bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
VW + pollur = tritrandi og fer ekki í gang... https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=13109 |
Page 1 of 2 |
Author: | krullih [ Sun 25. Dec 2005 17:03 ] |
Post subject: | VW + pollur = tritrandi og fer ekki í gang... |
Ég var að keyra núna rétt áðan á Poloinum mínum(afsakið að þetta sé ekki bmw, bara held að þið séuð betri á bílum en l2c ![]() Við prufuðum að gefa honum start, héldum að rafgeimirinn væri farinn en allt kom fyrir ekki.. Gæti einhver gefið mér ástæðuna fyrir þessu? hann kveikir ekki sama hvað ég nauðga svissnum, en við náðum honum í gang þegar við ýttum honum en þá gaf hann ekkert inn... Endilega aðstoðið mig :S með von um góðar viðtökur Jonni |
Author: | Herra13 [ Sun 25. Dec 2005 17:06 ] |
Post subject: | |
Það er líklega vatn í kveikjulokinu, það þarf að þurrka það ![]() |
Author: | krullih [ Sun 25. Dec 2005 17:07 ] |
Post subject: | |
og hvar er það staðsett? ég er hræðilegur í kringum bíla :S |
Author: | Twincam [ Sun 25. Dec 2005 19:08 ] |
Post subject: | |
krullih wrote: og hvar er það staðsett? ég er hræðilegur í kringum bíla :S
vá... ég er nú aðallega á L2C .. og meira að segja ég veit hvar kveikjulokið er í mínum Polo.. og bara bílum yfirleitt... kveikjulokið er á hægri hlið vélarinnar þegar þú stendur fyrir framan húddið.. í það tengjast 4 vírar og einn í miðjuna.. ekki flókið.. ![]() |
Author: | fart [ Sun 25. Dec 2005 21:14 ] |
Post subject: | |
Helvítið hefur blotnað.. VW er rusl þegar rignir eða snjóar. |
Author: | IvanAnders [ Sun 25. Dec 2005 21:54 ] |
Post subject: | |
fart wrote: Helvítið hefur blotnað.. VW er rusl þegar rignir eða snjóar.
![]() |
Author: | Twincam [ Sun 25. Dec 2005 22:41 ] |
Post subject: | |
fart wrote: Helvítið hefur blotnað.. VW er rusl þegar rignir eða snjóar.
hef nú ekki orðið var við það að minn sé nokkuð verri í snjó né rigningu.. né heldur þeir 3 hinir VW bílar sem hafa verið á þessu heimili... svona alhæfingar getur þú bara ekki komið með um eina tegund! ![]() |
Author: | fart [ Sun 25. Dec 2005 23:21 ] |
Post subject: | |
Twincam wrote: fart wrote: Helvítið hefur blotnað.. VW er rusl þegar rignir eða snjóar. hef nú ekki orðið var við það að minn sé nokkuð verri í snjó né rigningu.. né heldur þeir 3 hinir VW bílar sem hafa verið á þessu heimili... svona alhæfingar getur þú bara ekki komið með um eina tegund! ![]() Það hlýtur þá að vera einskær tilviljun að 3 VW Golf bílar (1 sem ég átti, 1 sem mamma átti og 1 sem vinnufélagi konunnar átti, allir í kringum 1995-1997 árgerð) voru alltaf að blotna og nánast óökuhæfir ef það skóf úti, eða voru stórir pollar. En who gives a shit. |
Author: | krullih [ Mon 26. Dec 2005 01:31 ] |
Post subject: | |
okey, hvernig laga ég það ? læt hann standa? heelp ! ![]() |
Author: | gstuning [ Mon 26. Dec 2005 01:54 ] |
Post subject: | |
krullih wrote: okey, hvernig laga ég það ? læt hann standa? heelp !
![]() Tekur lokið af og sprautar start spray-i í lokið, þurkar allt bara með tusku áður |
Author: | íbbi_ [ Mon 26. Dec 2005 05:13 ] |
Post subject: | |
fart wrote: Twincam wrote: fart wrote: Helvítið hefur blotnað.. VW er rusl þegar rignir eða snjóar. hef nú ekki orðið var við það að minn sé nokkuð verri í snjó né rigningu.. né heldur þeir 3 hinir VW bílar sem hafa verið á þessu heimili... svona alhæfingar getur þú bara ekki komið með um eina tegund! ![]() Það hlýtur þá að vera einskær tilviljun að 3 VW Golf bílar (1 sem ég átti, 1 sem mamma átti og 1 sem vinnufélagi konunnar átti, allir í kringum 1995-1997 árgerð) voru alltaf að blotna og nánast óökuhæfir ef það skóf úti, eða voru stórir pollar. En who gives a shit. þið voruð ekkert ein um þetta ![]() |
Author: | Twincam [ Mon 26. Dec 2005 13:19 ] |
Post subject: | |
ég veit það ekki.. við höfum verið með '96 , '97 , '98 og '99 árgerðina af VW bílum minnir mig.. og það voru Polo, 2xGolf og svo Passat .. aldrei bleytuvandamál með þá.. ![]() |
Author: | Helgi M [ Mon 26. Dec 2005 14:00 ] |
Post subject: | |
Twincam wrote: ég veit það ekki.. við höfum verið með '96 , '97 , '98 og '99 árgerðina af VW bílum minnir mig.. og það voru Polo, 2xGolf og svo Passat .. aldrei bleytuvandamál með þá..
![]() Ég hef heyrt rosalega mismunandi sögur af VW en vinur minn átti golf 1600 held ég og var 95 árg,, og ef að það so sem fór rétt undir frostmark þá þurfti hann að fara inní bílinn í gegnum skottið því það var allt svo harðlæst og frosið fast að það var enginn önnur leið svo þurfti hann að hafa miðstöðina í botni þangað til að læsingarnar gátu hreyft við sér,, og ekki var það nú betra en svo að það var endalaust gangvesen á honum,, hann tók oft uppá því bar aða drepa á sér hér og þar og fór svo ekkert í gang fyrr en hann vildi, en það var rosalega mismunandi, stundum eftir 1 mín og stundum eftir heilan dag, og svo hikstaði hann alltaf, eins og enginn væri morgundagurinn,,, en útaf fyrir mig þá forðast ég VW eins og heitan eldinn bara útaf reynslunni sem vinir mínir og kunningjar segja um sína VW en það má vel vera að það sé eikkað bull þó ég hafi verið vitni af þeim flestum,, sem og maður hefur alls ekki heyrt góðar sögur af Heklu sem og IH umboðunum,, þeir sem að hafa átt viðskipti við þá segja manni að reyna að koma aldrey nálægt þessum glæpamönnum,, en eins og fyrr sagði þá getur það vel verið að það sé enn önnur kjaftasagan sem margir geta sagt ![]() ![]() |
Author: | Twincam [ Mon 26. Dec 2005 16:12 ] |
Post subject: | |
ég hef reyndar lent í þessu með að læsingarnar í framhurðunum frjósi fastar.. en það er af því ég setti hann alltaf minnst einu sinni í viku í þvottavélina síðasta vetur.. og nennti svo ekki að smyrja þetta upp í sumar ![]() en gangtruflanir í frosti og bleytu höfum við ekki orðið vör við í okkar VW bifreiðum.. og er ég alveg óhræddur við að fjárfesta aftur í VW ef áhuginn hjá mér beinist að öðrum VW.. ![]() En sitt sýnist hverjum víst... ![]() |
Author: | fart [ Mon 26. Dec 2005 17:13 ] |
Post subject: | |
Ég þorði nú ekki minnast á læsingarnar.. en ég hef bæði læst úti og inni í þessum fjandast bíl. Mamma líka. BTW.. þetta var held ég árið 2000 og bíllinn c.a. 4ra ára. Pissed off as hell og kaupi þetta stuff ekki aftur. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |