zazou wrote:
Þetta á kannski meira heima í krónuþræðinum en ég vil sjá dollarann aftur í 60 og evru í 85. Nema að til komi aðgerðir sem lækki almennt verð. Eins og ég benti á áður, ef fer sem fram horfir þá verða íslendingar með kaupmátt á við Grikkland og austantjaldsþjóðir.
Finnst fólki bara í lagi að €20.000 bíll kosti nú nærri 4.7m í stað 3.2m áður?
Gengið á þessum gjaldmiðlum var óeðlilega lágt á þessum tíma.
Ég væri alveg til í að €20.000 bíll myndi bara kosta 2.5m en það er ekki að fara gerast. Viðskiptahallinn hefur verið neikvæður í langan tíma og var ótrúlega mikill í febrúar vegna neyslugleði landans. Ef við flytjum inn fyrir meira heldur en við seljum þá hlýtur krónan að veikjast því við getum ekki staðið undir þessari neyslugleði. Einnig er erlent fjármagn til að fjármagna viðskiptahallann takmarkað um þessar mundir.
Svona svipað og taka alltaf ný og ný lán til að fjármagna hluti sem maður vill kaupa en getur ekki borgað af þeim. Við vitum alveg hvernig það endar. Nú er bara að halda að sér höndum í einhvern tíma á meðan niðursveiflan er í gangi.
Og hvernig á að lækka verð á vörum? Flutningskostnaður er mikill til landsins og skattar og álögur gera ríkinu kleyft að halda uppi þjónustu við íbúa landsins... eigum við bara að taka lán fyrir því líka?