Ég keypti mér þennan bíl frá Florida rétt fyrir jól og kemur hann á götuna í dag. Um er að ræða Chrysler Crossfire Limited árgerð 2005. Bíllinn er Coupe sem er töluvert stílbrot hjá mér þar sem ég hef átt blæjubíla undanfarin 3 ár. Ástæða þess að ég valdi Coupe er vegna þess að ég féll fyrir þeirri útfærslu upprunalega auk þess sem ég vildi stífleikan í boddýið sem er ekki mögulegt í blæjubílnum þar sem harður toppur er mér vitanlega ekki fáanlegur.
Bíllinn kom á götuna í mars 2005 og er ekinn aðeins 8 þús mílur. Einn eigandi var að bílnum í USA. Bíllinn er með öllum hugsanlegum aukahlutum úr verksmiðju nema að sjálfsögðu sjálfskiptingu og er bíllinn því með 6 gíra sportlegum kassa. Mörgum sportbílaáhugamönnum finnst lítið varið í bandaríska sportbíla og er ég þar á meðal. Ekki það að ég hafi eitthvað á móti þessum bílum heldur eru þjóðverjar bara færari í þessum iðnaði. Crossfire á lítið skylt við Bandaríkin þar sem þessi bill er í raun þýskur. Hann er smíðaður af Karmann í Þýskalandi og allt kram er fengið úr Mercedes Benz SLK 320. Vélin er 3,2 lítra V6 sem skilar 215 hestöflum við 5.700 rpm og Torque 229 við 3000 rpm. Bíllinn er 6,5 í hundraðið. Þyngdardreifingin er 54% front vs. 46% rear. Í Limited útfærslu vegur bíllinn 1388 kg.
Crossfire er ekki beint algengur bíll hér á landi og er þetta þriðji bíllinn sem kemur á götuna en auk þess er tveir óskráðir bílar til sölu í sitthvoru umboðinu. Það sem þessi hefur umfram hina bílana hér á landi er 6 gíra kassinn sem er að mínu mati algjört lykilatriði í 2 sæta sportara.
Eftirfarandi er búnaður í bílnum sem ég man eftir
Rautt og dökkgrátt tvílitt leður
ABS
ASR spólvörn
Dekkin eru Michelin Pilot Sport 2 og er stærðin 225/40ZR18 að framan og 255/35RZ19 að aftan
Felgurnar eru 18x7,5 tommur að framan og 19x9 tommur að aftan
ESP stöðugleikakerfi
Fjarstýrðar samlæsingar með þjófavörn og panic sírenu
Geislaspilari
High Intensity Discharge( Xenon birta) framljós og kastarar
Reyklitaðar rúður
Loftkæling
Navigation kerfi
Rafdrifin sæti, speglar og rúður
Spoiler sem er rafknúinn og fer upp þegar hundraðið nálgast
Dekkjaviðgerðarsett sem samanstendur meðal annars af 12 volta loftdælu
Bílskúrshurðaopnari
Glasahaldari
Hitamælir
Hiti í sætum
Hitaðir aðfellanlegir speglar
Viðgerðarsett
240 watta magnari og 6 hátalara Infinity kerfi með Subwoofer
Ég smellti nokkrum myndum af eftir fyrsta þvottinn en til stendur að taka betri myndir

_________________
BMW X3 M tech (F25) árg. 2015
VW Golf MK 3,5 cabriolet árg. 2001
Porsche 911 SC árg. 1980
Porsche 924 árg. 1982
Porsche 928 S4 árg. 1991
Nikolai Smolenski wrote:
Buy a Ferrari and you become a member of a club. Buy a TVR and you remain an individual