Quote:
Í ljósi undan genginna atburða hef ég ákveðið að stofna bloggsíðu þar sem hægt er að nálgast ýmsar upplýsingar ásamt sýn minni og skoðunum á atburðum líðandi stunda.
Það sem mig langar að byrja á að tala um er atvik dagsins þar sem umræddur og títtnefndur bílstjóri, Ágúst Fylkisson, veittist að lögreglumanni. Taka skal fram að lögreglukonan og lögreglumaðurinn sem veist var að höfðu neitað að afhenda Ágústi þá hluti sem búið var að lofa að afhenda honum til baka, og höfðu þau einnig átt í orðaskaki við hann.
Það skal koma skýrt fram hér á þessari síðu að ég þekki þennan mann og hef unnið með honum. Þó svo að annað hafi komið fram í viðtali við fréttastofur. Það sem gerist er, að þegar atvikið á sér stað er míkrófónn nánast umsvifalaust kominn að mér og Ágúst liggur enn í jörðinni. Í miklum hasar er erfitt að átta sig almennilega á aðstæðum og svör mín við spurningum fréttamanns voru ef til vill röng. Í aðstæðum sem þessum vill maður að sjálfsögðu segja allt rétt og sökum þess svara ég því að þekkja ekki manninn. Ég fordæmi það algjörlega að Ágúst hafi veist að lögreglumanninum og harma ég það og veit að Ágúst gerir það einnig.
Held að það eina sem geti bjargað málstað vörubílstjóra sé að menn finni sér hæfari forsvarsmann.
Sturla er örugglega fínn naungi og góður maður. En það er greinielga eitthvað sem gerist hjá honum þegar hjartað fer að slá hraðar og adrenalínið tekur völdin.