Keflavík
Fyrir þá sem að vilja alvöru fara í www.tolvuvirkni.net og kaupa sér Xpc Media Center :)

_________________
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 9 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 29 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group