ppp wrote:
JohnnyBanana wrote:
ég skil ekki fólk sem segir að avatar sé "ein besta mynd sem þau hafa séð". vel gerð, já en sagan er algjört bull. og stolið bull í þokkabót.
Mér finnst þetta eiginlega eins og að fara á tónleika og væla svo yfir því að flugeldarnir sem þeir notuðu hafi ekki verið nógu góðir.
Ég held að fáir hafi verið að búast við einhverju geðveiku story-wise frá Avatar. Ég t.d. bjóst við lélegri mynd. Hún bara lookaði bara svo brjálað í 3d að það gerði hana líklega þá mögnuðustu reynslu sem ég hef upplifað í bíó.
Svo eru það auðvitað þessir óheppnu klaufabárðar sem auluðust til að sjá myndina í 2d og skilja ekkert um hvað málið snýst. Að gera það er nú bara eins og að vera á Rolling Stones tónleikum með Bubba Morthens blastandi iPod í eyrunum. Gerir ekki svoleiðis.
ég er mjög ósammála þér, ég met kvikmyndir eftir söguþræði og leikstjórn fyrst og fremst, hvernig hún lítur út skiptir ekki mestu máli að mínu mati. En að sjálfsögðu þegar um er að ræða góða leikstjóra ásamt góðu handriti og leikaravali þá líta myndir almennt mjög vel út, en núna þökk sé öllum þessum cgi fídusum og special effects getur hvaða bjáni sem er sem á nóg af peningum búið til rosalega flotta og vel gerða mynd með ömurlegu handriti, því eins og þú sannar með orðum þínum að ofan þá dregur "lúkkið" athyglina frá skakkaföllum handrits og lélegra leikara.