zazou wrote:
Jónas wrote:
Þetta er töluvert betra en Mach3 jú.
Ef þú tekur þetta heim þá er pakki nr 1 39 pund með shipping til þín, ofaná það bætist svo 9 pund fyrir blöð af amazon.. Heildarpakki kominn til zazou = 48 pund.
Allir ættu að panta bara sjálfir og senda á þig? Ég var að henda línu á Traditional og spyrja hvernig þeir vildu að pöntunin myndi ganga fyrir sig
Góður, þú getur látið fylgja að ég mundi taka við sendingunni í Covent Garden.
Spurning samt hvort maður eigi að vera að ferðast með fleirihundruð blöð, var ekki tollurinn að gera upptæk fölsuð Mach-3 fyrir viku síðan eða svo
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2011/ ... velarblod/En er þetta meir og minna sama dótið, þá á ég við liggur munurinn bara í því hvernig græjan sjálf lítur út, blöðin alltaf eins?
Mér fannst ég alltaf vera að lesa sama textann og fann ekkert af viti um mun.
Þetta á alveg að sleppa.. Ef 15 panta er heildarverðmæti samt alveg ~130k !

Þetta er meira og minna allt það sama, eina sem munar er litur.. Blöðin eru 100% legit og ég efast um að það sé umboð heima fyrir þau
Ef þú tekur þetta heim þá sparar hver og einn um 1500-2500kr gróflega séð, að því gefnu að þetta tollast sem snyrtivara heima
15 pakkar, menn verða að reikna alveg til enda, mögulega yfirvigt, vaskur hér úti og ef þetta er svona mikið magn labbar maður vart óáreittur í gegn heima.