Page 1 of 1

McLaren-Mercedes SLR

PostPosted: Mon 30. May 2005 13:07
by fart
Ég hef ekki verið mikill aðdáendi þessara bíla en um helgina sannaðist sú kenning að sumt bara virkar ekki á mynd og maður verður að sjá það in real life til að fatta hvað þetta snýst um.

Sá einn svona í London á laugardag. Það verður bara að segjast að þessi bíll er ALGJÖR GRÆJA. Ég féll bara í stafi, settist niður og horfði á hann í svona 10mínútur.

Fyrir aftan hann var Ferrari 360 Spider (rauður með ljósri blæju) algjör draumagræja, en SLR-inn skyggði alveg á hann.

PostPosted: Mon 30. May 2005 13:32
by Zyklus
Þú hefur ekki verið með myndavél á þér? :D

PostPosted: Mon 30. May 2005 13:39
by fart
Nei...

enda finnst mér SLR ekki flottur á mynd hvort eða er. :?

PostPosted: Mon 30. May 2005 14:17
by Kristjan
Var sándið ekki líka alveg geðveikt?

PostPosted: Mon 30. May 2005 14:36
by fart
Hann var alveg silent... enda lagt í stæði.

PostPosted: Mon 30. May 2005 14:37
by Djofullinn
fart wrote:Hann var alveg silent... enda lagt í stæði.
:lol:

PostPosted: Mon 30. May 2005 14:46
by gdawg
Ég held að það sé fátt á þessari jörð sem hljómar jafn vel á botngjöf og SLR..... tja kannski Spitfire.... 8)

PostPosted: Mon 30. May 2005 19:56
by 98.OKT
gdawg wrote:Ég held að það sé fátt á þessari jörð sem hljómar jafn vel á botngjöf og SLR..... tja kannski Spitfire.... 8)


Ójú, Aston Martin Vanquish, hann er með flottasta hljóð sem ég hef heyrt :drool:

PostPosted: Mon 30. May 2005 20:40
by oskard
ég fékk einusinni að heyra í mclaren f1 á botngjöf í milan og er
það hljóð sem ég mun seint gleyma :)

PostPosted: Tue 31. May 2005 10:29
by fart
Það er reyndar bara magnað að heyra í supercar almennt. Ferrari 360 í botni hljómar stórkostlega, svona eins og 4 öflug götuhjól í botni í einu.

PostPosted: Tue 31. May 2005 17:06
by Kristjan
Djofullinn wrote:
fart wrote:Hann var alveg silent... enda lagt í stæði.
:lol:


bömmer