Page 1 of 1
Mjög OT!! Óge.... felgur??

Posted:
Tue 26. Apr 2005 08:57
by Giz
Bara svona til gamans var ég að velta fyrir mér ástandinu á felgum þessa bíls:
http://stjarna.is/forum/viewtopic.php?t=3039
Ætli þær séu nokkuð óge......? Maður spyr sig!
G

Posted:
Tue 26. Apr 2005 09:00
by Kristjan
Ja maður spyr sig, mig langar að vita hvers vegna menn eru að kaupa bíla einungis til að eiga þá í nokkrar vikur?

Posted:
Tue 26. Apr 2005 09:43
by Jónas
Kristjan wrote:Ja maður spyr sig, mig langar að vita hvers vegna menn eru að kaupa bíla einungis til að eiga þá í nokkrar vikur?
Kannski kom eitthvað uppá hjá honum?
Hann segist vera að fara að kaupa húsnæði, en ekki eins og að hann þurfi að réttlæta sölu fyrir einhverjum..

Posted:
Tue 26. Apr 2005 09:48
by Kristjan
Jónas wrote:Kristjan wrote:Ja maður spyr sig, mig langar að vita hvers vegna menn eru að kaupa bíla einungis til að eiga þá í nokkrar vikur?
Kannski kom eitthvað uppá hjá honum?
Hann segist vera að fara að kaupa húsnæði, en ekki eins og að hann þurfi að réttlæta sölu fyrir einhverjum..
Já það getur vel verið, en það virðist alltaf færast í aukana að menn séu að skipta um bíla eins og nærbrækurnar sínar. Ég vildi bara fá smá innsýn í ástæðurnar vegna þess.

Posted:
Tue 26. Apr 2005 09:54
by bjahja
Það er nú ekkert nýtt að menn séu að braska aðeins með bíla og græða nokkrar krónur


Posted:
Tue 26. Apr 2005 09:59
by Giz
bjahja wrote:Það er nú ekkert nýtt að menn séu að braska aðeins með bíla og græða nokkrar krónur

Enda ekkert að því að nokkru leyti


Posted:
Tue 26. Apr 2005 10:14
by Kristjan
Ég hef aldrei fylgst með bílabraski og hef því frekar lítið vit á því. Ég skil bara ekki hvernig menn geta fengið sig til að selja bílana sem þeir eru kannski ekki einusinni búnir að tilkeyra. Mér þykir alltaf svo vænt um þá bíla sem ég hef keypt og átt.

Posted:
Tue 26. Apr 2005 20:16
by bjahja
Kristjan wrote:Ég hef aldrei fylgst með bílabraski og hef því frekar lítið vit á því. Ég skil bara ekki hvernig menn geta fengið sig til að selja bílana sem þeir eru kannski ekki einusinni búnir að tilkeyra. Mér þykir alltaf svo vænt um þá bíla sem ég hef keypt og átt.
Jamm, enda ertu ekki bílabraskari og kaupir ekki bíla með sama hugarfari og bílabraskarar


Posted:
Tue 26. Apr 2005 20:39
by Kristjan
bjahja wrote:Kristjan wrote:Ég hef aldrei fylgst með bílabraski og hef því frekar lítið vit á því. Ég skil bara ekki hvernig menn geta fengið sig til að selja bílana sem þeir eru kannski ekki einusinni búnir að tilkeyra. Mér þykir alltaf svo vænt um þá bíla sem ég hef keypt og átt.
Jamm, enda ertu ekki bílabraskari og kaupir ekki bíla með sama hugarfari og bílabraskarar

Nei það er alveg hárrétt, ég er bara að reyna skyggnast inní þetta hugarfar


Posted:
Tue 26. Apr 2005 20:49
by fart
Ásett verð 3900 áhvílandi 3600!
tækifæri fyrir einhvern með lága current cash stöðu og gott cashflow...
Hvað ætli afsalið þurfi að vera til að bílalánafyrirtækið leyfi yfirtöku á láninu. 92%lánshlutfall miðað við current verð.

Posted:
Tue 26. Apr 2005 20:49
by Haffi

Posted:
Tue 26. Apr 2005 21:12
by Eggert
fart wrote:Ásett verð 3900 áhvílandi 3600!
tækifæri fyrir einhvern með lága current cash stöðu og gott cashflow...

Hvað ætli afsalið þurfi að vera til að bílalánafyrirtækið leyfi yfirtöku á láninu. 92%lánshlutfall miðað við current verð.
Þetta er svo nýlegur bíll, ekkert mál. Bílasalar hafa bjargað sér í verri aðstæðum en þetta skal ég segja þér.

Posted:
Tue 26. Apr 2005 21:21
by iar
Flottar myndir, áhugaverðir litir og slíkt sérstaklega miðað við aðstæður í bílastæðahúsi.
Skrítið hvað felgurnar virðast vera svakalega misstórar. Eitthvað linsu dæmi væntanlega nema það sé aðalmálið í Stjörnuheimi í dag að vera með 17" að framan og 14" að framan.


Posted:
Tue 26. Apr 2005 21:38
by Henbjon
Sá þennan bíl um daginn, kíkti aðeins á hann. Felgurnar eru fínu standi sýndist mér og hann er bara ósköp venjulegur að innan. Flottur bíll.

Posted:
Tue 26. Apr 2005 21:42
by fart
Sá hann in person á sunnudag, býr rétt hjá foreldrum mínum. Þessi bíll er algjör Looker, mjöööög flottur.