bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Einn nýr.
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=11203
Page 1 of 3

Author:  BMWRLZ [ Sat 30. Jul 2005 20:36 ]
Post subject:  Einn nýr.

Sælir BMWkraftsmenn.

Ég er búinn að vera að fylgjast með þessu spjalli í þónokkurn tíma enn hef nú lítið sem ekkert tjáð mig hér. Ákvað að kynna mig aðeins áður enn maður fer að babbla eitthvað meira hérna, enn allavega heiti ég Ari, er 17 ára gamall og ek reyndar ekki um á BMW heldur M.benz 320CE, enn maður er svo ungur ennþá þannig að maður á pottþétt eftir að fá sér einhvern BMW seinna. Hér eru síðan nokkrar myndir af bílnum, endilega tjáið álit ykkar á dollunni.


Image

Image

Image

Image

Image

Image

Author:  Schnitzerinn [ Sat 30. Jul 2005 20:53 ]
Post subject: 

Já, hann er mjög flottur hjá þér, en finnst þér ekkert skrítið að það eru engar aðrar tegundir en BMW í "Bílar meðlima" dálknum ? Hann er ætlaður fyrir BMW og BMW aðeins !. Annað á heima í Off-topic :!:

Stjarna er Mercedes-Benz klúbbur Íslands.

Vildi bara benda þér á þetta ;)

Author:  íbbi_ [ Sat 30. Jul 2005 21:39 ]
Post subject: 

ég get fullvissað þig um að þessi maður veit fullvel um allt sem er í gangi á stjörnuni, sona byrjun er nú bara til að fæla menn frá.
allavega býð ég þig velkomin, það er bara ein bílategund sem jafnast á við bmw og það er einmitt benz 8)

Author:  arnib [ Sat 30. Jul 2005 22:04 ]
Post subject: 

Jáá,

Fallegur bíll!

Hvað er svona bíll kraftmikill og hvers konar vél er í honum?

Author:  íbbi_ [ Sat 30. Jul 2005 22:05 ]
Post subject: 

hmm.. eru það ekki 220hö eða eitthvað þar í kring, er hann komin með v6 vélina eða er gamla línan?

Author:  saemi [ Sat 30. Jul 2005 22:06 ]
Post subject: 

íbbi_ wrote:
ég get fullvissað þig um að þessi maður veit fullvel um allt sem er í gangi á stjörnuni, sona byrjun er nú bara til að fæla menn frá.
allavega býð ég þig velkomin, það er bara ein bílategund sem jafnast á við bmw og það er einmitt benz 8)


Það er nú bara verið að benda honum á að "bílar meðlima" gengur bara fyrir BMW. Það er öllum frjálst og velkomið að setja inn upplýsingar um bifreiðina sína, en ef það er ekki BMW þá lendir það í "off-topic". Það eru engin illindi í gangi hérna, en þetta er klúbbur fyrir BMW, ekki Benz.

Benz jafnast nú ekki alveg við BMW .... :wink: ég myndi frekar segja Porsche væri þar frekar fremstur á lista, ef ekki fyrir ofan BMW :lol:

Velkomin á spjallið Ari. Þetta er smekklegur bíll, ágætlega skemmtilegir bílar að keyra. Prufaði einn svona um daginn, virkar vel.

Author:  íbbi_ [ Sat 30. Jul 2005 22:31 ]
Post subject: 

mér var ekki kunnugt um að hann hefði sett þetta í bíla meðlima, enda var þetta ekki þar þegar ég fyrst las þetta, mér fannst þetta hljóma meira eins og það væri verið að benda honum frekar á að vera á stjörnuni en hér,
það sem ég sagði um bmw og benz veltur held ég voðalega´mikið á hver segir það og hvað viðkomandi fynnst mér persónulega finnst porsche svo ólíkir bílar,

Author:  saemi [ Sat 30. Jul 2005 22:58 ]
Post subject: 

íbbi_ wrote:
mér var ekki kunnugt um að hann hefði sett þetta í bíla meðlima, enda var þetta ekki þar þegar ég fyrst las þetta, mér fannst þetta hljóma meira eins og það væri verið að benda honum frekar á að vera á stjörnuni en hér,
það sem ég sagði um bmw og benz veltur held ég voðalega´mikið á hver segir það og hvað viðkomandi fynnst mér persónulega finnst porsche svo ólíkir bílar,


Ég bara gekk út frá því að þetta hefði verið sett þar inn, fannst það liggja í orðum schnitzersins. En hef annars ekki hugmynd um það.

Svo er það sko alveg rétt hjá þér með Benz/BMW/Porsche ofl. þetta er sko algjörlega matsatriði hvers og eins. Fannst bara tilvalið að skjóta minni að, fyrst þín staðhæfing var komin :D

Author:  oskard [ Sat 30. Jul 2005 23:05 ]
Post subject: 

þetta var í bílar meðlima, iz moved it

Author:  basten [ Sat 30. Jul 2005 23:33 ]
Post subject: 

Velkominn á spjallið!
Smekklegur Daimler hjá þér drengur 8)

Author:  Lindemann [ Sun 31. Jul 2005 00:46 ]
Post subject: 

Velkominn!

Flottur dodds!! :wink:

Author:  Schnitzerinn [ Sun 31. Jul 2005 03:25 ]
Post subject: 

Alls ekki taka þessu sem einhverjum leiðindum strákar, þetta var auðvitað bara vinsamleg ábending. Ég ber virðingu fyrir mönnum með góðan þýskan-smekk og þessi aðili á það alveg fullkomlega skilið, þó þetta sé enginn BMW :twisted:

En f50, bara til hamingju með gripinn og vonandi að hann skili sínu :wink: (Sem ég efast ekki um að hann eigi eftir að gera)

Author:  fart [ Sun 31. Jul 2005 08:19 ]
Post subject: 

Minn Benz var líka færður úr "bílar meðlima" og hvort að Porsche var það ekki bara líka.

Ég er alveg cool með það.

Fyrst ég á nú (aldrei gerst áður) einn Porsche, einn Benz og einn BMW þá væri kanski spurning um að taka mynd af litla bæverska kvikindinu í hópi hinna bílann á heimilinu og lauma því svo í bílar meðlima.

Author:  íbbi_ [ Sun 31. Jul 2005 09:32 ]
Post subject: 

schinzerinn, engan vegin meint illa 8)
fart.. dáldið fáránlega skemmtileg aðstaða sem þú ert búin að koma þér í =D>

Author:  oskard [ Sun 31. Jul 2005 12:10 ]
Post subject: 

fart wrote:
Minn Benz var líka færður úr "bílar meðlima" og hvort að Porsche var það ekki bara líka.

Ég er alveg cool með það.

Fyrst ég á nú (aldrei gerst áður) einn Porsche, einn Benz og einn BMW þá væri kanski spurning um að taka mynd af litla bæverska kvikindinu í hópi hinna bílann á heimilinu og lauma því svo í bílar meðlima.


minnir að bebecar hafi einmitt gert það þannig til að lauma inn myndum af porschinum sínum :lol:

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/