Hvað er það asnalegasta sem þið hafið lent í á bílunum?

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Hvað er það asnalegasta sem þið hafið lent í á bílunum?

Postby Siggi H » Thu 22. Dec 2005 08:21

já einsog topic segir.. hvað er það asnalegasta sem þið hafið lent í á bílunum ykkar? ég skal byrja með án efa eina af bestu sögunum. :lol:

2 atvik.. sem ég er þekktur fyrir hérna á neskaupstað sem endaði illa

1: keyrði toyotu corollu GTi '88 inná kvennaklóstið í Nesskóla þegar ég var 17 ára og það besta við það að það gerðust þrjú atvik á sama degi með þennan bíl.. fyrst byrjaði ég á að bakka á kall á olísplaninu og svo vorum ég og félagi minn á 90km/h og ákvöðum að beygja niðrá réttingarverkstæði þegar við vorum komnir að beygjunni (þess má geta að það var vetur) og við náðum ekki beygjunni og veltum corollunni á hlið oní skurð og KALLINN SEM ÉG BAKKAÐI Á fyrir hádegið keyrði frammhjá og STARÐI BARA.. og svo á miðnætti þá gat ég ekki stoppað eftir að ég kom á fleygiferð upp brekku og keyrði inná kvennaklóstið á nesskóla.. og KONA KALLSINS SEM ÉG BAKKAÐI Á OG SEM KEYRÐI FRAMMHJÁ ÞEGAR VIÐ VELTUM VINNUR Í SKÓLANUM.

2: keyrði yfir gangstéttarkant eftir misheppnaða handbremsubeygju og rann niður brekku og velti subaru justy 4x4 '89 niðrá sjúkrahúsplanið og var valinn maður vikunar í útvarpinu fyrir það í fyrra.

þetta eru einu bílarnir sem ég hef eyðilagt síðan ég fékk prófið.
mussi bubbi slappi
User avatar
Siggi H
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 445
Joined: Sat 11. Sep 2004 18:09
Location: Nesk.

Postby Einarsss » Thu 22. Dec 2005 08:32

LoL! .... ég held ég vilji ekki setjast í bíl með þér ;)


Man ekki eftir að hafa lent í einhverju asnalegu nema að hafa verið að slæda á 318 í snjó og runnið á kant og eyðilagt dekk.... sem er ekkert á miðað við þessa frásögn :D
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby pallorri » Thu 22. Dec 2005 08:53

Siggi ertu heill á geði? 8)

Bakkaði úr ömurlega illa hönnuðu bílastæði í hliðina á kyrrstæðan bíl.
Það var reyndar grenjandi rigning og niðadimmt. Svo hef ég beyglað
nokkrar stálfelgur eftir misheppnaðar handbremsubeygjur á mömmu bíl.

Driftaði svo næstum því á ÓB hliðina á KFC í Kópavoginum en
gangstéttarkantur bjargaði því sem betur fer :P
pallorri
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1452
Joined: Wed 13. Apr 2005 18:27

Re: Hvað er það asnalegasta sem þið hafið lent í á bílunum?

Postby ///MR HUNG » Thu 22. Dec 2005 09:07

Siggi G wrote:2: keyrði yfir gangstéttarkant eftir misheppnaða handbremsubeygju og rann niður brekku og velti subaru justy 4x4 '89 niðrá sjúkrahúsplanið og var valinn maður vikunar í útvarpinu fyrir það í fyrra.
Tók handbremsan nokkuð á frammhjólunum enis og gömlu súbbarnir gerðu?Það hafa nokkrir farið ílla út úr því :lol:
330D E46 TOURING MTECH I
320D E46 TOURING
318I E46 (TI 3VOM)

E46 Í RIFI:
330XD TOURING
320D TOURING
318I SEDAN 98-04
323I coupe 99


E46/E39 ///M5 Í RIFI

S:8204469


Image
User avatar
///MR HUNG
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6493
Joined: Tue 31. Dec 2002 23:10
Location: Hrafnista

Postby fart » Thu 22. Dec 2005 10:13

1. braut drifið á 318i E30 1985 HZ-121 á Laugaveginum á föstudegi. Bíllinn sat fastur, var ekkert hægt að hreyfa hann. Endaði á því að setja í fyrsta gír og clutch droppa, Náði einhvernvegin að brjóta drifið betur þannig að það var hægt að ýta bílnum í stæði.

2. Sat fastur í bílstjórasætinu á VW Golf á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar í hádeginu á Laugardegi fyrir Jól. Bíllinn blautur eftir snjó og búinn að læsa mig inni. Endaði á því að skríða út um gluggann.

3. Fékk lánaðan glænýjan Subaru Legacy hjá Pabba til að fara á rúntinn að því að það var geðveikislega vont veður úti. (meira að segja fyrsta Subaru Legacyinn ever á landinu). Bíllinn var keyrður 30 kílómetra þegar ég bakkaði á vegg.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby Einarsss » Thu 22. Dec 2005 10:18

hahaha .... hvernig fórstu að því að brjóta drifið á laugaveginum ? og afhverju þurftiru að fara út úr bílnum á gatnamótum kringlumýrarbrautar og miklubrautar ?
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby fart » Thu 22. Dec 2005 10:20

einarsss wrote:hahaha .... hvernig fórstu að því að brjóta drifið á laugaveginum ? og afhverju þurftiru að fara út úr bílnum á gatnamótum kringlumýrarbrautar og miklubrautar ?


Drifið bara brotnaði.. eða festist einhvernvegin. Var búinn að vera mjög duglegur að spóla, en var að keyra rólega þegar þetta gerðist.

Ég þurfti að komast út úr Golfinum til að ýta honum yfir gatnamótin. Hann var blautur og vildi ekki í gang.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: Hvað er það asnalegasta sem þið hafið lent í á bílunum?

Postby Siggi H » Thu 22. Dec 2005 14:39

MR HUNG wrote:
Siggi G wrote:2: keyrði yfir gangstéttarkant eftir misheppnaða handbremsubeygju og rann niður brekku og velti subaru justy 4x4 '89 niðrá sjúkrahúsplanið og var valinn maður vikunar í útvarpinu fyrir það í fyrra.
Tók handbremsan nokkuð á frammhjólunum enis og gömlu súbbarnir gerðu?Það hafa nokkrir farið ílla út úr því :lol:

nei hún tók á afturhjólunum! ég var búinn að eiga þennan bíl vel lengi svo að ég ætti nú að vita muninn :wink:
mussi bubbi slappi
User avatar
Siggi H
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 445
Joined: Sat 11. Sep 2004 18:09
Location: Nesk.

Postby arnibjorn » Thu 22. Dec 2005 15:18

hvað er að clutch droppa? :roll: :oops:
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby Einsii » Thu 22. Dec 2005 15:25

arnibjorn wrote:hvað er að clutch droppa? :roll: :oops:

Clutch = Kúppling
Dropp = Sleppa..
hann sennilega bara gaf bílnum aðeins inn og slepti svo kúpplinguni :)
Einsii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2413
Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Location: 105 Reykjavík

Postby Angelic0- » Thu 22. Dec 2005 15:33

kóperað beint af l2c !

tæplega 20mín standing burnout á 1.4 golf á hraðahindrun, sá blá ljós, reyndi að stinga lögguna af.. tókst það svona eiginlega nema hvað að ég velti bílnum upp á grashól og náði að fara út og snúa honuim við áður en löggan kom.... löggan stoppaði mig svo, og sektaði mig fyrir ólöglegt pústkerfi, notkun nagladekkja án heimildar (veit ekki alveg hvernig það náðu 2 naglar að hanga í dekkinu ennþá og löggan fann þá, dekkið var nánast rennislétt og hitt dekkið komið niður í víra), ónæði við heimahús og svo tíndi hún nokkur önnur atriði og límdi á mig boðun í skoðun!

Rearward 180° á Civic Type-R til að forða mér frá árekstri við Chevrolet Silverado!

"Drift" á 190 á reykjanesbrautinni, var að koma út af tvöfölduninni á leiðinni inn í hafnarfjörð á Civic Type-R!

Offroad á Justy, tilheyrandi hálkuslæd og fínerí, enda 4wd, endaði með því að gírkassin "brákaðist aðeins" eftir að hafa notað bakkgírinn til að forða mér frá árekstri við ljósastaura og ýmislegt annað. Fastur í 2 gír núna, og bíður eftir gírkassanum hans Axels Surprised

Slæd og leikaraskapur á BMW 325e, endaði með slædi á götukant gerðum við það, var bara ónýt spyrna. Fór aftur út að leika og það var fínt fjör, endaði reyndar með því að ég lánaði frænda mínum bílinn, sem að svo braut drifið mitt!

Fixuðum það allt og var kominn langt á leið með að klára þann bíl þegar að ég skipti við Hannes á Justy Smile

Well, funfun Very Happy now you know how much of a böðull i am !
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Postby fart » Thu 22. Dec 2005 15:42

arnibjorn wrote:hvað er að clutch droppa? :roll: :oops:


Stendur bílinn í botni, setur í fyrsta gír og sleppir kúplingunni snöggt.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby íbbi_ » Thu 22. Dec 2005 16:00

þegar ég var nýbúin að að fá prófið þá var pabbi að skutla mér að ná í bílin eftir að ég hafði verið að djamma kvöldið áður.. þegar ég er kominn yfir í minn bíl og pabbi farinn þá steig ég náttla allt í botn og var með aðra höndina á handbremsuni eins og alltaf á þessu tíma.. bíllin hafði verið í efstu götu bæjarins (ísó) og þegar ég kom í brekkuna þá var mikið meiri hálka í henni heldur en ég hélt og ég á alltof miklum hraða, þannig að ég rann stjórnlaust niður alla brekkuna og þrusaði beint í skafl sem var neðan við brekkuna.. pabbi beið við byrjun brekkunar með spotta af því að hann vissi að ég kæmi á milljón með handbremsuna og myndi enda í skaflinum og festa mig... sem ég gerði :oops:

ég á of mikið af sona bjánasögum :roll:
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby arnibjorn » Thu 22. Dec 2005 16:21

fart wrote:
arnibjorn wrote:hvað er að clutch droppa? :roll: :oops:


Stendur bílinn í botni, setur í fyrsta gír og sleppir kúplingunni snöggt.


Geggjað. Takk :wink:
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby Aron Andrew » Thu 22. Dec 2005 16:28

Það asnalegasta og vandræðalegasta sem ég hef lennt í var þegar ég var á pick-upinum hans pabba, ég var á ljósum við sæbrautina og það var engin umferð, bara einhverjir stopp á hafnarbakkanum, og ég gaf allt í botn og spólaði svona helvíti fínt yfir gatnamótin og ætlaði að spóla í gegnum beygjuna, en það tóks ekki betur en það að allt í einu greip bíllinn og ég dúndraði upp á umferðareyju :oops: .
Eftir það hef ég alltaf verið hálf hræddur við einhverjar svona æfingar í mikilli bleytu.
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Next

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 67 guests