Page 1 of 2
Paypal - greiðsla

Posted:
Thu 03. Nov 2005 11:41
by bimmer
Er að versla dót frá USA í gegnum paypal og mér finnst seljandinn eitthvað vera að draga lappirnar.
Hann segir að greiðsla hafi ekki borist - taki 5 til 7 daga eftir að ég hef greitt með Paypal.
Er eitthvað vit í þessu?
Re: Paypal - greiðsla

Posted:
Thu 03. Nov 2005 11:42
by bebecar
bimmer wrote:Er að versla dót frá USA í gegnum paypal og mér finnst seljandinn eitthvað vera að draga lappirnar.
Hann segir að greiðsla hafi ekki borist - taki 5 til 7 daga eftir að ég hef greitt með Paypal.
Er eitthvað vit í þessu?
Það getur tekið einhverjar daga já - man nú ekki hve langan tíma það tók síðast hjá mér.

Posted:
Thu 03. Nov 2005 11:46
by Kull
Hann á að fá staðfestingu frá Paypal um leið og þú greiðir og það á að nægja. Það getur kannski tekið einhverja daga fyrir hann að fá peninginn frá Paypal en það á ekki að skipta þig neinu máli.

Posted:
Thu 03. Nov 2005 11:46
by gstuning
Með paypal þá á það að gerast strax.
En það getur tekið hann einhvern tíma að ná því úr paypal accountinum sínum.

Posted:
Thu 03. Nov 2005 12:17
by Einarsss
Það sem ég hef verið að versla með paypal hefur allt gegnið í gegn strax ... seljandi samþykkt greiðsluna strax

Posted:
Thu 03. Nov 2005 13:01
by elli
Hjá mér hefur þetta tekið ca. 5-7 daga að koma inn.
Ég mundi ekki hafa áhyggjur af þessu, held að þetta sé nokkuð traust. Allavegana held ég að öruggari kostur sé varla í boði í verlsun á netinu.

Posted:
Thu 03. Nov 2005 13:49
by arnib
Sama hjá mér og flestum hérna,
greiðslan hefur gengið strax í gegn - eða hann hefur að minnsta kosti getað séð hana strax.
Það getur samt verið, eins og einhver sagði að ofan, að það taki hann nokkra daga að fá peningana í hendurnar, en þeir fara inn á accountinn hans strax.

Posted:
Thu 03. Nov 2005 14:13
by bimmer
Ok, þá virðist sem þetta geti passað.

Posted:
Thu 03. Nov 2005 15:29
by fart
Mín reynsla.. (53 positive feedbacks á ebay

+ óteljandi viðskipti framhjá ) er að seljendur eru ansi misjafnir með þetta.
Sumir láta duga að fá conformation frá paypal um að greiðslan sé komin. það á við um stærri seljendur. Aðrir senda ekki af stað fyrr en greiðslan er í "hendi".
Annars er ég confirmed og verified þannig að það gæti skipt máli.

Posted:
Thu 03. Nov 2005 22:00
by HPH
getur maður ekki lent í því að maður borgar í gegnum þetta PAYpal og gæinn sendir ekkert vöruna? og hann er kominn með pening og er mjög happy. Hvað er hækt að gera í svoleiðis málum?

Posted:
Fri 04. Nov 2005 09:25
by gstuning
HPH wrote:getur maður ekki lent í því að maður borgar í gegnum þetta PAYpal og gæinn sendir ekkert vöruna? og hann er kominn með pening og er mjög happy. Hvað er hækt að gera í svoleiðis málum?
paypal fraud og ebay fraud bara

Posted:
Fri 04. Nov 2005 10:08
by fart
HPH wrote:getur maður ekki lent í því að maður borgar í gegnum þetta PAYpal og gæinn sendir ekkert vöruna? og hann er kominn með pening og er mjög happy. Hvað er hækt að gera í svoleiðis málum?
Ef þú ert með visakort þá ertu í góðum málum. Ég hef lent í því að kaupa hlut sem var ekki sendur. Þá ferðu í útibúið þitt og gerir skýrlu. Visa debet færir á kortið þitt og allir eru ánægðir. Þannig var þetta allavega þá, spurning hvort þeir hafa fellt þett úr gildi vegna aukinna netviðskipta.

Posted:
Tue 03. Jan 2006 20:33
by arnibjorn
fart wrote:HPH wrote:getur maður ekki lent í því að maður borgar í gegnum þetta PAYpal og gæinn sendir ekkert vöruna? og hann er kominn með pening og er mjög happy. Hvað er hækt að gera í svoleiðis málum?
Ef þú ert með visakort þá ertu í góðum málum. Ég hef lent í því að kaupa hlut sem var ekki sendur. Þá ferðu í útibúið þitt og gerir skýrlu. Visa debet færir á kortið þitt og allir eru ánægðir. Þannig var þetta allavega þá, spurning hvort þeir hafa fellt þett úr gildi vegna aukinna netviðskipta.
Hefur einhver lent í því að hafa borgað svona með paypal og sendandi sendir aldrei vöruna? Er hægt að fá peninginn aftur? Fart heldur að það sé hægt en er ekki viss.. einhverjir aðrir sem að vilja deila visku sinni?


Posted:
Tue 03. Jan 2006 21:07
by gstuning
Paypal er jafngildi um viðskipti í USA, þannig að ef þú átt mail frá Paypal um að hafa sent einhverjum pening þá hefurðu samband við paypal og claimar að hann hafi ekki sent , þeir tala við hann og biðja hann um að sanna að hann hafi sent, og þá þarf hann að sanna að hann hafi sent þetta á tilskyldum tíma.

Posted:
Tue 03. Jan 2006 21:11
by arnibjorn
gstuning wrote:Paypal er jafngildi um viðskipti í USA, þannig að ef þú átt mail frá Paypal um að hafa sent einhverjum pening þá hefurðu samband við paypal og claimar að hann hafi ekki sent , þeir tala við hann og biðja hann um að sanna að hann hafi sent, og þá þarf hann að sanna að hann hafi sent þetta á tilskyldum tíma.
Okey snilld! Þannig að þetta er nú bara tiltörulega safe.. allavega meira safe en að leggja beint inná reikning hjá einhverjum úti
