Varð að keyra eftir Sæbrautinni til austurs í dag og er stopp á ljósunum fyrir neðan Höfða/Heimilistæki. Ég var á vinstri akgrein og þegar ljósið var búið að vera rautt lengi og bíll var að beygja úr gagnstæðri átt upp í Höfðatúnið kemur bíll á hægri akgreininni framhjá mér - yfir á rauðu ljósi og bombar í bílinn sem var að beygja.
Tók smá tíma að fatta að þetta var virkilega að gerast og ég dríf mig síðan yfir gatnamótin, set bílinn út í kant og fer að tékka á fólkinu.
Í fyrri bílnum voru 2 konur og var bílstjórinn í kasti þar sem farþeginn var ólétt kona. Ég sá að þær voru ómeiddar þannig að ég stökk yfir að hinum bílnum. Þar var _önnur ólétt kona_!!!
Hverjar ætli séu líkurnar á þessu - árekstur með 2 óléttum konum???
Þetta endaði samt allt vel - fékk símtal frá bílstjóranum í kvöld þar sem hún sagði að öllum heilsaðist vel.

