ömmudriver wrote:Reykjanesbrautin þolir það vel að hámarkshraðinn sé hækkaður og er ég hlynntur því en ég vill þá sjá betri frágang á milli akgreina og þá er ég að tala um vegrið, svo má laga landið sitthvoru megin við brautina svo að fólk dúndri ekki ofan í skurð eða á klöpp á 110km/h+ m.ö.o. stærra/lengra "Run off" svæði.
Og trukkar þurfa ekki að vera eld gamlir til þess að vera án hraðatakmarkara, ef ég man rétt kom það í lög að setja hraðatakmarkara í trukka um '96-'98.
Málið er að báðir akbrautir eru enn tengdar eða ekki aðskildar eins og eðlilegt er fyrir 110kmh hraða. Það er hvergi hérna tvöfaldur vegur og samt opið á milli.
Þegar hún verður aðskild þá er hún í raun fyrst tilbúin, og þá í raun þarf líka vegrið á köflum svo fólk geti ekki flogið útaf langar leiðir.
Ég er sammála að vegurinn sjálfur ber 110kmh eins og ekkert sé.