bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Hehehehe https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=12457 |
Page 1 of 1 |
Author: | Kristjan [ Fri 11. Nov 2005 16:10 ] |
Post subject: | Hehehehe |
Af bloggi... ekki mínu samt. Á föstudagskvöldinu fór ég með þeim á djammið og var kóngurinn hann ég að sjálfsögðu búinn að redda hópnum VIP entrance á alla heitustu klúbbana. Þar á meðal hinn sjóðheita Ólíver Bar en hann virðist heldurbetur ætla að endast vel. Það er skemmst frá því að segja að þetta kvöld drakk ég mig vel sætkenndan fyrir norska olíupeninga.....þeir bara hreinlega slógust um að fá að splæsa á gædinn sinn og ég hreyfði engum sérstökum mótmælum við því. Ég held að ég hafi drukkið svona sjö Mojito á Ólíver. Á fimmta eða sjötta Mojito fór ég að spjalla við dávaldinn "mikla" hann Sailesh sem heiðraði samkomuna með nærveru sinni. Ég tjáði honum að mér finndist hann bara alls ekki trúverðugur dávaldur og að það væri bara ekki hægt að dáleiða 10 manns í einu með því að smella fingri, hvaða rugl og peningaplokk þetta væri eiginlega og að hann ætti bara að skammast sín fyrir að vera féfletta æsku landsins með þessu kukli sínu! Hann horfði undarlega á mig í smá stund og svo fór ég beint á barinn og náði í Mojito handa honum. Næstu tíu mínútur á eftir eru svolítið í móðu en ég fór snemma heim að lúlla......Mjög undarlegt!?? Birt með leyfi |
Author: | IvanAnders [ Fri 11. Nov 2005 17:05 ] |
Post subject: | |
![]() |
Author: | Helgi Joð Bé [ Fri 11. Nov 2005 18:25 ] |
Post subject: | |
heheehehe ég verð að læra dáleiða, frítt áfengi ![]() ætli hann geri þetta líka til að ná í gellur ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |