bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Púst á saumavél https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=13779 |
Page 1 of 1 |
Author: | gunnar [ Fri 03. Feb 2006 09:48 ] |
Post subject: | Púst á saumavél |
Ég hef nokkrar spurningar.. Og já ég er búinn að lesa púst þráðinn en það svarar ekki alveg spurningunni minni.. Ég er með Suzuki Jimny eins og flestir vita.. Og ekkert gífurlegt afl þar á ferð. Pælingin mín er sú, Í fyrsta lagi, græði ég eitthvað á því að berja úr hvarfanum, þe.a.s taka allt innan úr honum sem er að hindra loft. Og ef ég geri það, kemst í í gegnum skoðun þannig? Þessi bíll mengar nú varla ógurlega.. Eða er þetta bara reiknað hlutfallslega. Annað sem ég er að pæla, pústið hjá mér er nú ekki mjög svert.. Ef maður færi í það að stækka það í hvaða stærð færi ég? 2 tommur ? 2 1/3 eða einhvað svoleiðis. Annað, það er svona skynjaragaur á pústinu hjá mér. Skoða mynd http://hard-trance.net/jimny/85.jpg Eins líka gæti ég sett örlítið sverar púst bara á eftir hvarfanum, mér finnst það alveg sæmilega svert fyrir framan hvarfa, en ekki þegar það kemur úr honum.. Sjá myndir (pósta bara nokkrum til öryggis) http://hard-trance.net/jimny/86.jpg http://hard-trance.net/jimny/87.jpg Finnst þessar beygjur alveg skelfilegar.. http://hard-trance.net/jimny/88.jpg http://hard-trance.net/jimny/89.jpg Þarf ég endakútinn, fæ ég skoðun ef ég er ekki með hann? http://hard-trance.net/jimny/90.jpg Endilega komið með einhverja hugmynd, ég er ekki að leita eftir hljóði, heldur bara örlítið skemmtilegri bíl. |
Author: | gstuning [ Fri 03. Feb 2006 10:04 ] |
Post subject: | |
Hvað er vélin kraftmikil Hvað er pústið núna vítt þá fyrir framann og aftann hvarfann, |
Author: | gunnar [ Fri 03. Feb 2006 10:12 ] |
Post subject: | |
Heyrðu, ég mæli pústið með skífumáli á eftir.. En ja þetta er 1300 cc mótor sem skilar 82 hestöflum.. |
Author: | gstuning [ Fri 03. Feb 2006 10:21 ] |
Post subject: | |
gunnar wrote: Heyrðu, ég mæli pústið með skífumáli á eftir.. En ja
þetta er 1300 cc mótor sem skilar 82 hestöflum.. Fyrir eitthvað svona smátt held ég að 1 x "1,75 sé alveg nóg, þá setja "2 hvarfa í miðjuna og "1,75 rör báðum meginn |
Author: | Twincam [ Sat 04. Feb 2006 01:49 ] |
Post subject: | |
2 tommur eru það allra sverasta sem þú skalt hugsa um að setja í hann.. og varla það. Sýnist samt á þessum myndum að þetta púst sem er í honum sé 1.75", samt erfitt að dæma það af bara myndum. ![]() En þar sem þú ert búinn að hækka hann duglega upp, þá ættir þú að geta leyft þér að hafa pústið með örlítið færri beygjum á en orginallinn er með. ps. Ættir endilega að íhuga að mála hásingarnar, finnst þetta svo subbulegt svona ryðgað og ljótt ![]() |
Author: | Angelic0- [ Sat 04. Feb 2006 01:56 ] |
Post subject: | |
sýnist þetta vera 1,25" púst, ef að það er rétt.. ekki fara í stærra en 1,75, annars bara 2"... en þessir skynjarar eru oft bögg, og það sem að við gerðum (með dakotuna hjá pabba) var að prófa að setja bara rör í stað hvarfakútsins og sjá hvort að hann kemur með einhverja villuboða á það! ef að ekkert check engine ljós kemur eftir rúman klukkutíma akstur ætti þetta að vera safe... fínt að eiga hvarfann bara til að henda í fyrir skoðun og geta fleygt honum úr og sett rör í staðinn bara... Þannig er þetta græjað hjá okkur. bara flangsar á rörstúfinn, og flangsar á hvarfakútnum.. Hugsa að stærsti gróðinn hjá þér væri að prófa að taka bara hvarfann úr til að byrja með (með rörhugmyndinni) og sjá hvort að hann verður ekki sprækari ! |
Author: | gdawg [ Sat 04. Feb 2006 13:19 ] |
Post subject: | |
Svona til viðmiðunar þá er bíllinn minn með 1300 mótor og opið púst sem er 1.75" og það er sama púst og er notað á vel heita þannig mótora. |
Author: | gstuning [ Sat 04. Feb 2006 13:22 ] |
Post subject: | |
gdawg wrote: Svona til viðmiðunar þá er bíllinn minn með 1300 mótor og opið púst sem er 1.75" og það er sama púst og er notað á vel heita þannig mótora.
thats settles it ![]() "1,75 is it, |
Author: | gunnar [ Sat 04. Feb 2006 13:31 ] |
Post subject: | |
Þarf að mæla samt hver orginal breiddin er.. Ef hún er sver fram að hvarfa, borgar sig þá kannski bara að víkka pústið eftir hvarfa, berja úr honum og leyfa þessu að vera þannig bara ? |
Author: | Twincam [ Sat 04. Feb 2006 14:20 ] |
Post subject: | |
gunnar wrote: Þarf að mæla samt hver orginal breiddin er..
Ef hún er sver fram að hvarfa, borgar sig þá kannski bara að víkka pústið eftir hvarfa, berja úr honum og leyfa þessu að vera þannig bara ? hugsa að það yrði alveg nóg ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |