bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Eldgos.
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=43731
Page 7 of 22

Author:  Steini B [ Sun 28. Mar 2010 03:40 ]
Post subject:  Re: Eldgos.

Ég bara skil ekki þessa heimsku að fara þarna upp á jökul labbandi, vitandi það að Katla geti gosið hvenær sem er :roll:
Mér nægir bara að sjá þessar myndir, ásamt því að ég sé bjarmann mjög vel héðan

Ég væri mikið frekar til í að fara upp á Heklu, þar sem það er vitað að það er lítil hætta...

Author:  Thrullerinn [ Sun 28. Mar 2010 10:19 ]
Post subject:  Re: Eldgos.

Steini B wrote:
Ég bara skil ekki þessa heimsku að fara þarna upp á jökul labbandi, vitandi það að Katla geti gosið hvenær sem er :roll:
Mér nægir bara að sjá þessar myndir, ásamt því að ég sé bjarmann mjög vel héðan

Ég væri mikið frekar til í að fara upp á Heklu, þar sem það er vitað að það er lítil hætta...

Fór gangandi að eldstöðvunum frá Skógum í gær, leiðin leynir á sér, hún er löng og tiltölulega einsleit, lagði af stað um 15:30, var kominn upp eftir um áttaleytið og niður um 23:30, magnað að sjá allt í ljósaskiptunum. Ekki skemmdi að sólin lagði rauðan kvöldröða yfir og með eldgosið í forgrunni þá var þetta án alls vafa það magnaðasta sem ég hef séð.

Margir voru að lenda í basli með hnén á sér á leiðinni niður, þetta er jú mjög löng dagleið.
Það var hvöss norðan átt í andlitið alla leiðina upp, síðan lenti maður stundum í að fá gjall í augun þegar nær dró eldstöðvunum(frá Baldvinsskála og upp úr).

Skildi nú ekki alveg suma flugmennina þarna, einn gaur þarna sem var að leika sér að fljúga milli gýgsins og hólsins sem flestallar myndirnar eru teknar frá, hann var langt fyrir neðan mann. Var hreinlega í loftnetunum á bílunum. Síðan voru fjórar þyrlur flögrandi þarna, svarta, landhelgisg, önnur sambærileg svörtu síðan svona útsýniskúla með spöðum. Það kostar 43 þús að fara í útsýnisflug á manninn frá Skógum.. Fisflugvélin sem rak stélið niður var hreinlega rifinn í spað þarna uppi og sett á pallbíl..

Það er margfalt flottara að horfa á gosið að kvöldi til!

Author:  B4ldur [ Sun 28. Mar 2010 10:33 ]
Post subject:  Re: Eldgos.

Thrullerinn wrote:

Hljómar vel. Ég er að leggja af stað núna. Verð kominn að eldstöð seinnipartinn og ætla sjá þetta í twilight.

Author:  Bjarkih [ Sun 28. Mar 2010 12:09 ]
Post subject:  Re: Eldgos.

JonHrafn wrote:
Þetta er sirka leiðin. Leiðinda svarthvíta mynd þarna.

http://myndasafn.bmwkraftur.is/d/82477-2/EldgosFimmvorduhalsMyrdalsjokull.jpg

Er hægt að nálgast GPS plottið einhversstaðar þannig að maður hafi eitthvað ef skygni yrði slæmt þegar maður fer?

Author:  JonHrafn [ Sun 28. Mar 2010 12:11 ]
Post subject:  Re: Eldgos.

Bjarkih wrote:
JonHrafn wrote:
Þetta er sirka leiðin. Leiðinda svarthvíta mynd þarna.

http://myndasafn.bmwkraftur.is/d/82477-2/EldgosFimmvorduhalsMyrdalsjokull.jpg

Er hægt að nálgast GPS plottið einhversstaðar þannig að maður hafi eitthvað ef skygni yrði slæmt þegar maður fer?

http://www.landsbjorg.is

Author:  Bjarkih [ Sun 28. Mar 2010 13:26 ]
Post subject:  Re: Eldgos.

JonHrafn wrote:
Bjarkih wrote:
JonHrafn wrote:
Þetta er sirka leiðin. Leiðinda svarthvíta mynd þarna.

http://myndasafn.bmwkraftur.is/d/82477-2/EldgosFimmvorduhalsMyrdalsjokull.jpg

Er hægt að nálgast GPS plottið einhversstaðar þannig að maður hafi eitthvað ef skygni yrði slæmt þegar maður fer?

http://www.landsbjorg.is

Takk fyrir :)

Author:  JonFreyr [ Sun 28. Mar 2010 13:51 ]
Post subject:  Re: Eldgos.

Er líka hægt að elta förin langleiðina, orðið frekar vel þjappað alveg upp að útsýnishólnum. Svo er stanslaus traffík upp að gosinu og á meðan einhver birta er þá sérðu förin mjög vel og bílaröðina.

Author:  Bjarkih [ Sun 28. Mar 2010 17:32 ]
Post subject:  Re: Eldgos.

JonFreyr wrote:
Er líka hægt að elta förin langleiðina, orðið frekar vel þjappað alveg upp að útsýnishólnum. Svo er stanslaus traffík upp að gosinu og á meðan einhver birta er þá sérðu förin mjög vel og bílaröðina.

Vissulega en Ísland er nú þannig að birtan getur horfið skyndilega.

Author:  JonHrafn [ Sun 28. Mar 2010 17:38 ]
Post subject:  Re: Eldgos.

Ef það byrjar að blása þá hverfa öll hjólför á 5mín. Að lenda í whitout á jökli án gps er ekki sniðugt. Maður veit ekki hvað snýr upp eða niður.

Author:  bimmer [ Sun 28. Mar 2010 22:14 ]
Post subject:  Re: Eldgos.

Geggjaðar myndir frá Christopher Lund - www.chris.is:

Image

Image

Image

Image

Author:  Einarsss [ Sun 28. Mar 2010 22:20 ]
Post subject:  Re: Eldgos.

Image

Þessi er geðveik!

Author:  gulli [ Sun 28. Mar 2010 22:23 ]
Post subject:  Re: Eldgos.

Þetta er mjög flottar myndir :thup:

Author:  SteiniDJ [ Sun 28. Mar 2010 23:16 ]
Post subject:  Re: Eldgos.

Einarsss wrote:
[/img]http://chris.is/wp-content/uploads/2010/03/cld100326_13731.jpg[/img]

Þessi er geðveik!

Of vægt til orða tekið. :shock:

Bestu myndirnar af gosinu sem ég hef séð hingað til.

Author:  Thrullerinn [ Mon 29. Mar 2010 10:11 ]
Post subject:  Re: Eldgos.

Image

Image

Image

http://www.facebook.com/helicoptericela ... 4957260823

Author:  SteiniDJ [ Mon 29. Mar 2010 10:23 ]
Post subject:  Re: Eldgos.

Vá. :shock:

Veit einhver hver á heiðurinn af þyrlumyndunum?

Page 7 of 22 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/