Ritstjórar DV segja upp

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Ritstjórar DV segja upp

Postby HPH » Fri 13. Jan 2006 09:59

Tekið af MBL.is
Ritstjórar DV, þeir Jónas Kristjánsson og Mikael Torfason, hafa sagt upp störfum. Í fréttatilkynningu sem þeir hafa sent frá sér segir að: „DV hefur lent í ófriði í umræðum í þjóðfélaginu undanfarna daga. Nauðsynlegt er að skapa að nýju ró um blaðið og koma á vinnufriði hjá öllu því dugandi starfsfólki, sem unnið hefur á ýmsum sviðum þess. Til þess að svo megi verða höfum við sagt af okkur sem ritstjórar blaðsins frá og með deginum í dag."

Í þeirra stað hafa þeir Björgvin Guðmundsson og Páll Baldvin Baldvinsson verið ráðnir ritstjórar DV frá og með deginum í dag.

Í tilkynningu frá 365 miðlum kemur fram að Björgvin hóf störf á Fréttablaðinu þegar það var stofnað vorið 2001. Í upphafi árs 2003 réði hann sig á ritstjórn Morgunblaðsins þar til hann snéri aftur og tók þátt í stofnun Markaðarins, fylgiblaðs Fréttablaðsins um viðskipti, í apríl 2005.

Björgvin var formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, í tvö ár og sat í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna. Hann hefur stundað nám í hagfræði við Háskóla Íslands.

Páll Baldvin Baldvinsson hóf störf á DV í ágúst 2004 og hefur gegnt starfi menningarritstjóra blaðsins.

Hann var innkaupastjóri Stöðvar 2 1987-199, dagskrárstjóri 1995-2001 og listrænn ráðunautur Leikfélags Reykjavíkur 1991-1995. Páll Baldvin var ritstjóri Stúdentablaðsins 1975-1977 og hefur fjallað um menningarmál í fjölmiðlum frá 1970 á Tímanum, Þjóðviljanum og DV, RÚV, Stöð 2 og NFS.

Páll Baldvin er menntaður í bókmenntafræði frá Háskóla Íslands og leikhúsfræði frá Goldsmith College í London.



http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1178849
E46 330ix touring.
BMW er lífstíll. Við erum 10árum á undan öllum öðrum.
User avatar
HPH
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3209
Joined: Sun 04. Jan 2004 15:36
Location: inn í bílnum þínum.

Postby Thrullerinn » Fri 13. Jan 2006 10:23

Ísland er alltof lítið land fyrir svona blað, einfaldasta og friðsamlegasta
lausnin væri að leggja það niður.

Það er nánast ekkert nema neikvæðar fréttir og greinar sem er birtar á
síðum þess.
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby Djofullinn » Fri 13. Jan 2006 10:44

:clap:
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby Einarsss » Fri 13. Jan 2006 10:55

Djofullinn wrote::clap:
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby pallorri » Fri 13. Jan 2006 10:56

Image

Ég skeini mér með DV.
pallorri
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1452
Joined: Wed 13. Apr 2005 18:27

Postby HPH » Fri 13. Jan 2006 11:05

trapt wrote:Image

Ég skeini mér með DV.

DV er of ómerkilekt blað til að skeina sér með því.
btw. ég vann einusinni hjá DV. ekki sem blað beri.
E46 330ix touring.
BMW er lífstíll. Við erum 10árum á undan öllum öðrum.
User avatar
HPH
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3209
Joined: Sun 04. Jan 2004 15:36
Location: inn í bílnum þínum.

Postby Hemmi » Fri 13. Jan 2006 11:16

trapt wrote:Image

Ég skeini mér með DV.


passa bara að fá ekki blekeitrun :P
User avatar
Hemmi
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1045
Joined: Fri 25. Feb 2005 21:41
Location: Spánn

Postby gunnar » Fri 13. Jan 2006 11:56

Þetta er alla vega byrjun, næsta skrefið er að sjálfsögðu að hætta að versla þetta sorprit...

Skil ekki í fólki sem kaupir þetta.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Jónki 320i ´84 » Fri 13. Jan 2006 19:10

:clap:
Jónki
325i ´90 e30 M-techII
320i ´84 e30 Seldur
Vantar þig viðgerð á bílnum S:697-9021
Image
User avatar
Jónki 320i ´84
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1494
Joined: Sun 08. Jun 2003 03:11
Location: Reykjavík


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 52 guests