bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Ráð varðandi kaup á digital cameru
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=13519
Page 1 of 1

Author:  ta [ Wed 18. Jan 2006 21:25 ]
Post subject:  Ráð varðandi kaup á digital cameru

ég er að skoða mig um,
þekki þetta bara ekki neitt.
Eru þið með einhverjar ábendingar.
ég ætla að nota þetta til að taka
upp fjölskylduvideo. Ég nota mac,
og ætla ekki í mjög dýra vél.

fyrirfram takk :D

Author:  Kristjan [ Wed 18. Jan 2006 21:28 ]
Post subject: 

Taktu bara einhverja meðal Sony vél með Firewire tengi og þú ert góður, þarf ekkert að kosta neitt mikið. 45k kannski ef mér skjátlast ekki

Author:  ///Matti [ Wed 18. Jan 2006 21:40 ]
Post subject: 

Canon 8) 8)

Author:  Hrannar [ Wed 18. Jan 2006 21:52 ]
Post subject:  Myndavélar

Sjáðu hvað þessir gæjar hafa að segja um málið.
http://www.dpreview.com

Author:  Jón Ragnar [ Wed 18. Jan 2006 22:08 ]
Post subject: 

Canon 350d! :o

Author:  ta [ Wed 18. Jan 2006 22:10 ]
Post subject:  Re: Myndavélar

Hrannar wrote:
Sjáðu hvað þessir gæjar hafa að segja um málið.
http://www.dpreview.com


eru þetta ekki bara myndavélar, sé ekkert um video camerur.
takk samt :wink:

Author:  bimmer [ Thu 19. Jan 2006 00:41 ]
Post subject: 

Hvað er budgetið?

Author:  ta [ Thu 19. Jan 2006 07:50 ]
Post subject: 

bimmer wrote:
Hvað er budgetið?


var að spá í þessar 4 , en held að þetta sé
spurning um sony eða canon.
Image

Author:  bimmer [ Thu 19. Jan 2006 08:52 ]
Post subject: 

Ok, þar sem ég er algjör Sony kall myndi ég taka Sony vélina ef ég væri að velja milli þessara fjögurra.

En hins vegar myndi ég ekki kaupa standard def (SD) vél í dag.

High Definition (HD) vélarnar eru dýrari en þær skila MIKLU betri mynd. Ef fólk er að nota þetta til að taka ómetanlegar myndir af börnunum og fjölskyldunni sem á að skoða og hafa gaman af eftir 10-20 ár þá held ég að SD verði svolítið morkið.

Varðandi muninn á upplausn í SD og HD þá eru tölurnar hér:

SD 720x576 pixlar (SD PAL) alls 414.720 pixlar
HD 1920x1080 pixlar (Full HD) alls 2.073.600 pixlar

Það eru því 5 sinnum fleiri pixlar í HD og það er VERULEGUR munur að horfa á :)
Margir sem sjá HD í fyrsta sinn á almennilegum skjá með fulla upplausn segja "Vá, þetta er eins og í bíó!!!"

Er að spá í að taka sjálfur þessa vél hérna:

http://www.bhphotovideo.com/bnh/controller/home?O=productlist&A=details&Q=&sku=385368&is=REG&addedTroughType=search

Þó svo að þú sért ekki með HD klippigræjur eða sjónvarp núna þá getur þú tekið efnið út í SD og unnið það þannig núna. Svo upp á seinni tíma áttu allt efnið á HD.

Geri mér alveg grein fyrir að verðmunurinn er mikill en allavega horfi ég á það þannig að minningarnar sem maður er að taka upp séu þess virði að hafa þær í topp gæðum.

Author:  ta [ Thu 19. Jan 2006 10:17 ]
Post subject: 

takk fyrir svörin, sérstaklega frá Þórði.
vissi ekkert um þetta. :|

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/